Tími til kominn að mótmæla þeirri ósvinnu.

Ætli Össur afglapinn hafi munað eftir að mótmæla fangabúðunum á Guantanamo á Kúbu. 

Þegar hann var að breima utan í Hillary Clinton eins og fressköttur út af norðurskautsmálunum?

Það er algerlega fyrir neðan virðingu frjálsra lýðræðisþjóða á vestur löndum að þola Könunum þetta.

Lágmarkið að einhverjir óháðir herforingjar úr NATÓ fái staðfestingu á að þetta séu hryðjuverkamann. 

En ekki einhverjir geitasmalar sem áttu leið þar hjá sem kanninn var að skjóta eitthvað.

Og þó að þeir séu hryðjuverkamanna að þeir fái a. m .k. dóm og úrlausn sinna mála.

Ætli kaninn að haga sér svona áfram eru þeir sjálfir orðnir heimsveldi hins illa.

Og þá förum við nú að súpa á lýsiskútnum og girða oss sverði, skildi og grípa atgeirinn. 

Komum okkur upp Búrka liðþjálfa og allt verður klárt í slaginn. 


mbl.is Mótmæli gegn Guantanamo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jú að við borgum þeim 13 - 15 miljarða á ári í félagsgjöld.

Fyrir nokkruð síðan komu fréttir um að Íslendingar ættu að greiða 7 miljarða á ári til ESB.

Í dagvistargjöld, á ári, til Brussel fyrir að passa Össur og aðra pottorma í Samfylkingunni.

Fyrir stuttu var það svo leiðrétt. Við eigum að borga 13 til 15 miljarða á ári til Evrópusambandsins. 

Við eigum að borga, með þeim, útrásina þeirra til Austur Evrópu. 

En nei takk Össur og Jóhanna.

Þessa peninga ætlum við Íslendingar að setja í sjúkrahúsin okkar og uppbyggingu hérlendis.

 


mbl.is ESB ekki að sækja um á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnir hvað við stöndum tæpt.

Við Íslendingar höfum átt frábæra tæknimenn og verkfræðinga.

Í þennan örstutta tíma frá því að einhver tækni kom hingað til lands.

Og þar til nú að þeir eru flestir fluttir, eða að flytja, til Noregs. 

Verkfræðingar okkar, og tæknifólk, hafa verið alveg í fremstu röð á heimsvísu. 

Í mannvirkjagerð, raforkumálum, hitaveitu, hafnarmannvirkjum, virkjanagerð og samgöngum. 

Við hugsum ekki mikið út í það en símkerfið hefur verið með því besta í heiminum hérlendis. 

Og það var á meðan kerfið var í opinberi eigu en versnaði við einkavæðingu eins og fleira.      

Lengst af höfðu verkfræðingar okkar úr nægu fé að spila til að hafa það sem gert var, af bestu mögulegu gerð. 

Kærar þakkir til ykkar í Noregi fyrir vel unnin störf í okkar harðbýla landi.   

Nú hafa ljósin blikkað hér á höfuðborgarsvæðinu í allt kvöld og fram á nótt.

Og þá er ótalið hvar rafmagnið fór hreinlega af kerfinu. 

Og þrátt fyrir að ekki skuli efast um að þessi tengivirki séu af allra bestu gerð.

Sýnir þessi bilun kvöldsins hversu tæpt þjóðfélagið stendur gagnvart náttúruöflunum hér uppi á heimsenda. 

Gott að stjórnmálamenn hafa aldrei reynt að skilja neitt í verkfræði.  

Þá sætum við hér sambandslaus í myrkri og kulda með frosið í karmrinum.   

Nóg samt að þeir hafi reynt sig við hagfræðina í hundrað ár.     

 


mbl.is Ísing og selta olli trufluninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fækkað um 25% í Fjallabyggð (Siglufirði og Ólafsfirði) frá 1998

Samkvæmt vef Hagstofunnar hefur íbúum fækkað í Fjallabyggð frá árinu 1998 til 2011 um rúmlega 25%

Ekki að sjá að hin 15 þúsund miljóna króna göng hafi styrkt byggðina þannig að neinu skipti. 

Hvernig skyldu mannfjöldaspár hafa rætst í því tilfelli?

Og hvernig skyldu þær rætast fyrir norðan ef Samfylking Kristjáns Möllers kemur okkur í ESB?

Sem leggur landsbyggðina snarlega niður. 


mbl.is Ólíkar spár um umferð og greiðsluvilja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og í Norður Kóreu.

Lýðræðisást stjórnmálaforingja er viðbrugðið. 

Komist þeir upp með það þá halda þeir helst enga fundi með félögum sínum.

Hinn nýlátni elskaði og dáði leiðtogi í Norður Kóreu kallaði ekki saman þingið.

Frá því að elsku pabbi hans dó og þar til að hann þurfti að setja son sinn á stall. 

Þinghlé í hálfan annan áratug og bara þægilegra að vera laus við röflið í fólkinu.

Að ekki sé minnst á garnagaulið í þessum horrindum þarna.  

Og nú ætlar hin elskaða og dáða frú Jóhanna okkar að nota sömu aðferðina.

Ekkert að kalla saman landsfund í flokknum til að hlusta á röflið í liðinu og hvers kyns búkhljóð.  

Liði sem ræður engu hvort eð er. 

Þegiði svo greyin mín.

Margrét S. Björnsdóttir er frábær kona sem alltaf hefur vikið góðu að okkur aumingjunum. 

Nú ætlar hún að gæta þess að frú Jóhanna eigi friðsælt ævikvöld í stjórnarráðinu. 

Svo hún komist ekki í uppnám af því að einhver skildi Moggann eftir á glámbekk.

Eða af því að einhver sagði eitthvað sem frúin skilur ekki.   Já sem sagt sagði eitthvað.  

Bæti Margréti í kvöldbænina þar sem Jóhanna var auðvitað fyrir. 

Í versinu þar sem ég bið Guð að forða okkur háska frá.   


mbl.is Leggjast gegn landsfundi í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helferðarráðuneytið reynir að kaupa vinsældir.

Það er gott og blessað að bjóða þessum konum í ómskoðun.

Erlendir læknar hafa hins vegar sagt að þessir púðir geti lekið þó að það sjáist ekki við slíka rannsókn.

Þeir hafi þá fyrst séð lekann í aðgerðinni þar sem þeir voru að fjarlægja púðanna.

Séu þessar konur með verki, stöðugan höfuðverk eða þjáist af síþreytu. 

Þá er full ástæða til að fjarlægja púðanna þó að enginn leki sjáist við rannsókn. 

Hafi þessir frönsku PIP púðar verið bannaðir í Bandaríkjunum árið 2001.

Þá má spyrja hvers vegna hið guðdómlega Evrópusamband leyfði áfram sölu á þeim.

Það er greinilega fleira en eftirlitsreglur um banka sem er ónýtt á þeim bænum. 


mbl.is 440 konur með PIP-sílikonpúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spilling, spilling, spilling, gamla gerðin af fyrirgreiðslupólitíkusum.

Nýtt Ísland, hrópuðu þau Jóhanna og Steingrímur með Kristján Möller í bakrödd. 

Þetta mál er aðeins eitt af þúsund um spillingu þeirra sjálfra sem hafa aðeins aukið spillinguna ef eitthvað er. 

Enn eru margir tugir einbreiðra brúa á sjálfum hringveginum.  

Það var ekkert annað en þjófnaður á almennafé að borga göng til Siglufjarðar fyrir 15 miljarða kr. 

Og víst eru brekkurnar slæmar á Vaðlaheiði en ágætur vegur að öðru leyti.

Það er ótal margt sem er á undan í forgangsröðinni í vegagerð landsmanna.

Þar sem landsbyggðaþingmenn ganga um með gripdeildum til að kaupa sér þingsæti.      


mbl.is Gagnrýnir framgöngu stjórnmálamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegur alltaf.

Oft hló ég upphátt við lestur viðtalsins við Jón Baldvin Hannibalsson.

Hann er bráðskemmtilegur og lýsir stjórnmálasviðinu skilmerkilega eins og hann sér það. 

Í gegnum ljóstýruna af gömlum sænskum lampa sem farinn er að ósa nokkuð. 

Jón Baldvin sér því ekki lengur að það voru reglurnar frá ESB sem gerðu hrunið mögulegt. 

En Jón Baldvin viðurkennir hreinskilnislega að Samfylkingin sé ónýtt vörumerki. 

Fyrir næstu kosningar eigi íslenskir jafnaðarmenn, einn ganginn enn, að fá sér nýja kápu og jakkaföt.

Nýtt framboð jafnaðarmanna sé handan við hornið.  

Og enn einu sinni forðast Jón Baldvin sinn beiska bikar.

Að Íslendingar eiga einfaldlega ekki samleið með ESB hvað sem síðar verður. 

Jón Baldvin er því einnig í þeirri afneitun sem hann segir stjórnmálamenn vera í. 

Og það er rétt hjá Jóni Baldvin að heiðarlegir sjálfstæðismenn lentu í vondum félagsskap. 

Fyrst með honum sjálfum og Alþýðuflokknum þegar þeir gleyptu allar ESB reglurnar.

Svo með Framsóknarflokknum sem eyðilagði þá vönduðu einkavæðingu sem sjálfstæðismenn hugðu á. 

Það er líka rétt hjá Jóni Baldvin að Framsóknarflokkurinn er ekki annað en fjárglæfrasamtök. 

Og að bændur og samvinnumenn lentu í höndunum á fjárglæframönnum er yfirtóku flokkinn þeirra.  

Og að Samfylkingin er ónýt - stefnan reyndar líka en á það minntist hann ekki blessaður. 

Og að skúra þarf í Valhöll. 

Og að þau í VG eru eins og geðklofa fólk.  Sækja um ESB aðild sem þau eru á móti.

Styðja ríkisstjórnarstefnu sem þau eru á móti.  

Það er von að maðurinn flytji, oft á ári, til Andalúsíu.


mbl.is Forsetinn heldur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og halda óvinum sínum næst sér.

Það er rétt afstaða hjá Ögmundi Jónassyni að halda óvinum sínum næst sér og fylgjast betur með þeim. 

Þá er auðvitað átt við þau flón og fáráða sem vilja ganga í Evrópusambandið svo að þau þurfi ekkert að hugsa sjálf. 

Furðulegt að fólk skuli bjóða sig fram í forystu þjóðfélagsins er treystir sér ekki til að sjá fótum okkar forráð. 

Án erlendra afskipta.   

 

 


mbl.is Tíð ráðherraskipti óæskileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að Steingrímur sé ráðherra.

Eini tilgangur VG er að Steingrímur stofnandi, og eigandi, flokksins sé ráðherra. 

Flokksmenn eru bara kjánar í pólitík haldi þeir að skoðanir þeirra skipti einhverju máli.

Steingrímur fór meira að segja margar ferðir til Washington til að skríða þar hundflatur.

Fyrir lærisveina Hayeks hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hver hefði trúað því?

Steingrímur myndi "...koma nakinn fram..." fyrir ráðherrastólinn.  

Og er reyndar löngu orðinn hinn nakti keisari þeirra í VG.

Og fleiri en börnin búin að sjá það. 


mbl.is Sögð hafa svikið flest loforð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband