Fyrir okkur eða ESB?

Ekki hef ég séð því mótmælt að Þóra Arnórsdóttir sé samfylkingarkona.

Og ekki ætla ég að mótmæla því að Þóra sé afbragðskona sjálf eins og margir aðrir í því útibúi ESB á Íslandi. 

En nú um stundir getur það ekki gengið að Samfylkingin og ESB séu með forsetaembættið á sínum vegum. 

Samfylkingin sem með skefjalausu ofbeldi hefur klofið þjóðina í herðar niður. 

Samfylkingin sem í umboði mikils minni hluta kjósenda ætlar með nauðung að troða þjóðinni inn í ESB. 

Samfylkingin sem er trúarhreyfing sósialdemókrata sem ekkert gefur fyrir rök eða raunveruleika. 

Samfylkingin sem leidd er af fólki sem afneitar algerlega raunveruleikanum í Evrópu. 

Afneitar bæði stöðu mála í Evrópusambandinu sjálfu og evrunnar. 

Afneitar því ,að ekkert land fær neinn "samning" við Evrópusambandið.

Það heitir tímabundnar undanþágur í aðlögunarskyni.  

Eftir það er allt vald farið út úr landinu á þeim sviðum ríkisvaldsins er sambandið tekur til.

Ekkert er vitað um þróun Evrópusambandsins í framtíðinni. 

Sagan sýnir óhrekjanlega að engan gat órað fyrir þeim völdum sem Evrópusambandið hefur tekið sér. 

Allar fullyrðingar um að hægt sé að treysta óbreytileika samninga við Evrópusambandið eru óráðshjal. 

Sama gildir um stofnsamninga Evrópusambandsins.

Að treysta slíku sambandi, fyrir fiskveiðiauðlindum Íslendinga, jaðrar við sjálfsmorð þjóðríkisins.

Sem er reyndar bæði stefna Samfylkingarinnar og Evrópusambandsins sjálfs. 

Að Evrópa verði eitt ríki með einni þjóð sem skipti auðlindum landanna á milli sín. 

Kratarnir halda að þar sé átt við jafnt á milli allra.

Evrópusambandsstjórar vita að þeir eiga að skipta auði landanna á milli yfirstéttarinnar í Mið-Evrópu.

Eins og Íslendingar fengu að kynnast á árunum frá 1262 af hendi konunga og aðals.

Og alveg þangað til við náðum að koma Evrópubúum út úr 200 mílna fiskveiðilandhelgi. 

Og enn einu sinni fengum við að reyna það af bankareglunum sem ESB sendi okkur. 

Sumir eru fljótir að gleyma aðra skiptir það engu máli. 

Enn aðrir hafa vart við að trúa því sem evrópuaðallinn hefur logið að okkur í einhver 1000 ár.  

En fulltrúa ESB á Bessastaði? 

Nei takk. 

 


mbl.is Kurteisi að íhuga framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef við göngum ekki úr Schengen missum við þessa ímynd.

Matt Long dásamar fáa glæpi hérlendis og hversu öruggt fólk sé hér. 

Það er því miður ímynd sem á eftir að hrynja innan tíðar. 

Þegar ítalskir verktakar voru með hópa af glæpamönnum í vinnu við Kárahnjúka.

Voru hér nokkrar nauðganir framkvæmdar af hópi manna sem fórnarlömbin töldu erlenda menn. 

Nauðganir sem jafnvel áttu sér stað á stúlkum er gengu eftir Laugaveginum. 

Nauðganir sem aldrei hafa verið upplýstar.

Stjórnvöld hafa hreinlega viljandi flutt inn glæpamenn frá ýmsum löndum Austur Evrópu. 

Ekki gripið til neinna gagnlegra ráðstafanna til að hindra þann innflutning nema þeirra sem eiga mótorhjól.  

Af því að það passar við evrópuferlið, að allir Evrópubúar eigi að vera ein stór fjölskylda í sameiginlegum búskap. 

Taka upp sameiginlega mynt, sameiginleg ríkisfjármál og að allir megi valsa inn á gafl, hver hjá öðrum.

Og evrópustefnan hefur tekist með þeim hætti að stúlkunum okkar er ekki óhætt. 

Lögreglumönnunum okkar er ekki óhætt. 

Hvorki fólkinu sem gengur Laugaveginn er óhætt né verslunarfólkinu innandyra.  

Glæpir hafa aukist og eru orðnir verri og af áður óþekktri gerð. 

Og stjórnarherrarnir sitja sjálfir undir lögregluvernd.  

Glæsilegt eins og annað á þeim bænum.  


mbl.is „Það sem ég hefði viljað vita “
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurður yrði frábær biskup.

Sigurður Árni Þórðarson er yfirburða predikari og yrði frábær biskup.

Hann lauk guðfræðinámi við HÍ, með ágætiseinkun.

Þá meistaraprófi í guðfræði- og heimspekisögu og doktorsprófi í trúfræði og heimspeki vesturlanda.

Sigurður nam einnig í Þýskalandi og Noregi og hefur starfað á biskupsstofu og verið skólastjóri í Skálholtsskóla. 

Sigurður var fræðslustjóri á Þingvöllum, hefur kennt við Guðfræðideild og kennt leikmönnum Þjóðkirkjunnar.

Hann hefur verið fulltrúi Þjóðkirkjunnar erlendis, kirkjuþingsmaður og staðið fyrir fjölbreytilegu trúarlegu  starfi.  

Til dæmis framkvæmdastjóri fjölþjóðlegrar ráðstefnu um trú og vísindi sem haldin var hérlendis árið 2000.

Öll þessi frábæra undirstaða auk prestsstarfanna er ávísun á að Sigurður yrði frábær biskup. 

Sigurður hefur allt til að bera til að leiða Kirkjuna á þessum miklu breytingatímum. 

Þar sem Kirkjan þarf að fóta sig inn í framtíðina undir traustri handleiðslu með víðsýni og þekkingu að leiðarljósi.  

Engu skiptir, á þeirri vegferð, hvors kyns biskupinn er að breyttu breytanda. 

Að kjósa einhvern, aðeins af því að hann sé karlmaður eða kvenmaður, er fráleitt sjónarmið. 

 


mbl.is Skýrt kall eftir breytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir forskrift ESB eða þjóðarinnar?

Og blessaður búforkurinn hann Steingrímur minn.

Ekki vantar nú dugnaðinn í honum blessuðum.

Við allt nema að segja satt og að gera eitthvað gagn.  

Eins og venjulega er þetta frumvarp enn eitt svikráðið við þjóðina.

Samið samkvæmt skilyrðum um inngöngu í ESB.

Eins og farsinn um stjórnarskrána. 

Eins og svikasamningarnir um icesave. 

Og öll önnur svikráð þessarar ríkisstjórnar við þjóðina.

En ættingjar Steingríms eru búnir að selja sinn fiskveiðikvóta. 

Þannig að honum er slétt sama um þetta eins og annað.

En ráðherrastólinn. 

 


mbl.is Steingrímur býst við átökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki veitir af að gæta Steingríms vel.

Steingrímur J. Sigfússon veit að mennirnir eru að gæta hans.

Heldur að það sé til að frændi hans Leppalúði komi ekki og taki sig í pokann. 

Hjónin Grýla og Leppalúði eru í kjördæmi Steingríms og eiga ýmislegt vantalað við hann eins og aðrir.  

En raunar er gæslan til að þessi vingull fari sér ekki sjálfur að voða. 

Með því að ráfa eitthvað út í kuldann og myrkrið.  

Og þrasa sig þar dauðann við álfa og tröll.  

Eða ganga í björg á eftir huldumey. 

Frá ESB eða Kína. 

  


mbl.is Vakta heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og málið versnar.

Grein Höllu er kurteis, vinsamleg og trúverðug. 

Þar koma fram nýjar upplýsingar sem gerir málið enn verra og var þó nóg komið.  

Samúðarkveðjur til Guðrúnar Harðardóttur og fjölskyldu hennar.  


mbl.is Systir Guðrúnar svarar Bryndísi Schram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins forsmekkurinn af ofbeldi og yfirgangi ESB.

Þessi sami Steingrímur vissi allt um yfirganginn, í ESB, þegar hann var í stjórnarandstöðu. 

En ráðherrann Steingrímur er alveg hissa á óbilgirninni og vinnubrögðunum í makríldeilunni. 

Svona munu þeir einnig taka af okkur aðra fiskstofna ef við göngum í ESB.

Einhverjir aðlögunar samningar eru aðeins blekking.

Blekking sem aðeins verulega einfaldar sálir leggja trúnað á.

Steingrímur staðfestir það orðið daglega að hann sé fullkominn fáráður við landsstjórnina. 


mbl.is Ólíðandi að tengja ESB við makríldeiluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gangi henni allt í haginn.

Annars skil ég ekki fréttagildið í svona málum.

Hvað varðar okkur um kynhneigð fullorðins fólks ef hún beinist að öðru fullorðnu fólki? 

Oft hef ég lesið greinar eftir þessa stúlku til að sjá hvaða málefni eru þar á ferð.

Og lesið um málefnin án þess að hugleiða hvers kyns höfundurinn er. 

En á kynhneygð höfundar hef ég engan áhuga og varðar hreinlega alls ekkert um. 

En vondandi höndlar stúlkan sína hamingju og gangi henni persónulega allt í haginn. 

En að þetta teljist vera frétt, á árinu 2012, er merkilegra en fréttin sjálf.       


mbl.is Anna kom óvart úr úr skápnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En íslensku lífeyrissjóðirnir?

Eru þeir ekki í vandræðum með peninganna?

Hvers vegna geta þeir ekki fjárfest í kísilveri?   

Eða álveri?

Tekjurnar af álverunum og af allri slíkri framleiðslu, í erlendri eigu, fara úr landi.

Álverin á Íslandi eru ekkert annað en framlenging á nýlendutímanum. 

Þegar bláfátæk þjóðin mátti horfa á eftir verðmætum sínum í hendur útlendinga. 

Eins og ef ESB fær að veiða hér upp allan fiskinn.  


mbl.is Vill frekar fjárfesta í Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talaði svona um sátt eftir síðustu mótmæli.

Í hvert skipti sem Jóhanna Sigurðardóttir finnur að hún hefur gengið of langt. 

Eða komið upp um sjúklega heift sína, ofstæki og innræti sitt.  

Vaðið með of miklum ofstopa yfir samherjanna. 

Og komið upp um sig með lygi, þekkingarskorti og sannað að hún ræður ekkert við hlutverk sitt. 

Þá kemur alltaf sama gamla platan um sátt.  Eitthvað svo kunnuglegt aftur og aftur.

Manneskja sem aldrei hefur getað haldið sátt við sína eigin samherja, hvað þá heldur meir.

Manneskja sem síst af öllum vill nokkra sátt við einn eða neinn.

En vill hins vegar að við séum sátt við sig og sitt ofríki.  

Og því er fljótsvarað frú Jóhanna.

Við þig, og aðra tilræðismenn við efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, verður ekki gerð nein sátt.  

Nema um að losna við þig eins og aðrar plágur sem á þjóðinni hafa dunið.     

Og ef þú ferð ekki fljótlega ættirðu ekki að treysta á það heldur. 

Auðvitað ætti að vera hægt að reka þig burt úr landinu eins og gert var á þjóðveldisöld.

Við fólk eins og þig sem reyndu að skaða sitt samfélag. 

Eða að virða leikreglur þess fullkomlega að vettugi.

Hver gaf þér heimild til að sækja um aðild að Evrópusambandinu?

Ekki var það meirihluti þjóðarinnar eða stjórnarskráin.

Það var ekkert annað en skefjalaust ofbeldi að flokkur með fjórðungs fylgi skyldi leyfa sér slík svikráð.

Það voru siðferðileg landráð og það á kostnað þess hluta þjóðarinnar sem kom verst út úr kreppunni.

Og það verður þér ekki fyrirgefið Jóhanna.  Eða liðneskunni Steingrími sem lét undan ofbeldi þínu.

En sem betur fer fyrir ofbeldisfólk, eins og þig Jóhanna, erum við meirihlutinn það ekki. 

Við viljum stjórna með lögum sem byggjast á vilja meirihluta þjóðarinnar. 

Og nú bíðum við bara róleg eftir að þú tapir næstu kosningum. 

Og þá gleymum við þér eins og hverri annarri landfarsótt eða kýlapest.


mbl.is Vill þjóðarsátt um gjaldmiðil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband