28.3.2012 | 22:47
Frumvarpið er aðlögun að ESB.
Ekki er annað að sjá en að frumvarp þetta sé aðallega aðlögun að kröfum ESB.
Auk þess er veiðigjaldsfrumvarpið um meiri skattlagningu, fyrst um sinn, eða þar til ESB á að taka yfir.
Hin blekkingin er um að þessar auðlindir séu eign þjóðarinnar samkvæmt frumvarpinu.
Það er bara orðaleikur sem ekkert gildi hefur að lögum frekar en það dugði í þeim fyrri.
Lögin gætu rétt eins sagt að íslenska landnámshænan væri eigandinn og kæmi á sama stað niður fyrir þjóðina.
Ríkissjóður Íslands er eini aðilinn sem getur verið eigandi að einhverju, fyrir hönd þjóðarinnar.
Allt tal um annað er ekki pappírsins virði.
Og hvað sem því líður hvort að villtur fiskstofn geti talist eign eða ekki. (Nytjastofnar skv. frv.)
Þá getur rétturinn til fiskveiða verið eign í skilningi laga.
Eigi stjórnmálamenn við það í alvöru - sem þeir gera ekki - að fiskveiðiheimildirnar ættu að verða þjóðareign.
Þá væri ekki um annað að ræða en að taka fiskveiðiheimildirnar eignarnámi í ríkissjóð.
Og greiða eigendum fullar bætur fyrir samkvæmt lagareglum um eignarnám.
Setja svo í stjórnarskrána berum orðum að fiskveiðiheimildirnar séu ævarandi eign ríkissjóðs Íslands.
Ekkert minna gerir hið minnsta gagn nema til að blekkja almenning, sem er jú ætlunin.
Enn fremur ætti að standa í stjórnarskránni að Íslenska ríkinu væri óheimilt:
Að ráðstafa fiskveiðiheimildunum með nokkrum hætti til einstaklinga eða lögaðila.
Nema að þeir væru að öllu leyti íslenskir, stjórnarmenn og allir hluthafa íslenskir.
Og allt saman starfandi, búsett og með lögheimili á Íslandi, skipin og áhafnir íslenskar og skráð hérlendis.
Og þar á ofan að enginn nema íslensk stjórnvöld og stofnanir þeirra geti farið með stjórn fiskveiða.
Og algerlega óheimilt að framselja það stjórnvald út úr landinu eða til alþjóðlegra stofnanna.
Sama blekkingin um þjóðareign, eða landnámshænuna, er svo uppfærslunni í leikritinu um stjórnlagaráð.
Það er ekkert að lagast á nýja Íslandi.
En prýðilegur gangur í svikráðum hvers konar.
Hér eru dæmi um ákvæði sem eru aðlögun að ESB:
"3. gr. Gildissvið.
...Lög þessi gilda um ... ...samkvæmt heimildum í milliríkjasamningum og öðrum réttarheimildum þjóðaréttar.
Lög þessi gilda með þeim takmörkunum sem leiðir af samningum við erlend ríki og reglum þjóðaréttar..."
(Taka ber fram að orð eins og ævarandi geta ekki bundið stjórnarskrárgjafa framtíðarinnar.Slík orð eru aðeins til að hnykkja á vilja þess stjórnarskrárgjafa sem setur slíkt ákvæði.
Allt að einu verður slíkum ákvæðum ekki breytt nema með alþingiskosningum á milli þinga.
Þjóðin hefur þá alltaf tækifæri til að hreinsa þá út af Alþingi sem flytja breytingatillögur sem henni líkar ekki við.
Og hér gildir einnig að þá er átt við núverandi reglur um breytingu á stjórnarskránni sem standa í henni sjálfri.
Þeim væri einnig hægt að breyta, með stjórnarskrárbreytingu samkvæmt núverandi breytingarreglum.
Þannig að breytingarreglurnar yrðu öðru vísi í framtíðinni.
Til dæmis að Alþingi samþykkti breytingartillögu og svo myndi þjóðin kjósa sérstaklega um þá tillögu. Svo mætti hafa ákvæði um að rjúfa yrði það þing og boða til kosninga ef þjóðin felldi þá breytingatillögu Alþingis.
Eitt er þó ljóst að í framtíðinni getur þjóðin tekið upp hvaða breytingu á stjórnskipan sinni sem henni sýnist. Bara að breytingarnar fari eftir þeim breytingareglum sem gilda á hverjum tíma.
Um það hvað þjóðin gerir í þessum efnum í framtíðinni ráðum við núlifendur engu um. )
![]() |
Styður frumvarpið ekki óbreytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.3.2012 kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2012 | 13:43
Skilgreining neyslusamfélagsins. - Einsleitt skólakerfi.
Ég hef ekki neina allsherjar lausn á þessum afbrotamálum frekar en aðrir.
En skólakerfið er of einsleitt.
Of mikil áhersla á bóknám ennþá og að allir hegði sér svipað.
Hver segir að einhver krakki EIGI að geta setið kyrr og þagað í 40 mínútur í einu?
Er það eitthvað náttúrulögmál?
Þeir sem passa ekki inn í þessi þröngu norm okkar lenda fljótt í vandræðum.
Eru útsettari fyrir "ófélagslegri" hegðun og að byrja á einhverju sem er "óæskilegt" eða bannað börnum og unglingum.
Þá skiptir engu máli hvað hluturinn heitir.
Það að einstaklingurinn nær ekki að njóta sín er frumvandamálið.
Það held ég að sé aðalskýringin á fjölgun þeirra sem fara út af beinu brautinni.
Þessi fyrirskipaða beina braut er allt of þröng.
Af hverju er verið að pína ungmenni til að læra þrjú tungumál og allan djöfulinn.
Einhvern sem vill bara læra að lesa, reikna og skrifa og á ekkert gott með það, hvað þá meir?
Einhvern sem ætlar kannski að læra logsuðu og er snillingur í slíkri vinnu?
Af hverju fer hann þá ekki beint í slíkt nám upp úr fermingu?
Lærir svo meira seinna ef hann nennir?
Af hverju þarf slíkur einstaklingur að detta út úr skóla af því að hann getur ekki lært dönsku eða getur þagað eða verið kyrr í 40 mínútur?
Er ekki ríkið að skipta sér of mikið af lífi okkar?
Og er ekki allt of niður njörvað hvernig allir eigi að vera?
Og eru bara ekki allt of margir sem passa ekki inn í þetta smáborgaralega mynstur okkur og kikna undan þeim kröfum?
Bara út af kreddum okkar hinna?
-------------------
Ég er ágætlega málkunnugur manni er vinnur eitt af þeim störfum í þjóðfélaginu sem minnst eru metin.
Auk þess að mæta alltaf stundvíslega, vinnur hann sitt starf óaðfinnanlega, eins og eftirlitsmaðurinn í Brekkukotsannál.
Þessi maður á sitt húsnæði, sinn bíl og skuldar engum hvorki af íbúð né öðru.
Þau hjónin hafa komið börnum sínum ágætlega til manns og eru orðin afi og amma.
En hafa lágmarks skólagöngu, litlar tekjur, eyða litlu og lifa ágætu og innihaldsríku lífi.
Samkvæmt skilgreiningu neysluþjóðfélagsins er þetta prýðilega fólk, lélegir neytendur eða lúserar.
Sigurvegararnir eru hins vegar þeir sem luku löngu námi og höfðu lánstraust til að skuldsetja sig.
Og hafa "fjárfest" í dýru húsnæði, bílum og nær öllu því sem neysluþjóðfélagið hefur auglýst til sölu.
Og hefur sífellt liðið ver og ver þó þeir hafi aðeins skuldsett ævitekjurnar nokkrum sinnum.
Til að geta litið glaðan dag er það ekkert smáræði sem maður á að kaupa en vantar ekki.
--------------------
Framangreindur málkunningi þykir af fordómum síns þjóðfélags vera maður einfaldrar gerðar með einföld áhugamál.
Allt sem hann hefur gert, eða sagt, finnst mér hins vegar ákaflega skynsamlegt og hafa gagnast vel.
Undanfarin ár hefur mér ekki þótt það sama gilda um þjóðfélagið er metur þennan mann lúser.
Dramb er falli næst, var sagt í heimahéraði okkar kunningjanna.
Ég ber djúpa virðingu fyrir þessum manni en ekki þjóðfélagi hans eða stjórnendum þess.
![]() |
Slóð afbrota félagslegra lúsera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2012 | 11:15
Eðlileg veikindi.
Sá sem verður of upptekinn af öllum þeim hörmungum sem bjóðast í lífinu.
Verður á endanum ekkert nema brjálaður, annað hvort tímabundið eða varanlega.
Í þessum efnum er það alveg nægilegt andlegt álag að vera starfandi flugstjóri.
Sé viðkomandi einnig stöðugt með böggum hildar eftir flugránin og árásina á turnanna í New York.
Og takist ekki að sefa sig sjálfur, eða leita sér hjálpar, eru þetta eðlilegar afleiðingar.
Þekkt er t. d. meðal læknanema, í öllu prófálaginu, að þeir "veikist" af sjúkdómum er þeir lesa um.
Sjálfur verð ég "veikur" af öllum þeim sjúkdómum sem ég les um.
Lýsingin byrjar yfirleitt á því sem ég þjáist einmitt af þá stundina.
Þreytu, mæði, slappleika, lystarleysi, fölva, verkjum, hér og þar eða alls staðar.
Þegar frúin varð ófrísk, bætti ég á mig mittismáli henni til samlætis.
Hún varð svo léttari en ég er enn með ístruna.
Ætti kannski að fara í sónar?
Til viðbótar fæ ég svo yfir höfuðið þegar ég sé Jóhönnu, Össur eða Steingrím í sjónvarpinu.
En ef þau eru svo frísk að geta verið ráðherrar.
Og ekkert hefur heyrst um að almenningur hafi stokkið á þau og yfirbugað eins og flugstjórann.
Eða að lögreglan hafi réttilega ekið þeim á viðeigandi stofnun.
Þá er það greinilega ég sem þarf að láta líta betur á mig.
Steingrímur hefur aldrei logið neinu, Össur aldrei bullað og Jóhanna heyrði það sem henni var sagt og man það.
![]() |
Farþegar yfirbuguðu flugstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2012 | 10:53
Schengen heimboðið til glæpamanna.
Í síðustu mótmælum, við Alþingi, hafði lögreglumönnum verið skipað að taka okkur almenning tali til að róa okkur.
Í spjalli mínu við lögreglumenn fór ég að kvarta yfir veru okkar í Schengen eins og ég hef gert s. l. áratug.
Lögreglumenn gerðu ekki annað en að staðfesta allt sem ég hélt fram um áhrifin af Schengen vistinni.
Og bættu við það, m. a. að þeir þekktu hreinlega baltneska glæpaforingja hérlendis.
Sem gerðu ekkert nema skipuleggja hér glæpi og lögreglan yrði að gjöra svo vel að fylgjast aðgerðalaus með.
Ekkert hægt að gera til að reka glæpaforingjanna úr landi, menn sem aldrei áttu að fá að koma.
Má mikið vera ef Alþingi veitir þeim ekki ríkisborgararétt einn daginn ef það er þá ekki búið.
Svo getur forsetinn smellt á þá fálkaorðu fyrir að vinna að menningartengslum milli landa.
Okkar fullkomlega duglausu alþingismenn hafa ennþá ekkert gert í þessum málum sem dugar.
Meira að segja Frakkar, ein af stoðþjóðum ESB, er að hugleiða að ganga úr Schengen.
Bretar og Írar fóru aldrei í Schengen.
En Ísland er eins og ólæst hús að nóttu.
![]() |
Tveir í gæsluvarðhaldi hvern dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2012 | 00:52
Augljóslega skotinn af því að hann var svartur.
Zimmerman, sá sem skaut, hefur komist í kast við lögreglu, út af erfiðum skapsmunum sínum.
Hann fékk ekki inni í lögreglunni og fór í staðinn offari í nágrannavörslunni.
Hafði tilkynnt lögreglu, í ótal skipti, um grunsamlegar mannaferðir.
Í öllum tilfellum voru hinir "grunsamlegu" svartir.
Þegar Zimmerman tilkynnti lögreglu um Trayvon Martin, fékk hann skýr fyrirmæli um að elta ekki Martin.
Zimmerman gerði það engu að síður og vitni heyrði Martin kalla á hjálp, rétt áður en Zimmerman skaut hann.
Af stuttu færi í höfuðið og Zimmerman sagði lögreglu að það hefði verið í sjálfsvörn.
Í sjálfsvörn sagði maðurinn sem lögreglan var nýbúinn að skipa að koma ekki nálægt Martin.
Fylkislög í Flórida heimila slíka sjálfsvörn ef Zimmerman væri að segja satt, að Martin hefði ráðist á hann.
Nú skoða alríkisyfirvöld hins vegar hvort Zimmerman hafi brotið alríkislöggjöf Bandarikjanna.
Samkvæmt þeim eru það grundvallarmannréttindi að vera á almannafæri svo sem götu eða gangstétt.
Og lögbrot að veitast að einstaklingi, eingöngu vegna kynþáttar, til að hindra hann í að njóta þess réttar.
Zimmerman er því engan veginn sloppinn við réttvísina ennþá.
Eftir að hafa lesið nokkrar þarlendar fréttir af málinu.
Er ég ekki í nokkrum vafa um að Trayvon Martin væri á lífi ef hann hefði verið hvítur.
Og Zimmerman er frekar seinheppinn að dómsmálaráðherrann og forsetinn skuli vera svartir.
Báðir lögfræðingar og þar ofan á fluggáfaðir báðir tveir. Og með alveg sérstakan áhuga á þessu máli.
Með það sama er lögreglan, í Flórída, líka seinheppin en einnig fleira.
Vitnið sem heyrði Martin kalla á hjálp, segir að lögreglan hafi reynt að gera sem minnst úr þeim framburði.
Þeir sem eru að ráðast á einhvern eru yfirleitt ekki, á sama tíma, að kalla á hjálp, eða hvað?
Og nú hafa allir þeir sem komu að málinu, á byrjunarstigi, verið leystir frá því.
Vonandi fer Zimmerman í fangelsi, því þar á hann að vera.
Hitt er að Zimmerman er ekki bara fórnarlamb sinnar eigin heimsku.
Lögin þarna eiga einnig sinn þátt:
(Reuters) - On June 5, 2006, not long after Florida enacted the first "Stand Your Ground" law in the United States,
unarmed Jason Rosenbloom was shot in the stomach and chest
by his next-door neighbor after a shouting match over trash.
http://www.reuters.com/article/2012/03/24/us-usa-florida-shooting-law-idUSBRE82M19V20120324
![]() |
Dauði hans var ekki án tilgangs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.3.2012 | 23:55
Flokkshænsnin missa stélfjaðrirnar - Lilja segir sannleikann.
Lilja Mósesdóttir er löngu orðin þjóðargersemi fyrir að segja fólki sannleikann.
Hún fletti ofan af AGS/icesave svikráðunum.
Hún hefur flett ofan af svikráðum þessarar ríkisstjórnar.
Og nú er svo komið að öll flokkshænsnin tryllast í Samfylkingunni, ef þau aðeins heyra nafn hennar.
Að sjálfsögðu er það svo að gengi íslensku krónunnar er enn of hátt skráð.
Og það er það sem seðlabankastjóri á við með gervilífskjörum.
Einnig eru þeir alþjóðlegu fjárglæframenn sem hér eiga aflandskrónur alveg að tapa sér, eða búnir að því.
Þeir vilja komast með þær burt, í erlendum gjaldeyri, áður en gengið á krónunni hrynur meira.
Þjóðarsvikin eru svo að Seðlabankinn sé að ríkistryggja eigur þessara fjárglæframann.
Með því að skipta við þá á skuldabréfum þeirra, í krónum, og láta þá fá ríkistryggð bréf í staðinn.
Það sýnist nú vera siðferðileg landráð, og einnig samkvæmt lögum, en um það þarf að spyrja að leikslokum.
Eins og að íslenskum skattgreiðendum beri einhver skylda til að tryggja gjaldeyrisbrask óviðkomandi aðila.
Þó að þeir hafi verið að braska með íslenskar krónur er fráleitt að íslenska þjóðin eigi að bjarga þeim vandræðum.
Stiglitz nóbelsverðlaunahagfræðingur lagði það til árið 2001, að við skattlegum yfirfærslur þessara aðila.
Þannig að Lilja Mósesdóttir hefur hans ráð, á bak við sig, þegar hún flytur tillögur um það sama.
Verði gjaldeyrishöftin felld niður, í einni svipan, munu krónubraskarar ryðjast burt með allan okkar gjaldeyri.
Og íslenska krónan mun þá aftur falla um annað eins og síðast.
Okkur gæti bara ekki verið meira sama þó að braskarar brenni hér inni með sínar krónur.
Og hárrétt að "þjóðnýta" þann ósóma með eins hárri skattlagningu og mögulega er heimil.
Það þarf að rannsaka, allt til heimsenda, hvar þeir hagsmunir liggja.
Og tengsl krónubraskara við þá stjórnmálamenn sem vilja afnema gjaldeyrishöftin.
Og einnig hvers vegna í dauðanum íslensk VINSTRI ríkisstjórn gengur erinda alþjóðlegra krónubraskara.
Það heitir að það sé samkvæmt ráðleggingum AGS sem er það sama.
Þetta að bjarga krónubröskurum með því að ríkistryggja þá með bréfum frá Seðlabanka Íslands.
Lilja segir okkur íslensku þjóðinni þennan óþægilega sannleika.
Og von að flokkshænsnin í VG, og Samfylkingunni, missi stélfjaðrirnar af tryllingi.
Það er hins vegar ábyrgt hjá Lilju sem alþingismanni, að segja ekki berum orðum að gengi krónunar sé rangt skráð.
Enda ekki út um séð um það, ef búið væri að hirða aflandskrónurnar í skatta eins og hún leggur til.
Fái ríkisstjórnin að ráða munu braskarar að lokum, fá allt sitt með fullum skilum, bara falið í evruumbúðum.
Fái hluti af stjórnarandstöðunni að ráða munu braskararnir fá allt sitt og það strax.
Hvor leiðin sem farin verður, fær þjóðin að blæða.
Spurning hvort að hluta hennar blæði út og hinn hlutinn flytji út.
Hitt liggur fyrir að flokkshænsnin eru að fríka út.
![]() |
Verið að tala niður gengi krónunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2012 kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2012 | 18:01
Byrjar nú kjördæmapotið.
Endalausar fréttir um að sjúkrahúsin eigi ekki fyrir nýjum tækjum, launum eða öðru.
Og þessi vindhani er byrjaður að ýja að jarðgöngum í hvern hól.
Ekki sjáanlega að batna neitt blessuðum.
![]() |
Jarðgöng fyrir veiðigjald? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2012 | 14:38
Eins og í Norður Kóreu.
Bergur Kristinsson ætti þá einnig að lesa bókina; Engan þarf að öfunda eftir Barböru Demick.
Þar er því lýst hvernig kommúnista glæpastjórnin reyndi að hlaða sem mestu undir höfuðborgina Pyongyang.
Sem var eiginlega eini staðurinn sem útlendingar máttu sjá.
Landsbyggðin mátti svo vera gettó en þau voru samt meira stéttaskipt en búast mátti við.
Einnig "skemmtileg" lýsing á skefjalausri forræðishyggju ríkisstjórnarinnar þarna.
Sem minnti alveg feikilega á þau Jóhönnu, Össur og Steingrím.
Þau gætu einnig tekið upp slagorðin frá þeim Kim feðgum:
VIÐ GERUM EINS OG FLOKKURINN SEGIR.
Svo voru viðbrögð stjórnvalda í Norður Kóreu við hungursneiðinni í lok síðustu aldar.
Ósköp svipuð og ríkisstjórnarinnar hér eftir hrunið.
Á báðum stöðum lét ríkisstjórnin sem ekkert væri þó að fólk stæði í biðröðum eftir mat.
Lýsingar í fjölmiðlum, Norður Kóreu, á ástandinu í því yfirburða ríki.
Minna einnig mjög á lýsingar fréttastofu RÚV af dýrðinni í Evrópusambandinu.
Þetta er kannski allt að koma Steingrímur?
Hér má sjá fréttaskýringaþátt RÚV um ESB:
http://www.youtube.com/watch?v=sUvYVZvGUC0&feature=related
![]() |
Býr til gettó á landsbyggðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.3.2012 | 09:45
Áburðartankurinn er fyrirstaðan.
Það er stórkostlegt að þristurinn sé enn í flughæfu ástandi.
Og alveg frábært ef Þristavinafélaginu tækist að gera hana aftur að farþegavél.
Þegar áburðartankurinn var settur í vélina þegar hún varð landgræðsluvél.
Þá skilst mér að tankurinn hafi að einhverju leyti orðið hluti af burðarvirki vélarinnar.
Og ekki einfalt, eða ódýrt, að breyta því aftur.
Stórkostlegt ef það tekst og snilldarviðbót við ferðaþjónustuna.
Það er nefnilega alveg þorandi að fljúga með gömlum vélum í umsjón íslenskra flugvirkja.
En ekkert sem menn ættu að gera í þriðja heiminum, þar sem litlir aurar eru í viðhaldið.
Af vanefnum eru flugvélar þar samt sem áður stimplaðar flughæfar af þarlendum flugvirkjum.
Og slysatíðnin eftir því.
Landflestum afrískum flugfélögum er bannað að fljúga til Evrópu út af slælegu vélaviðhaldi.
![]() |
Þristinum breytt í farþegavél |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2012 | 00:13
Við eigum að borga 13 miljarða á ári til ESB.
Það var alveg dæmalaus ósvífni að birta þennan pistil ESB á besta tíma, gagnrýnislaust.
Eitt var þó gott við hann þrátt fyrir allt.
Þarna var staðfest það sem fleiri en ég hafa haldið fram.
Að ásókn ESB til Íslands er til að við megum deila með þeim byrðinni af innlimun Austur Evrópu.
Þangað fara dreifbýlisstyrkirnir í raun og veru, auk Spánar og Portúgal.
Okkar endurgreiðslur eru aðeins feluleikur og miklu lægri upphæðir.
Síðustu blaðafregnir voru um að við eigum að greiða ESB 13. miljarða á ári.
Samfylkingarforystunni hefur ekki með nokkru móti tekist að finna því stað með gögnum.
Að við fáum það allt til baka í styrki og jafnvel meira til.
Það var þá trúlegt að frú Merkel sem er með doktorspróf í kjarneðlisfræði.
Sé svo vitlaus að ætla að gefa okkur miljarða á ári.
Hún er einmitt nýbúin að segja að sjóðir Þjóðverja séu ekki óþrjótandi.
En það er nú reyndin, hér heima í héraði, samkvæmt útreikningum frú Jóhönnu Sigurðardóttur.
Sem lærði vélritun og prósentureikning í sjálfum Verzlunarskólanum við Grundarstíg.
Það var þá sem hún fór að hata íhaldið, þegar hún sá að þeir seldu allt með álagningu.
Þegar frú Merkel var að hamast í doktorsnáminu, við að hanna kjarnorkuver, með handvirkum reiknistokk.
Þar var Jóhanna sko að læra á rafmagnsreiknivél, fyrir verzlunarprófið, um álagningu vondra kaupmanna.
Og í fyrra sumar fór Jóhanna sjálf til Þýskalands með alla sína strimla úr reiknivélinni góðu.
Á hverjum stóð hversu mikla styrki hún ætti að fá, og gjöra svo vel að borga í evrum takk.
"...ich muß mich nicht für isländisch kronur geselbe, vielen danke frau Merkel..."Því næst útskýrði Jóhanna svo gott gengi á Evrópusambandinu og sér í lagi á evrunni.
Það var þá sem frau doktor Merkel missti lystina á pylsum sínum og súrkáli.
Setti á röð neyðarfunda um evruna sem síðan hafa staðið linnulaust.
Ekki hefur heyrst af hvenær súrkáli verður næst boðið í kanslarahöllina eða í súrkál.
![]() |
Björn sakar RÚV um áróður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2012 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)