Í Reykjavík vantar lýsingu.

Nú kemur í ljós að landfræðingur, og leiðsögumaður, segir ljós, og birtu, vera mengun í einhverjum tilfellum. 

Eða oflýsing, t. d., þegar hann sjálfur er að skoða stjörnur eða taka ljósmyndir af norðurljósunum.

Og hann skoðar upplýsingu himinsins yfir Reykjavík og ber saman við tvær borgir í Evrópu.

Og segir að lýsingin í borginni trufli næturdýr eins og fram kemur, í ágætri BS ritgerð.

Eins og þau eigi ekki að vera úti í sveit eða hvað?  

Ef eitthvað er, þá fer lýsingin hér í Reykjavík hraðversnandi. Það var ekki besta lýsingin sem Gnarrinn átti við. 

Aukinn trjágróður hefur sums staðar yfirgengið þá litlu lýsingu sem fyrir var.

T. d. á göngustígum, almenningsgörðum og húsagötum.

Segi einhver að hér sé of mikil lýsing, er það eins og hver önnur vitleysa bara, enda vel tekið af stjórnvöldum.    

Það sést einmitt vel, eða öllu heldur illa, nú í rigningu og myrkri. 

Þar sem 80% gangandi vegfaranda eru rækilega dökkklæddir eins það sé fyrirskipað í reglugerð.

Án endurskinsmerkja. Og maður þakkar fyrir aka ekki yfir neinn á hverjum degi sem Drottinn gefur yfir.  

Vel má hins vegar taka undir sjónarmið um að bæta skermingu þannig að lýsing verði hnitmiðaðri.

Og það er hárrétt, hjá landfræðingnum að of mikið af birtunni fer til spillis, engum til gangs.  

Og það er allt í lagi að þessi stjörnuskoðunarmaður, úr Hafnarfirði, vilji að Reykvíkingar sitji í meira myrkri. 

Svo að hér verði kannski einhver ákjósanleg skilyrði til stjörnuskoðunar eða norðurljósa.  

Hann má alveg hafa sínar skoðanir eins og aðrir og skrifa um þær lærðar ritsmíðar.  En svarið er einfalt. 

Það kemur bara alls ekki til greina og ég skil ekki að Hafnfirðingar vilji paufast í myrkrinu frekar en við.  

Stjörnuskoðunarmenn verða bara að hafa sig út fyrir borgina og næturdýrin líka. 

Og bjóða þeim Svandísi og Merði með sér er mættu týnast þar í myrkrinu fyrir mér. 

Góða ferð samt og muna eftir nestinu.  

BS ritgerðina má sjá hér: http://skemman.is/handle/1946/8485

Að mínu mati góð, nýstárleg og fræðandi ritgerð, þó ég neiti að sitja í meira myrkri hér í borginni.  


mbl.is Ljósmengun mikil hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég hissa.

Það eru engar fréttir að talað sé við Steingrím J. Sigfússon, né að hann hafi sínar skoðanir eins og gengur.

Hitt eru firn mikil.  Að hann virki í viðtalinu með réttu ráði. 

Ekkert bull, engin lýgi, ekki í mótsögn við sjálfan sig.

Ja mikill er andskotinn, vona að hann taki nýju meðulin áfram.  


mbl.is Á ábyrgð Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fölsun Össurar.

Össur Skarphéðinsson er ekki af baki dottinn í að blekkja Íslendinga til inngöngu í ESB.

Alþingi hefur allar stjórnskipulegar heimildir til að setja lög á Íslandi, með atbeina forseta. 

Skiptir þá engu hvort þau lög eru samin í Reykjavík eða Brussel.

Séu lögin sjálf, eða einstakar greinar þeirra, í andstöðu við stjórnarskrána.

Munu dómstólar einfaldlega víkja þeim til hliðar í úrlausnum sínum. 

Alþingi getur því samþykkt alla lagabálka Evrópusambandsins ef út í það er farið.

Þær þjóðir sem eru innan Evrópusambandsins hafa hins vegar framselt lagasetningavald til ESB. 

Á þeim sviðum sem samstarfið í Evrópusambandinu tekur til. 

Löggjöf Evrópusambandsins verður því sjálfkrafa að lögum í þeim löndum.

Án þess að þjóðþing, ESB landanna, þurfi að samþykkja þau lög. 

Það er algerlega öfugt við það sem er í EFTA löndunum Íslandi, Noregi og Liechtenstein. 

Samstarfið um evrópska efnahagssvæðið, EES, er einmitt þannig að þjóðþing þessarra landa. 

Þurfa að samþykkja (innleiða) öll lög sem frá Evrópusambandinu kemur.

Eða að lægra sett stjórnvöld geri það með setningu reglugerða eða slíkra bindandi lagafyrirmæla.

Hér er þó ekki hálf sagan sögð. 

Það er ekki aðeins að Evrópusambandið, hafi eitt á sinni hendi, lagasetningarvaldið á þess sviðum.

Lög Evrópusambandsins hafa einnig forgang fram yfir lög aðildarlandanna sjálfra. 

Og það er einmitt þetta tvennt sem íslenska stjórnarskránin heimilar ekki. 

Hvorki framsal lagasetningarvaldsins til ESB og þess þá síður þessi forgangsáhrif á innlenda löggjöf. 

Íslenski stjórnarskrárgjafinn getur að sjálfsögðu breytt íslensku stjórnarskránni.

En þess þarf alls ekki vegna samstarfs okkar á Evrópska efnahagssvæðinu, það er blekking að halda því fram.  

Þá laug Össur Skarphéðinsson, einnig blákalt að þjóðinni að betra væri að vera innan ESB.

Svo að við gætum þá einnig nýtt neitunarvald okkar innan sambandsins.   

Þetta er einnig blekking. 

Engin þjóð í ESB hefur neitunarvald um lagasetningu sambandsins.    

Ísland hefur einmitt neitunarvald til að neita að taka upp lagareglur frá ESB á grundvelli EES samningsins. 

Héldum við svo áfram að neita að innleiða lagareglurnar, eða aðlaga, í íslensk lög (landsrétt).

Þá værum við í reynd að segja EES samningnum upp, með þeim hætti.

Í reynd gætum við ekki sagt upp ESB samningnum, værum við komin þar inn.

Væri neitunarmálið einstakt og smávægilegt en ekki viðvarandi neitun á að taka upp allar reglurnar. 

Þá fengjum við að þvæla um málið og kjósa um það endalaust í sameiginlegu EES nefndinni.

Þar til við segðum, á endanum, með einhverjum hætti já. 

Íslendingar fengju 6 þingmenn af 751 á Evrópuþinginu og við hefðum engin frekari áhrif en nú er.

Svokölluð sameiginleg EES nefnd starfar á vegum ESB og EFTA. 

Sömuleiðis sameiginleg EES-þingmannanefnd með þingmönnum af Evrópuþingi og þjóðþingum EFTA landa. 

Þá á Össur sæti í svokölluðu EES ráði sem ég vona að hann viti af. 

Þar sitja utanríkisráðherrar EFTA landa og hluti af helstu ráðamönnum ESB ríkja og sambandsins sjálfs.

Í öllum þessum nefndum geta Íslendingar, eins og aðrar EFTA þjóðir, reynt að hafa áhrif í ESB. 

Í svokallaðri framkvæmdastjórn ESB værum við ekki með framkvæmdastjóra að staðaldri.  

Undanfarið hafa menn svo getað fylgst með þeim kanslara Þýskalands og forseta Frakklands halda einkafundi um evruna. 

Það lýsir prýðilega valdaþráðum ESB í reynd.

 


mbl.is Setja þarf tappa í innleiðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskupskjör er með öllu óþarft.

Hann Steingrímur ætlar að bæta því á sig.

Blessaður dýrðlingurinn, það ætti nú við.  


mbl.is Biskupskjörið undirbúið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB reglurnar eiga sök á hruninu.

Öll okkar bankalöggjöf kom frá ESB í gegnum EFTA samstarf okkar um evrópska efnahagssvæðið EES.

Ríkisstjórnin vissi ekki, og mátti ekki vita, hverjir voru lántakar í bönkunum. 

Seðlabankinn vissi ekki, og mátti ekki vita, hverjir voru lántakar í bönkunum. 

Fjármálaeftirlitinu bar að vinna eftir blekkjandi ESB reglum, hvað teldust tengdir aðilar. 

Þannig að sami frakkinn á sama manninum komu hvor öðrum ekkert við, og voru ótengdir aðilar. 

Lántakandinn, eigandi frakkans, var því ekkert tengdur frakkanum eða hans lánum.

Þess þá síður vösum frakkans eða þeir hvor öðrum, enda allir sjálfstæðir lögaðilar nema eigandinn. 

Enginn þeirra hafði neitt með skuldir hins að gera samkvæmt skilgreiningum ESB.   

Það var ekki leyndarmál að allir áttu þeir svo hlutabréf í bönkunum.

En kúlulánin sem þeir fengu til að kaupa hlutabréfin voru auðvitað leyndarmál.

Frakkaeigendurnir voru svo saman í viðskiptablokkum sem einnig voru ótendir aðilar í reglum ESB. 

Á endanum skildi svo enginn neitt í neinu, ekki einu sinni frakkaeigendurnir sjálfir. 

Hvað þá okkar eigin, hagfræðimenntaði forsætisráðherra, Geir Haarde sem ekki mátti vita neitt.

Og því síður Inggjaldsfíflin Össur og Jóhanna sem sátu í ríkisstjórn þessa sama Geirs Haarde. 

Samt vilja þau fá fleiri reglur frá ESB sem þau skilja ekkert frekar en hinar.

Stefnan er, að því fleiri reglur sem þau skilja ekki, því betra, enda fífl hvort sem er. 

Mætti ég þá frekar biðja ítalska skipstjórann Francesco Schettino að stjórna landinu, var hann ekki að losna út?   

Hann er í ESB, er það ekki nægjanlegt? 


mbl.is Segir greinina bull og þvætting
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kommúnistar eru á móti lýðræði í öllum myndum.

Við megum þakka fyrir ef Steingrímur reynir ekki að fresta næstu alþingiskosningum eins og Castró um árið.

Það þurfti því engin að búast við að loforð frá því á aðventunni, yrðu haldin nú undir þorra. 

Loforð og sannleikur eru ekkert að þvælast fyrir kommúnistum hvorki fyrr né síðar. 

Í gær reyndi gamli kommúnistinn Össur Skarphéðinsson að ljúga að þjóðinni. 

Að hún fengi einhvers konar neitunarvald ef hún væri innan Evrópusambandins.

Íslendingar munu engin frekari áhrif hafa á löggjöf ESB, en nú er í gegnum samráð EFTA og ESB.

Eina neitunarvaldið hafa Íslendingar einmitt nú þegar, þar sem við getum hvernær sem er. 

Hætt að innleiða löggjöf Evrópusambandins og erum þar með hætt í EES samstarfinu. 

Eftir að við værum komin inn í ESB gætum við ekki neitað einu, eða neinu, upp á okkar einsdæmi.

Annað er fölsun á staðreyndum.

 


mbl.is „Gunguskapur stjórnarflokkanna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var leitt.

Þá koma færri krónur í ríkiskassann, varð mér hugsað er ég sá fyrirsögnina.

En svo er þetta bara erlend leikkona en samt Nicole Kidman

Og barátta hennar fyrir mannréttindum kvenna um allan heim er virðingarverð.

Eitthvað sem ég hefði vilja sjá til okkar utanríkisþjónustu frekar en ESB dýrkun.

Það er komið árið 2012 og samt megum við frétta um umskurð kvenna í þriðja heiminum.

Eitthvað það viðbjóðslegasta sem mannskepnan aðhefst í nútímanum.

Að taka litlar dætur sínar og umskera þær.  Og það oftast ódeyft jafnvel með skítugu glerbroti.

Þá er ótalin kúgun, misrétti, misþyrmingar og viðbjóðsleg dráp á konum í þriðja heiminum. 

Eða pyntingar eins og t. d. á stúlkunni í Afganistan sem ekki vildi leyfa eiginmanninum að selja sig.

Hneygjum okkur fyrir öllum berjast á móti mannlegum skepnuskap.   

 


mbl.is Hætt að drekka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var hann fullur eða dópaður?

Það verður fróðlegt að fylgjast með niðurstöðum blóðprufanna.

Maðurinn hlýtur að hafa verið undir áhrifum áfengis eða vímuefna.

Eða getur maður með æðstu skipstjórnarréttindi í ESB, verið svona vitlaus. 

Er það hægt?


mbl.is Skipstjórinn laus úr haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munu gereyða VG.

Á því er engin vafi að nýtt framboð Lilju Mósesdóttur mun gereyða Vinstri hreyfingunni - grænt framboð.

Ef Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson munu ganga þar ásamt öðru besta fólki vinstri manna. 

Fólk sem ólst upp við Stalín almáttugan eins Steingrímur, Árni Þór og aðrir gamlir kommúnistar og landráðamenn.

Á bara að láta sig hverfa úr íslensku þjóðlífi eins og hverjir aðrir skemmdaverkamenn.  

Svo er þarna í VG skínandi ágætt fólk eins og Katrín Jakobsdóttir.

Sem pólitískt flekað af Steingrími Jóhanni.

Því miður.  


mbl.is Nýtt framboð kynnt í febrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er afmælið líka þar?

Magga Danadrottning bauð í afmæli nú í vikunni, sem ég hélt að væri í Kaupmannahöfn.

Okkar drottning Dóra, fór í afmælið og leyfði Óla forseta að koma með sér. 

Til að halda á töskunum eftir að Össur fór að svíkjast um það, eins og annað. 

Nú vildi bara svo óheppilega til að flugfélagið átti ekki miða til Kaupmannahafnar nema í gegnum Abu Dhabi.

Heppni að fá miða yfirleitt, munar eiginlega engu í kostnaði, búið að borga yfirvigtina hvort sem er.

Auk þess þurftu þau Óli og Dóra ekkert að borga sjálf. 

Fyrir svona gallaðan flugmiða.

Þó nú ekki.    


mbl.is Ræddu jarðhitaverkefni Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband