17.1.2012 | 12:49
Það gerir Steingrímur ekki.
Á síðasta ári sagði Steingrímur mönnum úr sinni heimasveit.
Að hann væri Messías endurfæddur til að bjarga Íslendingum út úr kreppunni.
Og þetta var ekkert grín, maðurinn bæði meinti þetta og trúði því sjálfur.
Þetta er ekki fífl nema það sjáist á einhverju.
Hann stofnaði VG utan um sjálfan sig og er nánast þinglýstur eigandi VG.
Hann gerir bara það sem honum sýnist.
Og honum sýnist að selja sig fyrir ráðherrastól.
Ekkert annað kemst að.
Kosningaloforðin skipta engu máli.
Stefna flokksins skiptir engu máli.
Þjóðin skiptir engu máli.
Og sannanlega ekki þeir sem hann hafði að ginningarfíflum með sér í VG.
En nú eru góðhjartaðar sálir smá saman að átta sig svikunum.
Tími til kominn.
![]() |
Steingrímur íhugi stöðu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2012 | 07:43
Engu hægt að ljúga upp á ríkisstjórnina.
Klúður ríkisstjórnarinnar í launamálum Más Guðmundssonar hlýtur að slá allt út hjá Jóhönnu.
Aðalmál Jóhönnu Sigurðardóttur var að ná þessum bjargvætti til landsins með öllum lofum og lögum.
Að hann telji sig þurfa í dómsmál út af svikum Jóhönnu í launamálum hans.
Hlýtur að vera Íslandsmet í aulahætti einnar ríkisstjórnar.
![]() |
Vísa ásökunum á bug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2012 | 06:14
Ættu að sitja úti í sal með hinum.
Réttast væri að ráðherrar ættu ekki sæti á Alþingi.
En meðan svo er ættu þeir að sitja úti í sal með öðrum alþingismönnum.
Það að ráðherrar sitji við háborð í þjóðþinginu.
Undirstrikar aðeins að löggjafarvaldið er gólfþurrka framkvæmdavaldsins.
Alþingimenn undirsátar sem greiða atkvæði undir eftirliti ráðherranna.
Eins og "...kassadama í Bónus...", lýsti fyrrverandi þingmaður starfinu.
Við berum virðingu fyrir kassadömum en enga fyrir Alþingi.
Og fyrirlítum Steingrím.
![]() |
Steingrímur heldur sínum stól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2012 | 06:03
Ögmundur er það eina heila í ríkisstjórninni.
Eini ráðherrann með réttu pólitísku ráði.
Sem sér að slíkar ákærur munu enda í ógöngum.
Ef hver ný ríkisstjórin dregur þá næstu, á undan, fyrir Landsdóm.
Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur með illgirni og heift gert íslensk stjórnmál verri.
Mikil þjóðarblessun þegar við losnum við ruslaralýð eins og Steingrím Jóhann Sigfússon, úr stjórnmálunum.
![]() |
Rangt að ákæra Geir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.1.2012 | 05:52
Aftur í sjálfsblekkingunni.
Hélt að við hefðum lofað okkur eftir hrun.
Að hætta þessari vitleysu að eitthvað íslenskt væri best í heimi. Eða næstbest.
Bestu bankamennirnir, bestu viðskiptamennirnir, besta landið, besti borgarstjórinn o. s. frv.
Allt lýsir þetta minnimáttarkennd, heimóttaskap, fávísi og heimsku.
Hér getur eitt og annað verið í fremstu röð en aldrei best.
Flugstöðin er fráleitt með þeim bestu í heimi frekar en veðrið eða Besti flokkurinn.
Hönnunin er léleg, þar sem þessi eini flugvélagangur er alltof langur og án göngufæribanda.
Ekki var upphaflega gert ráð fyrir öðrum gagni og var það klúður í hönnun.
Auk þess sem flugvélagangurinn var svo lengdur eftir að Schengen vitleysan kom til.
Erlendir ferðamenn hafa því réttilega talið lengd flugvélagangsins vera stóran galla.
Flugstöðin er því fráleitt best, næstbest eða með þeim bestu frekar en annað hérlendis.
Bestu fíflin kæmist kannski nærri því.
A. m. k. á Alþingi.
![]() |
Leifsstöð næstbesta flugstöð í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.1.2012 | 05:27
Verkefnalausir alþingismenn eiga að hætta á þingi.
Þetta mál er ágætt dæmi um verkefnalausa alþingismenn með of mikinn frítíma.
Hluti þjóðarinnar á ekki fyrir mat, fötum, læknishjálp og tannlækningum.
Og í hverju er verið að spekúlera í þinginu?
Myrkravernd sem er það næst vitlausasta á eftir kynjagreindum fjárlögum.
Þetta fólk á allt að hætta á þingi, Mörður, Svandís, Sif og Þorgerður.
Mest aðkallandi vandamál þjóðarinnar er sem sagt að hér sé ekki nægilegt myrkur.
Jesús góður, von að landið sé á hausnum með svona hyski á Alþingi.
![]() |
Starfshópur um myrkravernd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2012 | 18:58
Snýst um sjáanlegan vilja til að hafa hlutina í fullkomnu lagi.
Annað hvort er stimpillinn á vörunni að hún sé hæf til manneldis eða ekki.
Að vona að allt sé í lagi eða búast við því, er bæði ólöglegt, ósiðlegt og forkastanlegt.
Sá sem flytur inn efni til manneldis, á sjálfur að hafa þetta 100% í lagi.
Skriflegt, vottað og stimplað af öllum hlutaðeigandi.
Stórasaltmálið snýst ekki um að þetta hafi kannski sloppið í þetta skiptið.
Það snýst um að menn HAFI VILJANN OG LÖNGUNINA til að fylgja reglunum og hafa hlutina í lagi.
Ekki eins og lýst er í 8. hefti rannsóknarskýrslu Alþingis um bankahrunið.
Að allt hafi snúist um að smjúga um allar glufur í reglunum til að þurfa ekki að fara eftir anda þeirra.
Að minnsta kosti hjá starfsmönnunum sem fengu bónusgreiðslurnar.
Þeir sem ekki hafa augljóslega viljann til að hafa alla hluti í lagi hjá sér.
Eiga ekki að koma nálægt neinum hagsmunum almennings.
Og eiga þegar út af bregður að verða sóttir í handjárnum.
Svo að þeim skiljist.
![]() |
Segir iðnaðarsaltið ekki skaðlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.1.2012 | 04:37
Hvað með 80 ára leyndarregluna hans Steingríms og Jóhönnu?
Hvernig fór aftur með reglurnar sem Steingrímur og Jóhanna settu, eða ætluðu að setja?
Um að icesave upplýsingar og fleira mætti ekki birta fyrr en eftir 80 ár???
Svo að þau gætu læst öll sín afglöp niður í 60, 80 eða 100 ár eftir atvikum.
Hvað er þessi vindhani alltaf að gapa?
Það er bara janúar og maðurinn er þegar orðinn fífl ársins.
![]() |
Stjórnsýslan þarf að bæta upplýsingagjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2012 | 23:40
Ölgerðin átti sjálf að vita betur.
Aulaleg mistök sagði forstjórinn.
Það er langt fyrir neðan allan aulahátt að hafa ekki FULLVISSAÐ SIG sjálfur um að allt væri í lagi.
Og þá er ég að tala um þá sem tóku þá ákvörðun að selja saltið til manneldis.
Það er engin afsökun að hafa haldið að það væri í lagi.
Viðkomandi bar skylda til að sannreyna það.
Það hlýtur að vera einhvers staðar til fangaklefi fyrir viðkomandi.
Því þar á hann að vera eins og aðrir sem eru kannski að eitra fyrir almenningi.
Um tilræði, hvers konar, við almenning er sérstakur kafli í almennum hegningalögum.
Þar fyrir utan á Matvælastofnun eða Landlæknir að stjórna því hvers konar salt er flutt hingað.
Ýmis konar efnum er bætt í borð salt til manneldis t. d. joði sem varla væri ráðlegt hérlendis.
Slíkar ákvarðanir eiga augljóslega ekki að takast í Ölgerðinni.
Nú er mínum viðskiptum við það fyrirtæki lokið.
Kominn með bjúg af öllu þessu salti þeirra.
Og sýnist feitur.
![]() |
Stofnanir deila um salt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.1.2012 | 23:31
Mistök eru ekki rétta orðið.
Það er súrrealískt að þessi maður hafi verið yfirmaður öryggismála.
Hann hlýtur að hafa tekið "...alla kösina í aðra nösina..."
Að vera á 114 þúsund tonna skipi, uppi í harða grjóti, er eitthvað meira en mistök.
En hvað hefur maður ekki séð til Ítala.
Berlusconi stjórnaði landinu. Glæpamaður sem átti fjölmiðlanna.
Bara eins og hérlendis.
Að hluta.
![]() |
Skipstjórinn gerði mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.1.2012 kl. 04:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)