Og tekur nú Stalín við.

Hafi menn talið sig á botninum í íslensku atvinnulífi, þá var það allt misskilningur. 

Nú taka við fimm ára áætlanir Stalíns um fólksflutninga á milli svæða.  

Samyrkjubú, eignarnám og lítilsháttar ofsóknir á þá sem ekki hlýða bjargráðunum frá þeim félögum.

Þannig að Íslendingar verða brátt eins hamingjusamir og Norður Kóreumenn.

Nema auðvitað þegar Steingrímur fellur svo frá.  

Þá munum við gráta og berja okkur utan á götum úti.

Af sorg eða gleði.   


mbl.is Steingrímur verður atvinnuvegaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll í stjórnarandstöðu?

Um nokkurt skeið hefur Árni Páll Árnason talað á móti mestu vitleysunni í Jóhönnu Sigurðardóttur, enda af nægu að taka. 

Og miskunnarlaust er honum því rutt úr ríkisstjórninni eins og öllum sem slysast til að segja þar eitthvað af viti.

Verður nú fróðlegt að fylgjast með málflutningi Árna framvegis.

Hann mun væntanlega telja sig frjálsari en fyrr að gagnrýna ýmis mál stjórnarinnar.

Jafnvel fella einstök mál eða stjórnina alla?


mbl.is Segir tillögum vel tekið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hættir að styðja stjórnina.

Úr lekri saltketstunnu VG hefur nú úldnu trosi verið troðið í kok Jóns Bjarnasonar.

Og kyngi hann þeirri uppsöluglás og styðji ríkisstjórnina áfram.

Væri hann varanlega skaðaður ef þeim áramótaveitingum formannsins.    

Langt er nú síðan nýbakaður þingmaður Þór Saari tilkynnti þjóðinni að Steingrímur væri illa haldinn af hybris heilkenni.

Sem er sambland af mikilmennskubrjálæði og rofnum tengslum við raunveruleikann.  

Nú eru meira að segja VG félagar búnir að koma auga á það sama og hættir að þegja yfir því. 

  


mbl.is Látinn víkja vegna ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur er veikur.

Aðeins eitt markmið stjórnarinnar hefur náðst.

Eða öllu heldur markmið eins ráðherra.

Markmið Steingríms J. Sigfússonar að komast í ráðherrastól og hanga þar.

Og á meðan hangir allt, og allir, í landinu.

Ýmist á horriminni eða bíða í einhverri röðinni.

Röðinni eftir atvinnuleysisbótunum, farmiðanum úr landi eða röðinni með matarpokunum.

Þetta eru mestu vandræða vitleysingar íslenskra vinstri manna og jafnaðarmanna.

Fyrr og síðar, þau Steingrímur, Jóhanna og Össur.

Af hverju skyldu vinstri menn alltaf hleypa sínum mestu fíflum í forystu en flæma hina burt?

Jóhanna flæmdi burtu bæði Jón Baldvin og Jón Sigurðsson.  Báðir tvöfalt eða þrefalt klárari menn en hún. 

Steingrímur flæmdi Margréti Frímannsdóttur burt o. s. frv.

Neðan af Alþingi hafa okkur fyrir löngu borist fullyrðingar Þórs Saari um að Steingrímur þjáist af Hubris heilkenni.

Sem er blanda af mikilmennskubrjálæði og skertum tenglum við raunveruleikann.

Dæmi hver fyrir sig.  

 


mbl.is „Ekki sami maður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin er dauð.

Þeir sem muna eftir fyrri vinstri stjórnum muna vel hvernig þær hættu að virka út af ósamkomulagi.

Ekki við andstæðinganna heldur við sína eigin liðsmenn.   En þær sátu hins vegar áfram eins og liðin lík.

Þessi rústaríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er löngu dauð á sinni helför í ESB. 

Eins og vofur í sprengjulosti eru ráðherrarnir ráfandi í rústunum.

Og eins og fleira fólk sem keyrt hefur út af veginum og fengið höfuðhögg eða áfall.

Þá þvaðra forystumennirnir við sjálfa sig og aðra.

Að sé þetta nú í besta lagi.  

Aðeins eitt markmið stjórnarinnar hefur náðst.

Eða öllu heldur markmið eins ráðherra. 

Markmið Steingríms J. Sigfússonar að komast í ráðherrastól og hanga þar.

Og á meðan hangir allt, og allir, í landinu.  Ýmist á horriminni eða bíða einhverri í röðinni. 

Röðinni eftir atvinnuleysisbótunum, farmiðanum úr landi eða röðinni með matarpokunum. 

Þetta eru mestu vandræða vitleysingar íslenskra vinstri manna og jafnaðarmanna. 

Fyrr og síðar, þau Steingrímur, Jóhanna og Össur.  

Af hverju skyldu vinstri menn alltaf hleypa sínum mestu fíflum í forystu en flæma hina burt? 


mbl.is „Gamlir hundar sem engar breytingar vilja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já er hann svona lasinn?

Ekki man ég eftir að Steingrímur minn hafi áður neitað sér um að blaðra og bulla, lygaþvæluna þráðlaust út í eitt.

Ef hann er nú kjaftstopp er annað hvort ráðherrastóllinn í hættu.

Eða þá að hann er að lagast í höfðinu.

Hvort ætli það sé?   

   


mbl.is Steingrímur vill ekki tjá sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nær að boða til þingkosninga.

Aðeins eitt gagn getur þessi ríkisstjórn gert fyrir þjóðina.

Það er að boða til þingkosninga þannig að þjóðin geti kosið nýta fulltrúa sína á Alþingi.

Þessi ríkisstjórn sveik þjóðina á neyðarstundu með því að fórna henni fyrir ESB umsókn.

Fyrir falskan draum þar sem öll vandamál Íslendinga leystust af sjálfu sér. 

Sem hver maður sér að er aðeins í huganum á skýjaglópum og draumóramönnum.

Atvinnuleysið hefur verið aðalsmerki ESB og er nú komið yfir 20% á Spáni.

Allir eðlilegt fólk í Evrópu sér að ESB og evran eru í skelfilegri stöðu.

Nema nokkrir fáráðlingar sem ungir trúðu á kommúnismann og síðar á alræðisríki jafnaðarmanna ESB. 

Allt væri það nú góðu lagi með nokkra fáráðlinga, til eða frá, í heimsálfunni Evrópu. 

Ef þeir væru ekki allir í ríkisstjórn Íslands.  

Þar fór í verra.  

  


mbl.is Breytingar á ríkisstjórninni ræddar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum sjálf að eiga álverin.

Árum saman hef ég nöldrað um að Íslendingar ættu sjálfir að eiga álverin hérlendis.

Þá yrði arður þeirra eftir í landinu. 

Árangur Tómasar Más er sönnun þess að við gætum þetta vel. 

Náttúruverndarfasista minni ég enn á að álverin verða rifin og jöfnuð við jörðu.

Jafnskjótt og tækniframfarir gera mögulega raforkusölu til annarra landa. 

En þá verður eins gott að Kínverjar hafi ekki keypt upp auðlindirnar hérlendis. 

Þá yrðum við aftur berklaveik, lúsug og tannlaus í torfhúsum.  

Beinastrjúgur og rifið roð í matinn.

Þegar hann væri einhver.  


mbl.is Býr áfram á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í jarðskjálftabæinn Hveragerði.

Íslendingar eiga vissulega frábæra verkfræðinga er geta gengið örugglega frá svona húsi eins og öðrum.

En æfingahöllin er mjúkhýsi eins og áformað er að reisa í Hveragerði.  

En þá er mikilvægt að bæjarstjórnin leiti til þeirra en treysti ekki eingöngu á upphaflegu hönnunina.

Besti byggingaverkfræðingur sem ég þekki, kennir við HÍ og nam auk þess burðarþols- og jarðskjálfaverkfræði. 

Sagðist stundum taka Evrópustaðalinn sinnum þrír eða fjórir, þegar hann leiðrétti fyrir vindáhrifum hérlendis. 

Ef sú bygging ætti að standa á þekktum óviðrastöðum t. d. á Kjalarnesi, Stórhöfða eða undir Eyjafjöllum. 

Hliðstæðar leiðréttingar þarf svo vissulega að gera vegna jarðskjálftahættu, álags af völdum frosts, snjóa, ísingar o. s. frv. 

Engan veginn víst að svona hús henti hérlendis eða á tilteknum stöðum hér. 


mbl.is Fótboltahöll hrundi til grunna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jól inni og úti.

Mjög fallegt úti við í Reykjavík, frábærar aðstæður til útivistar. 

Best ef einhver nennir að draga mann á sleða eða snjóþotu.

Neyðist samt til að ganga eitthvað ef marka má bumbuna sem er nærri eins stór og umbúðahrúgan á stofugólfinu. 

Byrja því daginn á hollri göngu, með ruslið út í tunnu.  

Ég legg mig svo aðeins og hvíli mig svo vel á eftir. 

Ég greip til sérstækra ráðstafanna þessi jólin, út af þessu með aukakílóin. 

Engu síðra ráð en ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum. 

Tók rafhlöðuna úr baðvoginni. 


mbl.is Nýfallinn jólasnjór í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband