22.1.2012 | 01:40
Sjálfstæðismenn vilja að Ólafur verði næsti forsætisráðherra.
Einhver sagði að Ólafur gæfi áfram kost á sér sem forseti.
Ef á hann yrði skorað af slíkum fjölda að ljóst væri að sigurinn yrði hans.
Halda mætti að skoðanakannanir væru nægileg vísbending en Ólafur veit betur.
Með síðustu skipum gæti einhver komið upp og "bjargað" stöðunni.
Þá aðferð notaði Ólafur einmitt sjálfur er hann varð forseti.
Undirrituð áskorun er sterkari en já í skoðanakönnun.
-----------
Kurteislega afþakkaði Sjálfstæðisflokkurinn þingmeirihluta í næstu alþingiskosningum.
Gamalmennin á landsfundi þola ekki tilhugsun um frekari umsvif flokksins.
Því kusu þau yfir sig forystu með fortíð, eins og lýst er í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Ýmsir þingmenn flokksins eru einnig algerlega mótfallnir fleiri þingsætum til flokksins síns.
Mikilvægara að þeir sitji sjálfir á þingi, þrátt fyrir alla sína fortíð, og þverskallast því við að hætta.
Ætla jafnvel í framboð að nýju og telja það mikilvægara en að flokkurinn eigi framtíð.
Og áfram verður því vinstri stjórn í landinu en verður hún nothæf?----------------
Ekki eru aðrir sjáanlegir en Ólafur Ragnar Grímsson er leitt gæti, og sameinað, íslenska vinstri menn.
Til forystu hafa nú troðist vanhæfustu framapotarar, og ómerkilegustu tækifærissinnar, fyrr og síðar.
Jóhanna gerði út um möguleika Alþýðuflokksins til áframhaldandi stjórnarsetu árið 1994.
Með vanhæfni, óbilgirni, og gengdarlausri frekju og stofnaði Þjóðvaka utan um eigin persónudýrkun.
Og þannig bauð Jóhanna kasúldinni spillingu Framsóknarflokksins í ríkisstjórn.
Með kvótakónginn Halldór, og féhirðinn Finn Ingólfsson, í forystu framsóknarinnar í fundið fé.
Framsóknarflokkurinn eyðilagði einkavæðinguna fyrir Sjálfstæðisflokknum og þjóðinni.
Framsóknarflokkurinn lagði til lokaáfangan að þenslunni og hruninu hérlendis.
Með því að yfirbjóða í kosningaloforð um hækkuð lán frá Íbúðalánasjóði, sem bankar eltu svo því miður.
Fyrst auðvitað Kaupþing en það hétu fjárhúsin á höfuðbóli framsóknar.
Þar var meiri sóðaskapur en áður hafði sést í fjárbúskap landsmanna, jafnt innanhúss sem utan lands og steina.
Framsóknarflokkurinn ætti nú að bregða búi þessa höfuðbóls íslenskrar fjárpestar.
Engu breytir að venjulegur vinnumaður framsóknar er skynsamur og jarðbundinn ættjarðarvinur.
Höfuðból framsóknar varð að pólitískri rotþró er þjóðfélagslegir misyndismenn sölsuðu undir sig og sína.
Ásamt öðru lítilræði af auðlindum og eignum þjóðarinnar.
---------------
Steingrímur J. Sigfússon eyðilagði sögulegt tækifæri til sameiningar, þegar Samfylkingin var stofnuð.
Þessi pólitíski undanvillingur Stalíns var áfram ormaveikur af kommúnisma og fárveikur af athyglissýki.
Utan um svo mikilfenglega hæfileika varð að stofna sérstakan stjórnmálaflokk.
Vinstri hreyfingin - grænt framboð er ekki annað en sértrúarsöfnuður um dýrðlinginn Steingrím.
Í slíkum trúarsöfnuðum þvæla frelsararnir venjulegast viðstöðulausan þvætting með fyrirheitum um fagra framtíð.
Til handa aðeins þeim er fylgja frelsara sínum, trúa honum og treysta, frekar en eigin sönsum, ef einhverjir eru.
En nú bila menn í trúnni er hver söfnuðurinn, eftir annan, samþykkir skjöl með guðlasti og senda suður í blöðin.
Og í lækkandi bænhita í safnaðarheimilum, fellur nú á dýrðlinginn gráan og gugginn. Bölvaðir heiðingjar bara.
---------------
Í þjóðarbúskap þeirra Jóhönnu og Steingríms, eru heimilismenn ýmist á förum eða horfalla heima á bæ.
Og ekki búnast betur af búráðum, eða öðrum búkhljóðum, úr vinafagnaði Össurar ofan af fjósbitanum.
Nú vantar vinstri menn meindýraeyði að hreinsa út bæði púka og pólitísku óværu.
---------------
Eftir næstu kosningar getur því aðeins Ólafur Ragnar Grímsson myndað nothæfa ríkisstjórn.
Þar eð sjálfstæðismenn þverfóta ekki í fortíðarrusli og óþrifunum heima við, og því síður af bæ.
Kannski að Davíð Oddson væri tilleiðanlegur til að líta aðeins aftur við, og hreinsa til?
Þá fengju sjálfstæðismenn meirihluta og Ólafur slyppi við að ferðbúa koffortin af Bessastöðum.
Því ekki kæmu þau að hjálpar honum, Jóhanna, Steingrímur eða Össur, frekar en á Indlandi forðum.
![]() |
10.000 undirskriftir á sólarhring |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2012 | 20:23
5600 svona festingar í Airbus A 380
Það er starf flugvirkja og flugvélaverkfræðinga, eftir að flugvél hefur verið smíðuð.
Að fylgjast kerfisbundið með ástandinu á öllum hlutum og skipta þeim út eftir þörfum.
Á sínum tíma kom upp svipað vandamál í bæði Boeing 747 og 737 er var að sjálfsögðu leyst.
Þessi stærsta farþegaþota heims hefur sína barnasjúkdóma eins og við mátti búast.
Hér er rætt um stykki er tengja ysta lag vélarinnar við burðarrima í vængjum og bol.
(Rib to skin panel attachment eða rib feet).
Sprungurnar fundust fyrst í vél ástralska félagsins Quantas er skemmdist við hreyfilsprengingu í nóv. 2010.
Hárfínar sprungur hafa fundist í festingum í vængjum en ekki bol vélanna.
Fyrra vandamálið snýr að götum festinganna og lausnin er að gera götin á annan hátt í framleiðslu.
Hitt vandamálið snýr að lóðréttu hliðum festinganna (vertical web) og endanleg lausn er ekki fyrirliggjandi.
Gríðarleg átök eru að sjálfsögðu í vængjum slíkra véla og þarna kemur tvennt til greina.
Að álagið fari yfir áætluð mörk eða hitt, sem er sennilegra, að gallar séu í framleiðslu festinganna.
Strax og flugvirkjar finna sprungur er skipt um festingarnar sem þó er aðeins tímabundin lausn.
Því hafa flugmálayfirvöld fyrirskipað fleiri skoðanir á vængjunum en þessar reglubundnu.
Þegar framleiddar verða sterkari festingar verður skipt um þær í öllum vélunum á tilteknum stöðum.
Það er einmitt út af svona málum sem menn eiga ekki að taka sér far með flugvélum þriðja heimsins.
Nema þeim sem sem hafa heimild til að fljúga inn í Bandaríkin og Evrópu.
Fjöldi t. d. afrískra flugvéla mega ekki fljúga yfir til Evrópu þar sem viðhaldið hjá þeim er í skötulíki.
Enn sést ég fullkomlega áhyggjulaus upp í t. d. þotur Flugleiða eða skrúfuþotur Flugfélagsins.
Við þurfum að gæta þess vel að missa ekki niður gæðastaðalinn á fluginu okkar.
![]() |
Sprungur fundust í vængjum flugvéla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2012 | 16:34
Sammála um það eina mál.
Að sitja sem lengst í stólunum.
Því miður er það saga íslenskra vinstri stjórna.
Að vera lítt starfhæfar vegna innbyrðis deilna um keisarans skegg eða eitthvað enn ómerkilegra.
Oftast springa þær fyrir hlé en að öðrum kosti hafa þær verið starfsstjórnir í reynd.
Ráðherrarnir reyna að kreista saman augun og vona að næstu kosningar komi aldrei.
En auðvitað hafa þessar vinstri stjórnir allar gert alls konar eitthvað.
Nema fyrir fólkið í landinu. Það er bara í kosningabæklingunum.
![]() |
Ríkisstjórnin ekki í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2012 | 05:20
Og byrjaði sjálfur á að hjálpa Baugsfjölskyldunni.
Hann Steingrímur ætlaði sko ekki að hlífa sér við skítmoksturinn úr stjórnmálaflórnum.
Hans fyrsta verk í forinni á höfuðbóli Samfylkingar.
Var að hjálpa þar Baugsfjölskyldunni að komast þar upp með fjölmiðla sína úr drullunni.
Og Steingrímur lætur sér vel líka, utan við Samfylkingarbæinn.
Þótt skvett sé á hann úr öllum koppum nema af hundunum sem míga utan í hann beint.
Því það er sko mestur munurinn.
Að sitja á ráðherrastól í fjóshaugnum.
![]() |
Ætluðu ekki að hlífa stjórnmálamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2012 | 01:27
Þurfa ekki málefnaleg rök.
Alþingi ákvað að ákæra Geir H. Haarde, einan ráðherra, án þess að hægt væri að færa málefnaleg rök fyrir slíkri niðurstöðu.
Niðurstaðan byggðist á geðþótta meirihluta alþingismanna sem venjulega er ekkert við að athuga.
En einnig í því máli á hefndarþorsta og sálsjúku hugarfari án nokkurra nákvæmlega tilgreindra lögbrota.
Aðeins löngun og von hluta þingmanna, og ráðherra, um að saksóknari finndi einhver lögbrot.
Sem saksóknari fann ekki en gaf samt út opna ákæru, fyrir allt og ekkert.
Í þeirri von að Landsdómur finndi einhver lögbrot og bætti ákæruna upp.
Fræðimenn hefðu aldrei náð upp í nef sér, yfir svo fráleitum vinnubrögðum og því síður að skrif þeirra gerðu það.
Alþingismönnum er heimilt að skipta um skoðun að eigin geðþótta án þess að færa fyrir því frekari rök.
Hvernig alþingismenn greiða atkvæði eiga þeir eingöngu við sjálfa sig. Og þá sem þeir bæðu um að kjósa sig aftur.
Alþingismönnum ber engin lagaleg skylda til að hafa vit á því sem um er fjallað sem oft má sjá.
Alþingismönnum er fullkomlega heimilt að afturkalla ákæruna á Geir H. Haarde.
Og þurfa fyrir því engin rök nema þeir vilji.
Aðeins geðþótta.
![]() |
Hafi þau skömm fyrir um aldur og ævi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2012 | 23:05
Enda byggð á lögvillu.
Í frávísunartillögunni er því haldið fram að um málið gildi stjórnsýslureglur.
Það er rangt.
Stjórnsýslureglur og skilgreiningu á þeim er að finna í stjórnsýslulögum nr. 37/1993.
Þar segir svo í 1. gr. I. kafla laganna:
"I. kafli. Gildissvið laganna.
1. gr. Gildissvið. Lög þessi taka til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga..."
Til að skilja þýðingu fyrstu greinar laganna ber að skoða athugasemdir þær sem fylgdu frumvarpinu:
"Athugasemdir við einstakar greinar og kafla frumvarpsins.
Um I. kafla. Í þessum kafla er fjallað um hvert skuli vera gildissvið laganna,
þar á meðal gildissvið þeirra gagnvart öðrum lögum.
Um 1. gr.
Gert er ráð fyrir að lögin taki til allrar stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga.
Skiptir í því sambandi ekki máli hvort stjórnsýslan er í höndum sérstakra stofnana á vegum ríkis eða sveitarfélaga né heldur hvort slíkar stofnanir lúta stjórn nefnda, ráða eða stjórna, kjörinna af Alþingi eða sveitarstjórnum.
Sem fyrr segir er það hins vegar skilyrði að um sé að ræða stjórnsýslu, þ.e. þá starfsemi sem heyrir undir framkvæmdarvaldið samkvæmt þeirri þrískiptingu ríkisvaldsins sem mælt er fyrir um í 2. gr. stjórnarskrárinnar.
Þannig taka lögin ekki til löggjafarvaldsins, þ.e. starfsemi Alþingis og stofnana þess, svo sem umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðunar..."
Saksóknari Alþingis er stofnun sem heyrir undir Alþingi.
Það getur því ekkert verið skýrara að stjórnsýslureglur eiga ekki við um störf saksóknara Alþingis.
(Lit- leturbreyting V.J.)
![]() |
Frávísun felld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.1.2012 | 20:39
Nú bið ég Atla Gíslason afsökunar og hneigi mig fyrir honum.
Á sínum tíma leyfði ég mér að halda því fram að Atli Gíslason skyldi rekinn úr lögmanafélaginu.
T. d. í þessu bloggi hér.
http://viggojorgens.blog.is/blog/viggojorgens/entry/1094590/
Nú bið ég Atla forláts á þeim orðum og öðrum stærri og hneigi mig fyrir honum.
Djúpt, þar til ég fæ í bakið.
![]() |
Tel að við höfum gert mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.1.2012 kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2012 | 20:26
Loftræstikerfið.
Hermannaveiki er bakteríusýking sem varð fræg eftir að hafa smitað fjölda eldri hermanna.
Þeir voru á ráðstefnu á hóteli í Bandaríkjunum.
Á endanum fannst sú baktería í loftræstikerfi hússins.
Sem fjölgar sér í t. d. í vatni eins og þessi á Norður Írlandi.
Tengist lágu súrefnismagni í vatninu.
Af kannski ónægu eftirliti og sóðaskap.
Meira um hermannaveiki hér:
http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=5289
![]() |
Þrjú börn látist vegna bakteríusýkingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2012 | 01:19
Með melluna um borð.
Í eina tíð þótti sjómönnum sjálfsagt að taka mellurnar um borð í skip sín um leið og komið var inn í Miðjarðarhafið.
Og skila þeim heim í bakaleiðinni út í Atlantshafið aftur. l
Strandkafteinninn ítalski var einmitt líkari melludólg en skipstjóra á skemmtiferðaskipi.
Bindislaus með óhneppta skyrtuna fyrir ofan nafla.
Ekki að furða að hann hraðað sér burtu til að sleppa kannski við blóðprufu.
Og hafi reynt að halda strandgæslunni fjarri.
Í Wall Street Journal má lesa þetta:
"...Prosecutors are also seeking to speak with Domnica Cemortan, a 25-year-old Moldovan woman who several accounts say was with the captain that night, said a person close to the investigation.
Italian daily Il Secolo XIX on Thursday published a photo it said portrayed Ms. Cemortan dining and drinking wine with the captain an hour before the collision occurred.
In a TV interview earlier this week, one of the ship's cooks said the captain had sent for dinner and wine for himself and a woman as the ship was sinking. It was unclear from the interview if the cook was referring to the same woman.
Mr. Schettino has denied consuming alcohol that night. Results of a blood test that Italian authorities conducted on Mr. Schettino after the shipwreck have not been released.
In a Moldovan television interview and on her Facebook page, Ms. Cemortan described herself as an off-duty crew member who aided the ship's command by translating evacuation instructions for Russian passengers. The captain "did a great thing. He saved more than 3,000 lives," she said in the interview. Costa Crociere said in a statement that the woman boarded the ship as a passenger and was "duly registered."
Þetta verður varla skrautlegra úr þessu.
http://online.wsj.com/article/SB10001424052970204301404577170292661082650.html
![]() |
Vilja yfirheyra konu frá Moldavíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2012 | 01:11
Sterarnir kona, sterarnir.
Þetta kemur heima og saman við yfirlýsingar lækna.
Sem um langt árabil hafa haldið því fram að kynfæri rýrni og kyngeta minnki hjá karlmönnum.
Ef þeir pumpu sig upp með sterum í líkamsræktinni, gerðinni sem stækka vöðvanna svo mjög.
Pétur Pétursson heilsugæslulæknir lenti einmitt í málaskaki við móðgaða vaxtaræktarmenn.
Sem Pétur taldi að yrði lítið undir og ræfilslegt.
Vonandi að Brigitte sleppi og fái sér steralausa karla, til að halda uppi bólfjörinu.
![]() |
Stallone lélegur bólfélagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |