31.12.2011 | 11:37
Þið eruð bara upp á punt.
Hvenær ætlar allt það góða fólk í Vg að gera sér grein fyrir að þetta er aðdáendaklúbbur Steingríms og ekkert annað?
Er eingöngu stofnaður utan um hans persónu eins og trúfélag.
Hvað þið segið greyin mín skiptir bara engu máli.
Hvað stendur í stefnu flokksins er bara málskrúð.
Hvað þið samþykkið á stjórnarfundum breytir heldur engu.
Það eina sem gildir er vilji Steingríms og eftir honum hlaupið þið eins og hver önnur fífl.
Ginningarfífl.
![]() |
Ósátt við fund VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2011 | 11:11
Ruglað gamalmenni og liðið lík.
Forysta Samfylkingarinnar er liðið lík.
Formaðurinn er örvasa gamalmenni sem aldrei hefur ráðið við það hlutverk.
Undir vitleysunni og vandræðaganginum kynda svo menn eins og Össur Skarphéðinsson.
Sem af öllu hefur gengið dauðu sem hann hefur komið nálægt um daganna.
Kristrún, það hefur sem sagt engum dottið í hug að bjóða upp á nýja forystu á þessum fundi???
Eða er Samfylkingin að hætta í stjórnmálum???
![]() |
Ríkisstjórnin og forystan nær fallin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2011 | 11:06
Baráttukveðjur að heiman.
Við samlandar sendum, einni okkar bestu dóttur, baráttu- og batakveðjur.
![]() |
Sár stund þegar ljóst var að ferlinum væri lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.12.2011 | 03:05
Skólastjóri tekinn fram yfir bæjarstjóra þar sem skólastjórinn er með píku.
Jóhanna er ekki snarvitlaus nema það sjáist á öllu sem hún gerir.
Út af kynferðisviðhorfum gerir hún skólastjórann Oddný að fjármálaráðherra.
Í stað þess að nýta reynslu bæjarstjórans Lúðvík Geirsson sem stjórnað hefur einu af stærslu bæjarfélögum landsins um langt skeið.
Bæjarstjórinn Lúðvík er augljóslega miklu hæfari til að verða fjármálaráðherra en skólastjórinn.
Bæjarstjórinn er sonur eina vinstri mannsins sem hafði eitthvað vit á ríkisfjármálum og við þau fræði ólst Lúðvík upp.
Það var Geir heitinn Gunnarsson þingmaður Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði.
Hann þurfti stundum að leiðrétta bullið í Jöhönnu í þinginu eins og fleiri.
Var það í framhaldi af því að Páll Pétursson taldi Jóhönnu enga stofuprýði lengur.
Og svo hvort ekki þyrfti að vökva blómin í stofunni svo að þau héngju uppi.
Nefndi þá Geir við Jóhönnu að sumir væru farnir að þorna töluvert mikið upp, þarna inni á þinginu.
Kannski er Jóhanna að hefna sín á Lúðvík.
Og svo þetta að Jóhanna er hrifnari af píkum og lætur það trufla störf sín.
![]() |
Breytingartillagan samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
31.12.2011 | 00:57
Ætlar Jóhanna þá loksins að hætta?
Annað hvort ætlar þá Jóhanna að losa sig við Össur eða Guðbjart Hannesson.
Sem er ekki sérlega trúverðugt.
Eða hitt að hún ætli loksins að hætta sjálf áður en hún rústar heilsu sinni endanlega.
Sparar okkur þá eftirlaunin en heldur vildi ég að hún hefði tíma fyrir barnabörnin við góða heilsu.
Hún er nú þegar langt komin að kistuleggja Samfylkinguna.
Og ætli hún að vera með í næstu kosningum verður útför Samfylkingarinnar þá strax á eftir.
Að það sé eitthvað að rofa til á þurrkloftinu á Hjarðarhaganum og hún sé að hætta?
Katrín Júlíusdóttir hefur mun fjölbreyttari lífsreynslu en þau flest í þinginu.
Hún hefur kynnst því í eigin rekstri að peningarnir vaxa ekki í trjánum eða í ríkiskassanum.
Eins og þau halda mörg sem aldrei hafa farið neitt nema beint úr Háskólanum og inn á Alþingi.
Með viðkomu á bar eða kaffihúsi í miðbænum og í Silfrinu hjá Agli stórvini mínum.
Hætti Katrín að trúa bullinu í Össuri og Jóhönnu yrði hún ekki sú versta í Samfylkingunni eftir næstu kosningar.
Ef hún næði að verða íslenskur jafnaðarmaður óspjölluð af Jóhannu og Össuri.
Óspjölluð af erlendum göldrum sem eiga allt að leysa. Svo sem neðangreindar hugarstefnur og kenningar neðangreinda:
Hugmyndafræði Indverja og Egypta. Kínversk, indversk og grísk heimspeki með sófistum, Platón, Sókrates og Aristóteles.
Skólaspeki og stjórnmálahugsun. Húmanisminn, Macchiavelli, Hobbes og Locke.
Merkantílisminn, náttúruréttinn og nytjastefnan, frjálshyggja, fysiokrati og Adam Smith.
Montesquieu, Rousseau og útópían, Frjálshyggjan og franska byltingin.
Afturhalds og fjálslyndisstefna. Karl Marx sósialísminn, Parísarkommúnan.
Íhaldsstefnan, Frjálshyggjan, Spencer og sósíaldarwinisminn
"Útópískur" og "vísindalegur" sósíalismi, þjóðernisstefna, kvennahreyfingin, félagsfræðin.
Durkheim og Weber, Friedrich Nietzsche, Freud og Einstein, Þjóðernishyggja, kynþáttahatur, lýðræði, þingræði, flokkar og kosningar, íhaldsstefna og fjálslyndisstefna.
Sólialismi, kommúnismi og Syndikalismi, hægri öfgastefnur og gyðingahatur
komintern og kommúnsimi, þjóðernisstefna og fasismi, þar með talið í Afríku.
kenningar Keynes, ítalski fasisminn, þýski nasisminn, efnahagsumbætur innan ESB,
Glasnost og perestrojka, framtíðar hugmyndir um sameiningu ESB landa,
frjáls verslun og verndarstefna, GATT, EFTA, ESS, NAFTA. Markaður lýðræði, hugmyndaþróun.
Sjálfsagt að hafa lesið þetta allt og áttað sig á því hverju á að henda strax og hverju á aldrei að henda.
Sumt þarna er það besta sem við þekkjum sem viðmiðun um stjórnun á mannfélagi.
Annað snýr að því hvernig reka eigi þjóðfélagið helst öllum til ávinnings þar sem skipting gæðanna sé með sanngjörnum hætti.
Og átta sig svo á að einhver atriði eru góð til viðmiðunar en geta aldrei orðið alls herjar sannleikur sem fylgja skal sem trúarbrögðum.
Nota sitt lítið af hverju sem hentar okkur Íslendingum á hverjum tíma.
Aldrei að verða svo heimskur að trúa eingöngu á eitt alls herjar ráð.
Og muna svo að alltaf eru einhverjir að reyna að svindla sér fram hjá reglunum, og sjá við þeim
Framhald á nýársdag.
Þá verðum við miklu upplagðari í þetta.
![]() |
Katrín mun fá ráðuneyti eftir orlofið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2011 | 22:48
Katrín kemur ekki aftur í ríkisstjórn.
Jón Bjarnason fer út úr stjórn en enginn inn í staðinn frá VG.
Árni Páll fer úr stjórn og Oddný inn í staðinn fyrir Samfylkingunna.
Samfylkingin tekur þriðja dýrasta ráðuneytið af VG sem í skiptum fær aðeins sjávarútvegs- og landbúnaðarmál.
Samfylkingin er því áfram með fimm ráðherra en VG aðeins fjóra.
Það er auðséð að þessa skekkju á lagfæra með því að Steingrímur taki einnig iðnaðarráðuneytið.
Öðru vísi getur hið nýja ráðuneyti ekki heitið atvinnuvegaráðuneyti.
Þannig að Katrín Júlíusdóttir kemur ekki aftur í ríkisstjórnina eftir fæðingarorlof.
Nema Jóhanna ætli að skera niður fleiri karla.
Hún hatar jú karlmenn.
![]() |
Fleiri konur ráðherrar en karlar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2011 | 21:03
Styður stjórnina en ekki mál hennar.
Hinn stórskemmtilegi Jón Bjarnason heldur nú áfram að skemmta þjóðinni.
Nú segist hann ætla að styðja ríkisstjórnina en engin af helstu málum hennar.
Hann ætlar að greiða atkvæði eftir stefnu og yfirlýsingum Vinstri hreyfingarinnar - grænt framboð.
Ekkert í stefnu þeirrar hreyfingar er í samræmi við gerðir og áform ríkisstjórnarinnar.
Það verður því gaman að fylgjast með Jóni á nei takkanum á nýja árinu.
![]() |
Veikir stjórnarmeirihlutann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2011 | 20:49
Voff, voff, voff.
Af geltinu í varðhundi VG kotsins má jafnan heyra sannleikann í hverju máli.
Aðeins þarf að setja öfug formerki við skilaboðin og þá vita menn hvað satt er og réttast.
Duglegur Tryggur minn, góður seppi.
Þú færð stórt bein, næst þegar Steingrímur kemst í búð.
![]() |
Ætlað að styrkja ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2011 | 20:37
Nei auðvitað ekki Steingrímur - fyrst þú segir það.
Steingrímur Jóhann Sigfússon fékk taugaáfall þegar Samfylkingin fór í ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum.
Og hefur aldrei náð sér með þeim afleiðingum að Samfylkingin getur látið hann gelta og velta sér á bakið.
Og gera yfirleitt allar þær kúngstir sem hægt er að kenna þægum heimilishundum eins og Steingrími.
Þau frú Jóhanna og Össur hafa allt kjörtímabilið verið við það að missa út úr sér tanngómanna, af illsku út í Jón Bjarnason.
Og nú fullvissar heimilishundur Samfylkingarinnar okkur um að þessi mál séu bara alls ekkert tengd.
Einmitt það Snati minn.
![]() |
Tengist ekki Evrópumálunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2011 | 20:24
Enn leysir Samfylkingin niður um Steingrím.
Ekki vissi ég annað en að Steingrímur væri flinkasti fjármálaráðherrann fyrr og síðar.
Þetta hafði Steingrímur sjálfur staðfest margsinnis.
En nú hefur Samfylkingin komist að því að Steingrímur hafi reiknað allt saman skakkt.
Og setur stærðfræðikennara í fjármálaráðuneytið til að fara yfir allar úrlausnir Steingríms í ráðuneytinu.
Og með allt niður um sig, bíður nú Steingrímur eftir fleiri skellum.
Auðvitað sárt að vera alltaf nýrassskelltur á ráðherrastólnum en hvað lætur maður sig ekki hafa.
![]() |
Oddný nýr fjármálaráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)