20.1.2012 | 00:59
Skammast mín að tryggja þar.
Maður á þessan engan kost að hætta að skipta við Norðurál.
En við Sjóvá get ég hætt að skipta. Rétt að vinna í því.
Tryggingafélög eru einmitt til að við borgum saman, sanngjarnar tjónabætur, hvort til annars.
Ekki fyrir eigendurna að raka saman auð fjár eða stela bótasjóðunum sem þar eiga að vera til staðar.
Skamm, skamm.
Í Bandaríkjunum eru tryggingafyrirtækin yfirleitt rétt og slétt glæpastarfssemi svo að talað sé hreint út.
Þar sem mest öll starfssemin snýst um að koma í veg fyrir að fólk fái þær bætur sem það á rétt til.
Öllu þarf að snúa við sem Íslendingar hafa lært í amerískum viðskiptum.
Eða senda námsmennina út aftur.
´
![]() |
Málarekstur í höndum Sjóvár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.1.2012 | 00:04
Karlmaður vond fjárfesting.
Með þær forsendur að karlinn færi að dytta að einhverju, heima við, gæti kannski gengið.
En varasamt og vafasamt að hann færi þá einnig að borga niður lán og sinna húsverkum nema rétt fyrst í sambúðinni.
Þegar hægt væri að kaupa frekar stærri bíl, vélsleða, fjórhjól, sjóþotu, bát og stærri haglabyssu eða golfsett.
Nema kannski nískan norðurlandabúa eða hvað?
Svo yrðu einir sjö langlífir hundar húsvanir á undan karlinum.
Myndi aldrei læra að kreista tannkremstúpuna rétt.
Ekki skola sturtubotninn sem liti út eins að þar hefði hestur farið úr hárunum, en ekki karl í steypibað.
Svo væri hann vís til að setja blautt handklæðið í rúmið konunnar o. s. frv.
Ég fengi mér heldur konu, þeirra áhugamál eru yfirleitt líka ódýrari.
Eldhúsinnrétting og búið.
![]() |
Myndi kaupa sér mann ef hún ætti milljón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.1.2012 | 17:14
Og við í sjöunda himni með árangurinn.
Að ríkisstjórnin sé með ráðherranefnd í atvinnumálum kemur nokkuð á óvart.
Þaðan komu auðvitað þessar þúsundir starfa sem frú Jóhanna úthlutar í hverri stefnuræðunni eftir aðra.
Hvaða pörupiltar sitja í þessari atvinnunefnd og ljúga þessum störfum inn á konukindina?
Svo má maður lesa að ríkisstjórnin sé með ráðherranefnd í efnahagsmálum. Var þetta í skaupinu?
Og hverja skipaði frú Jóhanna í þá nefnd, mætti ég spyrja?
Vonandi ekki löngu látna forystumenn Alþýðuflokksins úr Viðreisnarstjórninni?
Það gæti skýrt afköstin.
![]() |
Sjö ráðherranefndir starfandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.1.2012 | 16:44
Sökudólgurinn er fundinn.
Það var gott hjá Ölgerðinni að upplýsa stórasaltmálið, endanlega frá sinni hlið.
Sökudólgurinn í málinu heitir Þóra Arnórsdóttir.
Hér er öllu snúið á haus eins og fyrri daginn.
Engar neikvæðar fréttir væru af saltmálum Íslendinga hefði Ölgerðin staðið sig í stykkinu.
Hefur yfirleitt nokkur maður sýnt innilega iðrun í þessu máli?
Hefur einhver saltsalinn, t. d. boðið neytendum tímabundinn saltafslátt af vörum sínum?
Með nýju og réttu salti?
Og beðið okkar afsökunar með sannfærandi hætti?
![]() |
Ekki á mína ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2012 | 10:48
Össur er kominn með Samfylkinguna á öskuhauganna.
Og eiga það bæði skilið út af þessari endalausu ESB þráhyggju.
Sem við erum búin að sjá í gegnum Össur og þig líka.
Það eru aðeins tæp 68 ár síðan Íslendingar losnuðu undan erlendu arðráni og kúgun.
Sem hafði þá staðið frá 1262 til 1944.
Þjóðin þá tannlaus, lúsugir þrælar í jarðhýsum sem í sjö aldir voru arðrændir linnulaust af ESB þjóðum.
Forfeður okkar myndu eðlilega telja þá réttdræpa er innan við mannaldri eftir lýðveldisstofnun.
Vildu svíkja okkur undir erlent arðrán og kúgun með blekkingum.
Eins og þeir kratahöfðingjar eftir áratuga áfengisóráð í Brussel og vítt um heim.
En nei takk ekki aftur. Farðu nú góði að hypja þig burt með góðu.
Áður en þú þarft að leita skjóls í skólprennunni eins og Smiður Andrésson leiguhirðstjóri.
Sem Ólöf húsfreyja á Grund, í Eyjafirði, lét svo drepa eins og hann átti skilið.
![]() |
Vaxandi andstaða við ESB-aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2012 | 10:25
ESB varð grundvöllur stjórnarinnar - Ekki íslenska þjóðin.
Þessu hef ég lengi haldið fram. En átti ekki von á að Steingrímur færi að viðurkenna það.
Íslensku launafólki, íbúðaeigendum, barnafólki og þeim sem minna mega sín, fórnaði þessi vinstri stjórn.
Á altari ESB þráhyggju í hugsjúku fólki sem gengur ekki heilt til skógar í tilverunni.
Fólki sem hefur misst alla pólitíska glóru út af áratuga hatri og biturð út af eigin vanhæfni og tilvistarkreppu.
Eða hefur drukkið glóruna burt. Sama hvort er.
En ekki er Steingrímur drykkjumaður.
Hvað afsökun hefur hann?
![]() |
Ekki skynsamlegt að draga umsókn til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2012 | 07:52
Kærar þakkir.
Bæði fyrir að gera þessa mynd og sýna okkur.
Og að sjálfsögu ykkur hjá Landhelgisgæslunni.
Maður fer að trúa á fornsögur okkar þrátt fyrir allt.
Að við höfum átt hér hugdjarfar hetjur, bæði fyrr eins og nú síðar.
Nútímahetjurnar eru að minnstra kosti lítillátar.
Þetta er miklu erfiðara en það sýnist.
![]() |
Hrikalegustu aðstæður sem ég hef séð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2012 | 07:41
Sama gamla sagan.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af því að veröldiin hafi lagast svona rétt yfir blánóttina.
Þetta er gamalkunnugt stef að stórveldin styðji hvaða glæpaskítseiði sem er.
Ef þau telja að viðkomandi sé í sínu liði.
Þannig héldu Sovétmenn stólnum undir Gaddafi á meðan hann þóttist vera kommúnisti.
Kínverjar halda uppi glæparíkinu í Norður Kóreu auk þess sem Kína er einnig glæparíki.
Bandaríkjamenn eiga svipaða sögu vítt um þriðja heiminn.
Halda t. d. uppi mannréttindabrotum Saudi Araba og Ísraelsmanna auk þess að stunda þau sjálfir á Gvantanamo.
Og hafa komið sér upp óvinum, og óvildarmönnum, á nánast hverju fleti heimsins.
![]() |
Rússar vilja engin afskipti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2012 | 05:33
Hún er hins vegar velkomin til Íslands.
Það liggur alveg í augum uppi að þessi leikkona er bráðvelkomin til Íslands, þó hún sé fatalítil greyið litla.
Minna má nú sjá og veitir ekki af að hressa upp á íslenskt kvikmyndalíf.
Eftir að Þráinn lét drepa Kvikmyndaskóla Íslands.
Og styður ríkisstjórnina samt.
![]() |
Meinuð landvist vegna nektarmynda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2012 | 00:50
Hafnarstjórinn er herforingi í standgæslu Ítalíu.
Hafnarstjórinn í Livorno, Gregorio Maria De Falco er freigátukapteinn, lieutenant commander í ítölsku strandgæslunni.
Sams konar tign og major í landhernum.
Allt að einu þá heyrist vel að þarna skipar herforingi sem ekki hlustar á neitt múður.
Hér er hlekkur með góðri þýðingu á samtalinu:
http://rorate-caeli.blogspot.com/2012/01/can-we-get-gregorio-de-falco-named.html
Það er auðséð að maðurinn myndi vinna forsetakosningar á Ítalíu, yrði kosið nú.
![]() |
Sagði skipstjóranum að fara um borð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)