4.3.2012 | 18:41
Það er einmitt hlutverk þjóðhöfðingja, hver sem hann er.
Að vera fastur og traustur hluti af tilverunni á óvissutímum.
Í síðustu heimsstyrjöld reið Bretakonungur daglega um götur London hvað sem loftárásunum leið.
Bretar sáu að konungur þeirra lét ekki hugfallast á óvissum tímum sem stappaði auðvitað í þá stálinu.
Ég hef nefnt það áður, að Ólafur Ragnar ber ábyrgð á þessari svika ríkisstjórn íslenskra vinstri manna.
Ólafur er guðfaðir ríkisstjórnar sem tók afstöðu með ESB og alþjóðlegu banka- og peningavaldi.
Ríkisstjórnar sem tók afstöðu á móti hagsmunum fólksins í landinu til að þóknast kröfum ESB.
Ólafur hefur tvívegis bjargað þjóðinni í horn í þeim málum.
Ólafur ber ábyrgð á að standa vörð um þjóðina þar til hún er sloppin úr höndum svikulla vinstri manna.
Landráðamanna er vilja svíkja þjóðina í hendur nýlenduþjóða á ný og auðlindir hennar í meðgjöf.
Það er mesti misskilningur að málið snúist lengur um persónu Ólafs Ragnars Grímssonar.
Málið snýst um framtíð íslensku þjóðarinnar. Eða hvort hún eignist einhverja framtíð.
Að þjóðin og eigur hennar séu ekki svikin í hendur þess erlenda auðvalds sem stjórnar ESB í raun.
Af því að einhverjir kratahöfðingjar skoluðu niður dómgreindinni í veislunum í Brussel.
Og eru enn jafn sannfærðir um ágæti ESB, þó að renni af þeim hér heima.
Enda dómgreind þeirra ekkert skolað á fjörur hingað heim.
Það er mesti misskilningur að sósialdemókratar stjórni ESB, þó að þeir haldi það sjálfir í sinni barnatrú.
Enda sést að mismunun og stéttaskipting er hvergi jafn traust og í gömlu nýlenduríkjunum í ESB.
Nema ef vera kynni í Indlandi enda lærðu Indverskir höfðingjar af Bretum.
Og ég leyfi mér að nefna það, enn einu sinni, að hérlendis eru megin kostirnir tveir.
Að Ólafur Ragnar Grímsson sé áfram forseti og líti eftir þessari ríkisstjórn sinni eða verði sjálfur forsætisráðherra.
Hinn kosturinn er að Davíð Oddsson taki að sér að verða formaður Sjálfstæðisflokksins í ein fimm ár.
Og myndi hér starfshæfan Sjálfstæðisflokk og starfshæfa ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og t. d. Samstöðu.
Hálfur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins álpaðist í spillingarfenið fyrir bankahrun.
Og gengur ekkert, nema illa, að verka af sér mýrina. Hefðu betur farið um fenið í betri félagsskap.
Og eru svo hissa sumir á að forstjórar eftirlitsstofnanna hafi jafnvel farið á svig við lög.
Við að líta eftir þeim og rannsaka þá. Af hverju skyldi það vera? Enginn spyr að því.
Ef allt væri með felldu væri fylgi Sjálfstæðisflokksins yfir 50% undir ónýtustu ríkisstjórn sögunnar.
Davíð ætti að koma aftur og hreinsa til, áður en fylgið heldur áfram að hrynja.
Það er útbreidd trúarkredda vinstri manna að Davíð eigi einhverja höfuðsök á bankahruninu.
Davíð varaði einmitt við þeim mönnum sem innleiddu vinnubrögð hrunsins hérlendis.
Þeirra sem Samfylkingin ættleiddi og Ingibjörg Sólrún fóstraði á hægra brjóstinu.
Í þeirri trú að óvinir óvinarins væru vinir Samfylkingarinnar og þjóðarinnar.
Enn einn misskilningurinn hjá bláeygðum, og barnslega saklausum, vinstri mönnum.
![]() |
Margvísleg óvissa er ástæðan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.3.2012 kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2012 | 07:53
Hér kemur smá upprifjun.
Neðangreind reifun var í á AMX vefnum á árinu 2009.
"Forsætisnefnd Alþingis tók fyrir á fundi 22. janúar síðastliðinn þátt Álheiðar Ingadóttur, núverandi heilbrigðisráðherra, í mótmælum við Alþingishúsið síðasta vetur.
Þar var því haldið fram að Álfheiður hefði verið í beinu sambandi við mótmælendur.
Í frétt Ríkisútvarpsins 23. nóvember á síðasta ári var því haldið fram að
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður vinstri grænna, var ein þeirra sem tók þátt í áköfum mótmælum við Lögreglustöðina við Hverfisgötu sem fóru fram daginn áður.
Í samtali við Morgunblaðið í dag (9. desember) gagnrýnir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, framkomu Álfheiðar í mótmælunum síðasta vetur.
Í gær birtist grein í Morgunblaðinu eftir Gylfa Guðjónsson, fyrrverandi lögreglumann, um átökin við Alþingishúsið. Þar sagði Gylfi meðal annars að núverandi heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra hafi veifað til mótmælenda út um glugga þinghússins og utandyra til að þá til dáða í stórhættulegum athöfnum og afbrotum.
Margir lögreglumenn gengu frá þeim leik slasaðir og niðurbrotnir, skrifar Gylfi en greint hefur verið frá því að a.m.k. níu lögreglumenn hafi lagt fram bótakröfur vegna áverka sem þeir hlutu í átökunum. Miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir bendir flest til þess að efnisleg rök séu fyrir gagnrýni lögreglumanna á Álfheiði.
Nokkur hundruð manns komu saman fyrir framan lögreglustöðina á Hverfisgötu 22. nóvember á síðasta ári til að mótmæla handtöku Hauks Hilmarssonar, sem er þekktur aðgerðasinni og hafði meðal annars flaggað Bónusfána á Alþingishúsinu nokkru áður.
Síðar viðurkenndi Stefán Eiríksson, lögreglustjóri að handtakan hafi verið illa tímasett, en handtakan var vegna tveggja sektardóma frá í ágúst 2007, sem Haukur hafði í engu sinnt.
En mótmælin við lögreglustöðina, sem Ríkisútvarpið fullyrðir að Álfheiður Ingadóttir hafi tekið þátt í, fóru úr böndunum og segir svo í frétt útvarpsins: Lögreglan Lögreglukona við Alþingishúsið.
Mótmælendur við Hverfisgötuna brutu að minnsta kosti 5 rúður á lögreglustöðinni, beittu gangstéttarhellu til að brjóta glugga í aðalhurð hússins og sóttu síðan stærðar viðardrumb og reyndu að brjóta með honum innri hurðina í anddyri lögreglustöðvarinnar. Þegar þangað var komið brá lögreglan á það ráð að beita piparúða gegn fjöldanum. Síðan tóku sérsveitarmenn sér stöðu fyrir framan húsið og vörðu það. Þá kom til handalögmála. Álfheiður segist ekki geta lagt mat á það hvort mótmælendur hafi gengið of langt. Steingrímur J Sigfússon, formaður vinstri grænna, segir Álfheiði ekki hafa farið yfir strikið. Vinstri grænir hafi tekið þátt í mótmælunum almennt og á meðan menn geri ekkert ólöglegt sé ekkert við þá að sakast.
Pétur Blöndal, blaðamaður á Morgunblaðinu skrifaði í blað sitt 16. desember síðastliðinn um mótmælin og lýsti meðal annars átökum milli starfsmanna Alþingis og mótmælenda sem reyndu að brjótast inn í þinghúsið. Því áhlaupi var hrundið eftir að liðsauki bast frá lögreglunni. En síðan segir Pétur:
Á Alþingi Íslendinga er þingmaður sem lætur lögreglumennina heyra það á meðan þeir reyna að hafa hemil á mótmælendum. Það er Álfheiður Ingadóttir. Sami þingmaður sá ekkert athugavert við að mótmælendur réðust inn í lögreglustöð. Henni fannst lögreglan ganga of langt! Sonur hennar stóð hinsvegar í stórræðum og eiginmaður hennar greiddi sektina fyrir þann sem inni sat.
Forsætisnefnd tók mál Álheiðar fyrir Á fundi forsætisnefndar Alþingis 22. janúar var, eins og áður segir, fjallað um framgöngu Álfheiðar í mótmælunum
og sagðist Kjartan Ólafsson, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa orðið vitni að því að Álfheiður Ingadóttir hafi verið í sambandi við fólk utan þinghússins, þegar mótmæli voru við húsið.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. núverandi forseti Alþingis, sagði að margir hefðu nefnt svipað í sín eyru.
Fundargerð forsetanefndar frá 22. janúar 2009 Viðstödd voru Sturla Böðvarsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Kjartan Ólafsson, Einar Már Sigurðarson (kom stuttu fyrir lok fundar), Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Kristinn H. Gunnarsson. Magnús Stefánsson sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi. Þá sátu fundinn Helgi Bernódusson skrifstofustjóri og aðstoðarskrifstofustjórarnir Karl M. Kristjánsson, Vigdís Jónsdóttir og Þorsteinn Magnússon.
ÞM ritaði fundargerð.
1. Aðgerðir við Alþingishúsið. Forseti gerði varaforsetum grein fyrir því alvarlega ástandi sem skapast hafði í óeirðum við Alþingishúsið í gærkveldi og nótt í tengslum við mótmælaaðgerðir gegn ríkisstjórninni. Hann greindi frá því að m. a. hafi eldi verið varpað að þinghúsinu, nær 30 rúður eyðilagðar í húsinu og fleiri skemmdir unnar.
2. Framganga tveggja þingmanna gagnrýnd. Forseti gerði að umtalsefni viðtal við Grétar Mar Jónsson alþingismann í DV í dag, en þar greinir GMJ frá því að hægt sé að komast um gangveg neðanjarðar frá Alþingishúsi yfir í Kristjáns- og Blöndahlshús. Forseti sagði að hér væri um alvarlegt mál að ræða þar sem þessar upplýsingar gæti orðið til þess að óspektarmenn beindu spjótum sínum að þessum timburhúsum sem gætu auðveldlega orðið eldi að bráð.
Þá greindi KÓ frá því að hann hefði orðið vitni að því að Álfheiður Ingadóttir alþingismaður hefði verið í sambandi við fólk utan hússins og virst vera að veita þeim upplýsingar um viðbúnað lögreglu. ÁRJ sagði að margir hefðu nefnt svipað í sín eyru. Forseti sagðist hafa átt fund með ÁI og formanni þingflokks Vinstri grænna um málið og hefði hún neitað ásökunum."
![]() |
Álfheiður segir málinu lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2012 | 16:48
Álfheiður og Svandís, ef þú kannast við nöfnin Steingrímur.
Þeir sem voru í innsta hring, í að skipuleggja mótmælin, vissu vel að Álfheiður Ingadóttir var að stjórnast í framkvæmd þeirra.
Og að Svandís Svavarsdóttir, þá borgarfulltrúi, var einn af liðsforingjum Álfheiðar úti á Austurvelli.
Það er líklega of seint fyrir Steingrím að biðja um rannsókn á farsímanotkun þingmanna sinna á þessum tíma.
En hann hlýtur samt að láta reyna að það þegar hann er búinn að kæra þetta.
Úr því að hann er orðinn áhugamaður um sannleikann.
Svo eru menn að hneykslast yfir því að símar kommúnista væru hleraðir á sinni tíð.
Fólk sem hefur byltingu á stefnuskránni ætti auðvitað að hlera öllum stundum.
![]() |
Vill að sannanir verði lagðar fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.2.2012 kl. 07:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.2.2012 | 01:39
Steingrímur verður meira og meira geggjaður.
Það var þjóðin sjálf sem bjargaði sér með því að herða sultarólina og eins og hún er vön.
Mest þó þeir atvinnulausu, svöngu og eignasviptu.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stjórnaði landinu með leiðréttingum sem Lilja Mósesdóttir og samstarfsfólk hennar fengu fram.
Ríkisstjórnin gerði nákvæmlega ekkert nema sækja fyrirmælin til AGS í Washington.
Þangað fór Steingrímur margsinnis til að fá ný fyrirmæli eftir að þeir hættu að nenna að koma hingað sjálfir.
Frú Jóhanna hugsaði hins vegar eingöngu um þá dýrð að komast í spillinguna í ESB þar sem Össur hefur setið að krásunum.
Og létu Steingrím um snattið til Washington að taka við rassskellingum eftir því sem þurfti.
En það vantar ekki að Steingrímur virðist hafa gleypt þessa þvælu sjálfur.
Að þjóðin hafi bjargast af þeim uppsölujafning sem ríkisstjórnin hefur reynt að sjóða niður.
Og fengið einhverja eitrun af öllum krásunum.
Meira en bara í magann.
![]() |
Björguðum Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.2.2012 | 16:31
Góðglaðir málskrúðsmenn.
Annar góðglaður utanríkisráðherra var fyrir nokkrum árum í ríkisstjórninni á daginn.
En helstur stjórnarandstæðingur, að næturlagi, eftir að hafa fengið sér kvöldhressinguna og byrjað að blogga.
Báðir eru þeir málsnjallir, skemmtilegir í viðræðu og bráðgreindir bókamenn að upplagi.
En dómgreindin, hvert skolaðist hún?
Ráð þessarra tveggja utanríkisráðherra er að við göngum í Evrópusambandið.
Ætlar þjóðin að byggja framtíð sína á dómgreind slíkra manna?
Það segir þá allt sem þarf.
![]() |
Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.2.2012 | 00:49
Alveg nóg til að sofna í baðinu.
Lórazepam er róandi, kvíðastillandi og svæfandi lyf.
Einmitt "gott" í baði ef það á að slaka verulega vel á og svo, upp úr, að sofa.
Þess vegna, og af því að það er líka öndunarslæfandi, á viðkomandi að hafa einkabaðvörð.
Hvort sem það er maki, hjúkrunarfólk eða annað starfsfólk.
Og þess þá heldur ef viðkomandi er einnig undir áhrifum lyfjanna valíum og xanax.
Að vera þreyttur og sæmilega ölvaður, eins og sást á myndunum af WH fyrr um kvöldið.
Ef hún í því ástandi, hefur skellt í sig öllum þessum lyfjum og svo í bað.
þá var bara eðlilegt að konan skyldi drukkna í baðinu, eða að hún fór í öndunarstopp og hjartastopp.
Út því að engin af starfsliðinu var að vakta hana.
![]() |
Var með róandi lyf í líkamanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.2.2012 kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2012 | 00:30
Var skipið haffært?
Fyrir tveimur árum sökk skip, á leið í brotajárn, við suðurland.
Það var seint um haust og allra veðra von.
Og nú má spyrja; þarf að setja fleiri reglur?
Geta menn bara ekki sagt sér sjálfir, að skip sem eru orðin brotajárn.
Eigi að flytja að sumri til, yfir Atlantshafið?
Eða tengdist veðrið ekkert þessu hörmulega slysi?
![]() |
Mennirnir taldir af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2012 | 17:28
Hótanir eru vinnulag Jóhönnu.
Stjórnmálaferill Jóhönnu er samfelld röð af heimtufrekju og hótunum.
Að heimta og hóta eru hennar sterkustu hæfileikar.
Nú hótar hún að hrinda Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur niður í gólfið úr forsetastólnum á Alþingi.
Hvort sem hún hefur til þess þingstyrk eða ekki.
Enn eitt dæmið um að Jóhanna Sigurðardóttir er fullkomlega vanhæf til að húka á stól forsætisráðherra.
Starfi sem felst í því að laða fram það besta hjá sínu samstarfsfólki.
Enda lítur þjóðin ekki á hana sem forsætisráðherra frekar en gamla skán í suðupotti.
Og ekki frekar en Halldór Ásgrímsson sem fékk stólinn fyrir snuð svo að hann hætti að suða.
![]() |
Ekki útilokað að Ásta R. víki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2012 kl. 03:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.1.2012 | 17:09
Framsóknarmenn munu ráða úrslitum.
Þessir þingmenn vilja ekki afturkalla ákæru Alþingis á Geir H. Haarde:
Álfheiður Ingadóttir, Auður Lilja Erlingsdóttir (eða Árni Þór Sigurðsson), Birgitta Jónsdóttir, Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Magnús M. Norðdahl (varamaður Katrínar Júlíusdóttur, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús Orri Schram, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Oddný G. Harðardóttir, Ólína Torfadóttir, Róbert Marshall, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Þór Saari, Þráinn Bertelsson, Þuríður Backman.
Þetta eru 28 þingmenn.
Óvíst er um afstöðu Guðbjarts Hannessonar og einnig hvort Björgvin G. Sigurðsson mun kalla inn varamann.
Þá er ljóst að Lilja Mósesdóttir telur forsendur ekki hafa breyst en spurning hvort hún sæti hjá.
Alls eru því í mesta lagi 31 þingmaður sem fyrirsjáanlega gætu greitt atkvæði á móti niðurfellingu ákæru.
Eftirtaldir þingmenn vilja afturkalla ákæru Alþingis á Geir H. Haarde:
Atli Gíslason, Árni Johnsen, Árni Páll Árnason, Ásbjörn Óttarson, Ásmundur Einar Daðason, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Birgir Ármannsson, Bjarni Benediktsson, Einar K. Guðfinnsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Bragi Sveinsson, Illugi Gunnarsson, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Kristján L. Möller, Kristján Þór Júlíusson, Ólöf Norðdal, Pétur Blöndal, Ragnheiður E. Árnadóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.
Alls eru þetta 29 þingmenn.
Þá eru ótaldir þingmenn Framsóknarflokksins þeir Birkir Jón Jónsson, Höskuldur Þórhallsson og Vigdís Hauksdóttir.
Þau munu annað hvort fylgja því að fella niður ákæru á Geir H. Haarde einan, eða sitja hjá.
Nú er því líklegast að Alþingi muni afturkalla ákæruna á Geir H. Haarde sem er eðlileg niðurstaða.
Enda Jóhanna byrjuð að hóta Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur að sparka undan henni þingforsetastólnum.
Þó að hún sé hölt, skökk og fótaveik.
Viðbót við færslu dagsett 2. mars 2012.
Hér hef ég misreiknað Sigmund Erni Rúnarsson, hann hefur látið snúa sig niður.
Guðbjartur Hannesson er orðinn ráðherra hjá Jóhönnu og stendur því ekki við sannfæringu sína.
Jafn ómerkilegir og flúðu af hólminum
eru Björgvin G. Sigurðsson, Kristján Möller og Árni Páll Árnason.
![]() |
Erfitt fyrir stjórnmálin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.3.2012 kl. 16:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.1.2012 | 00:39
Og drepa þau svo úr eitri. Heilu þorpin og allir með krabbamein.
Kínverjar eru langt komnir fram úr öðrum þjóðum í að eitra fyrir sjálfum sér og börnum sínum.
Frá upphafi hafa Kínverjar ekkert gefið fyrir mengunarvarnir og eftir uppganginn þar á undanförnum árum hefur keyrt um þverbak.
Viða er grunnvatn óþverri, jarðvegur mengaður og sömuleiðis vatnið í ánum.
Blý, cadmíum og aðrir þungmálmar eru komnir yfir velsæmismörk í kínverskum börnum, jafnvel 1/3 hluta þeirra.
Í næst menguðustu borginni eru börn með 88% hærra blýmagn í blóði en leyfilegt er.
"...760,000 people die prematurely each year in China because of air and water pollution.
High levels of air pollution in China's cities leads to 350,000-400,000 premature deaths, it said.
Another 300,000 die because of indoor air of poor quality.
The newspaper article, quoting World Bank advisers and Chinese officials,
also said that the report omitted research showing that there are 60,000 premature deaths each year
because of water of poor quality..."
Sjá nánar:
http://en.wikipedia.org/wiki/Pollution_in_China
Hér er svo frétt um að sums staðar séu allir í þorpinu komnir með krabbamein:
http://www.dailymotion.com/video/x3ggdr_11082007-terrible-pollution-in-chin_news
Á einni spólunni er vitnað í Alþjóðabankann og sagt að 46,7% Kínverja lifi af 2 dollurum á dag.
Og þar af 16,6% þeirra á minna en 1 dollara á dag.
Vel má þá ímynda sér hvaða áhuga yfirvöld hafa á vinnuaðstæðum eða mengunarvörnum hjá því fólki.
![]() |
Vænta barnaláns á ári drekans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2012 kl. 03:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)