Borðið C vítamín með.

Lengi hefur verið vitað að C vítamín kemur í veg fyrir að nítrit í matvælum verði að nítrósamín. 

Það er þetta nítrósamín sem er krabbameinsvaldandi í meltingarfærunum. 

Á unnum kjötvörum ætti að vera viðvörun frá Landlækni.

Um að taka inn C vítamín með þessum vörum. Já eða C vítamínríkt grænmeti eða ávexti. 

Suða eyðileggur C vítamín í grænmeti þannig að soðið grænmeti dugar ekki. 

Sumir segja að eitthvað af vítamínunum fari í soðið en það er annað en mér var kennt um C vítamín. 

Á hinni öldinni að vísu. 

Einhverjir muna kannski eftir Linus Pauling sem fékk Nóbelsverðlaunin tvisvar. 

Hann var mikill C vítamín maður, svo ekki sé meira sagt.

Hér má sjá hlekk á vísindastofnun með hans nafni og grein um þetta eftir doktor í matvælafræði:    

http://lpi.oregonstate.edu/f-w00/nitrosamine.html
mbl.is Pylsuát eykur líkur á krabbameini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

72 miljarða króna skip á tilraunaslóð með yfir fjögur þúsund manns.

Skipstjórinn kvartaði sáran að skerið sem hann sigldi á upp í fjörunni, skyldi ekki vera á sjókortum. 

Þá var hann að sigla 800 metrum suður af réttri leið inn á höfnina á þessari eyju Giglió.

Aðeins skipslengdinni frá sjáanlegum kletti en skipið er 290 metra langt. 

Það er einhvers konar brjálsemi að sigla skipi af slíkri stærð á ókunnar slóðir upp við land.

Og reyna svo að kenna um ófullkomnum sjókortum í sjálfu Evrópubandalaginu.

Eða ljúga því að þeir í Brussel hafi ekki gefið út nægjanlegt magn af siglingareglum. 

Sem hann, Ítalinn sjálfur, hefði auðvitað farið eftir í hvívetna. 

Nema hvað. 


mbl.is Skipstjórinn hnepptur í varðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað skemmtilegt en fráleit fjárfesting.

Siglufjöður er afar fallegur bær og þetta er skemmtilegur viðbótarmöguleiki í vegakerfinu.

Einhver hluti af þessari umferð hefur vissulega verið nýjabrum. 

Rétt eins og þjóðflutningurinn, hringinn í kringum landið, árið 1974 er brýrnar komu yfir Skeiðarársand. 

Engu breytir hins vegar að hér um að ræða dýrustu lífgunarframkvæmd Íslandssögunnar.

Glæpsamleg sóun á almannafé í bæjarfélag sem á enga framtíð nema sem sumarhúsabyggð. 

Ævarandi minnisvarði um nautheimska stjórnmálamenn okkar.  

Frá 1. janúar árið 1998 til 1. janúar árið 2011 fækkaði íbúum Siglufjarðar um rúmlega 26%

Úr 1.633 íbúum í 1.206 og er fækkunin á aldursbilinu 0 til 42 ára. 

Það er þveröfug aldursþróun miðað við t. d. Akureyri þar sem unga fólkinu fjölgar. 

( Talnaupplýsingar: Hagstofan.is )  

  


mbl.is Hálf milljón um Héðinsfjarðargöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læra kannski að reykja.

Alltaf hefur maður áhyggjur af Íslendingum í Kaupmannahöfn.

Öldum saman fóru þeir utan með góðum fyrirheitum um að læra eitthvað nytsamlegt. 

Að ógleymdum einnig þeim sem fóru til að bæta ráð sitt. Og festa ráð sitt. 

Þeir síðarnefndu voru að vísu oftast festir við keðjurnar á Brimarhólmi. 

Sumir komu jú aftur heim og höfðu þá einkum lært að drekka frá sér ráð og rænu. 

Heimkomnir lærdómsmenn reyndu sig við að stjórna landinu og seinna meir bönkunum.  

Og nú eru Óli minn og Dóra á þessum voðalegu glapstigum Kaupmannahafnar. 

Þetta er að vísu of stutt ferð til að þau nái að fljóta út í rennusteininn í því sem eftir er af jólabjórnum.

En Magga gæti kannski kennt þeim að reykja, eða taka í nefið, hvað veit ég. 

Ja svei. 


mbl.is Forsetahjónin eru viðstödd hátíðarhöldin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófa þarf fyrir siðblindu.

Það er löngu kominn tími til að ákveðnar trúnaðarstéttir samfélagsins þurfi að standast sálfræðiprófanir.

Flugfélög hafa t. d. sett væntanlega flugmenn sína í sálfræðirannsóknir með góðum árangri. 

Þar er vissulega verið að reyna að útiloka aðra hluti en þyrfti að gera með t. d. presta.

Að minnsta kosti er orðið löngu tímabært að herða ráðningaskilyrðin hjá ákveðnum stéttum.

Sá sem er siðblindur þegar hann fer í skóla er ennþá siðblindur þegar hann útskrifast. 

Og hann er ennþá siðblindur þegar hann er kominn í lögreglubúning eða prestshempu.

Eða orðinn barnakennari, barnalæknir, baðvörður já eða bankastjóri.   

Því miður. 

 


mbl.is Prestur játar 280 kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristján Möller segi af sér þingmennsku.

Eftir allt sem á undan er gengið þarf þjóðin að þola þetta. 

Að svo stríðalin búrhænsni séu enn á vappi í hlaðvarpanum.

Tilbúin að gogga í sig allt sem gæist þar upp úr rústunum. 

Eins og hver önnur meindýr í nýgræðingnum.  

 

   

 

    

 


mbl.is Skýrslu stungið undir stól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona flott hlið.

Hliðgrindurnar aftan við drenginn á myndinni eru afar veglegar.

Slíkar grindur hafa ekki verið víða um bæinn.

Það ætti að þrengja leitina.

Hvað um það.   "...þetta er nú meiri myndarmaðurinn... " hefði föðuramma mín sagt. 


mbl.is Þekkir einhver drenginn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýndarmennska

Þessir síkikonpúðar komu frá hinu fyrirheitna Evrópusambandi. 

Þar sem 39 þúsund lagabálkar eiga að vernda neytendur. 

Hvaða konur treysta ekki frönskum snyrtivörum?

Hverjir treysta ekki frönskum vínum?

Púðarnir komu frá Frakklandi, voru vottaðir af skoðunarstofum í Þýskalandi. 

Þetta er eins og hvert annað slys sem þessi læknir og þessar konur lentu í.

Ekki tilefni til að slá pólitískar keilur nema að frú Ólína ætli sjálf að leggjast í að lesa vöruvottorð ESB. 

Og alls engin ástæða til að hræða þessar konur umfram það sem orðið er. 

Þessir púðar eru ekki stórhættulegir en geta mögulega orðið varasamir, þó það sé ekki sannað. 

Heilbrigðisyfirvöld munu leiðbeina þessum konum varðandi einkenni og hvernig skal bregðast við þeim

Þegar þau koma upp. 

Þá verður aðalatriðið að fresta ekki aðgerðum vegna auraleysis.

Vafann á að túlka konunum í hag. 

Og þar liggja skyldur ríkisvaldsins í siðuðu landi.  

Ekki að vekja upp múgsefjun eða ofsahræðslu að tilefnislausu. 

Koma þarf upp áætlun um að skipta þessum púðum út miðað við t. d. aldur þeirra.

Og auðvitað strax þeim sem leka. 

Og það á auðvitað að verða á kosnað ríkisins þar sem um smáaura er þar að ræða.

Í samanburði við verstu hugsanlegar afleiðingar að öðrum kosti.

Smásálarháttur að vilja rústa heilsu læknishjóna eða flæma þau til Noregs. 

Sem þakkir fyrir vel unnin störf í þágu lands og þjóðar. 

 


mbl.is Óskar eftir umræðu um sílikonpúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg hárrétt.

En þá þarf líka að skipta um stjórnmálamenn.

Ekki hafa hér stjórnmálamenn sem á fylliríi eyða 15 miljörðum í göng til deyjandi bæjarfélags.

Þar sem íbúarnir voru ekki einu sinni 1500 og hefur fækkað um tæp 30% á rúmum áratug. 

Fækkun sem er í aldurshópunum 0 til 42 ára, hvað segir það okkur? 

Enn eru á Alþingi stjórnmálamenn sem telja að nú sé einmitt rétti tíminn til að bora jarðgöng.

Þegar sjúkrahúsin eiga vart fyrir rafmagni þá skal fjöllunum breytt í götóttan geitaost.  

Enda sjálfir ekki með síðri vitsmuni en geiturnar. 

Ná jafnvel upp í asna.   


mbl.is Ísland gæti dafnað undir aga í hagstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumir ættu að vera undir stöðugu eftirliti.

Það væri þjóðarhagur að sumir einstaklingar væru ekki aðeins hleraðir í þrjár vikur á ári.

Heldur alltaf og það ekki bæði síminn heldur allar vistarverur.

Og hefðu rannsóknarlögreglumann með sér alla daga til eftirlits ef það dygði þá til. 


mbl.is Tugum tilkynnt um símhleranir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband