Féflett fífl.

Flest eða öll trúfélög snúast ekki um annað en peninga.

Hérlendis hafa forstöðumenn lítilla sértrúarsöfnuða byggt sér einbýlishús upp úr safnaðarbauknum. 

Og af tíundinni sem safnaðarfólkið þarf að borga af launum sínum til safnaðarins. 

Og má þá að líkum leiða hvernig sukkið er í hinu stærri söfnuðum.

Hérlendis getur hver glæpaspíran stofnað sértrúarsöfnuð.

Jafnvel þeir sem reknir voru fyrir gripdeild úr þeim fyrri.  

 


mbl.is Harðvítugar deilur í Vísindakirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin óvirðing við þjóðina.

Glæpamennirnir sem ætluðu að nauðga okkur inn í ESB hafa sýnt okkur takmarkalausa óvirðingu. 

Við vorum aldrei spurð hvort við vildum sækja þar um aðild.  

Fyrr á öldum drápu Íslendingar slíka leiguhirðstjóra erlendra kúgara.

Og það var það eina rétta sem leiguhirðstjórarnir áttu skilið.

Slæmt ef taka þarf slíka siði upp aftur.

Svo að menn láti sér skiljast.  

Hvað rétt er.  


mbl.is Sakar Ólaf Ragnar um óvirðingu við þjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlar að stofna stjórnmálaflokk.

Ekki var annað að heyra en að Ólafur Ragnar Grímsson ætlaði að fara í stjórnmál á nýjan leik. 

Gera síðustu tilraun til að koma einhverju lagi á vinstri flokkanna á Íslandi.

Engum er betur ljóst en Ólafi, hversu skelfileg staðan er á þeim bænum. 

Þar sem forystan samanstendur af Ingaldsfíflum, tækifærissinnum, drykkjusjúklingum og vesalingum.

Mögulega ætlar Ólafur að stofna nýjan stjórnmálaflokk sem tekur yfir Samfylkinguna og VG.

Fróðlegt verður að heyra og sjá, meira. 


mbl.is Býður sig ekki fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta heitir málskotsréttur en ekki neitunarvald.

Lög taka gildi þó að forseti synji því að undirrita þau.

Það er því ekki rétt að kalla það neitunarvald. 

Þetta er málskotsréttur forseta til þjóðarinnar sjálfrar.

Hinum eina handhafa löggjafarvalds á Íslandi.

Þjóðin afhendir fulltrúum sínum á Alþingi og forseta sínum, umboð til að fara með löggjafarvaldið. 

Tímabundið og með skilyrðum stjórnarskrárinnar og hins óskráða samfélagssáttmála.

Þegar forseti synjar að undirrita lög, hverfur lagasetningarvaldið frá þessum umboðsmönnum. 

Til þjóðarinnar sjálfrar sem er eigandi landsins, þjóðfélagsins og umbjóðandi löggjafarvaldsins í landinu. 

Og þá ákveður þjóðin ein, án aðkomu forseta eða Alþingis, hvort þau lög skuldi halda gildi sínu eða ekki. 

Forsetinn er þarna, eins og endranær, þjónn þjóðarinnar sem afhendir þjóðinni löggjafarvald sitt. 

Þegar hún ákveður að taka löggjafarvaldið til sín.

Og þarf því ekki að eiga fallexi eins og múgurinn í París forðum. 

Það er hins vegar sjálfsagt að slá henni upp, óski stjórnarherrar eftir því. 

Með orðum sínum eða gjörðum, landráðum eða öðrum djöfulskap. 

Umboðslaus ráðsmennska með ESB umsókn, stappar þar nærri.      


mbl.is Embættið pólitískt eftirsóknarverðara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eða hærra hlutfall dýrafitu og minni fiskneysla?

Þessar rannsóknir eru lofsvert framtak og vekja upp fleiri spurningar. 

Mér nákomnir karlmenn hafa fengið þennan sjúkdóm eins og þarna er sagt frá.

En það var ekki aðeins að þeir drykkju meira af mjólk heldur neyttu þeir mögulega meiri dýrafitu yfirleitt.

Mögulega meiri dýrafitu en kaupstaðabúar sem höfðu greiðari aðgang að fiski og það nýjum fiski. 

Og neyttu mögulega einnig minna af grænmeti en einhverjir aðrir. 

Einnig yrði fróðlegt að vita hvort einhver hormón í mjólkinni hefðu áhrif í þessu sambandi. 

Einnig þekkist að systur þessarra karlmanna séu í aukinni hættu vegna brjóstakrabbameins. 

Og enn mætti spyrja um mögulega tengingu við mjólk, dýrafitu eða hormón í fæðunni.     

Þá væri fróðlegt að heyra af áhrifum reykinga í þessu sambandi.

Í öllu falli verður stórfróðlegt að heyra af áframhaldandi rannsóknum á þessu sviði.  

Glæsilegt að eiga slíka vísindamenn í landinu.  


mbl.is Mjólk og krabbi í blöðruhálskirtli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki með þér Jóhanna - þú vilt gefa okkur til ESB.

Sérfræðingahópurinn sem frú Jóhanna ætlar að skipa mun fá niðurstöðuna fyrirfram.  Að við skulum í ESB.

Svoleiðis vinnubrögð eru algerlega marklaus og merkingarlaus. 

Jóhanna Sigurðardóttir er fullkomlega rúin trausti sem ekki kemur aftur.  Aldrei. 

Sama er að segja um Össur Skarphéðinsson og Steingrím Sigfússon.

Þetta fólk ætti að láta sig hverfa úr opinberu þjóðlífi áður en einhver tekur það ómak af þeim.

Aldrei nokkurn tímann hafa Íslendingar verið sviknir með jafn ómerkilegum hætti og af þessu fólki.

Sem ætlaði að láta okkur vakna upp innan ESB, eftir hrunið.  ÁN ÞESS AÐ SPYRJA OKKUR ÞJÓÐINA.

Eins og við hefðum bara ekkert með það að gera.  

Þau voru, og eru, búin að ákveða þetta fyrir okkur.

Þessir þá líka afglapar og ginningarfífl þeirra í Brussel.  

Öðrum landsmönnum óska ég gleðilegs árs.   


mbl.is Íslandi eru allir vegir færir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er húsvörður þar til Kata kemur úr fríinu.

Sjálf sagði Oddný á Bessastöðum að hún ætti líklega aðeins að halda ráðherrastólnum heitum. 

Þar til Katrín Júlíusdóttir kæmi úr barneignafríi.

Sem sagt umboðslaus ráðherra sem ekkert á að gera.

Eins og hver annar húsvörður að passa að hitinn fari ekki af ráðuneytinu.  

Traustvekjandi. 


mbl.is Tekur við lyklavöldunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er gott veður í dag."

Sagði Jón Bjarnason á Bessastöðum þegar hann var spurður hvort hann styddi ríkisstjórnina.

Þjóðin hefur fengið aukalegt áramótskaup frá þeim Steingrími og Jóhönnu. 

Frú Jóhanna fullyrðir að ríkisstjórnin styrkist með hverju sparki sem einhver stjórnarliðinn fær í afturendann.

Steingrímur telur fullvíst að stuðningur VG félaga aukist með hverju ákvæðinu sem hann svíkur í stefnu VG.  

Þetta eru ekki fávitar í stjórnmálum nema það sjáist á einhverju.  


mbl.is Hvatning um að herða slaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda bara leikrit til að koma Jóni Bjarnasyni frá.

Viðræður forystu ríkisstjórnarinnar, við Hreyfinguna, voru eingöngu leikrit. 

Til að láta að því liggja að ríkisstjórnin gæti sótt þangað þingstyrk.

Rétt á meðan þau væru að hrinda Jóni Bjarnasyni niður stigann í stjórnarráðinu.

Já og Árna Páli á eftir. 

Fyrir þessu bragði féllu nytsamir sakleysingjar úr stjórnarliðinu.

Svo sem Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og fleiri.

Sem var í lófa lagið að hindra þessar breytingar Samfylkingarinnar. 

Eins og hver annar hundur liggur Steingrímur á hlaðinu fyrir utan Samfylkingarkotið.

Veltir sér um hrygg, geltir og dillar rófunni í von um klór eða klapp.

En fær aldrei neitt nema skammir og spörk í afturendann. 

Og lætur sér vel líka eins og aðrir með vitsmuni á við hund.  


mbl.is Engar frekari viðræður við Hreyfinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En þú hefðir getað stöðvað þetta Guðfríður Lilja.

Þú þurftir einfaldlega að segja að þú styddir ekki ríkisstjórnina áfram ef þetta ætti að ganga fram. 

Þetta leikrit með viðræðum við Hreyfinguna, var til að slá ryki í augu ykkar. 

Hreyfingin er ekkert að koma inn í ríkisstjórnina nema þau hafi etið eitthvað eitrað um jólin.

Þú ert einfaldlega meðvirkill Steingríms sem er fárveikur af Hybris eins og Þór Saari benti á. 


mbl.is „Mér finnst þetta rangt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband