Eins og ef hérlendis væru tíu skotnir á ári.

Árlega eru tíu þúsund manns skotnir í Bandaríkjunum. 

Það er eins og ef tíu væru skotnir árlega á Íslandi.

Byssudýrkun Bandaríkjamanna er hræðileg.

Í orðsins fyllstu merkingu.  


mbl.is Boðflennur á blaðamannafundi NRA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælabullur.

Endurbirti blogg frá 1. janúar 2009:

Mótmælendur eða mótmælabullur?

Samkvæmt lögreglusamþykkt er óheimilt að vera dulbúinn á almannafæri.

Það þarfnast skýringa af hverju nokkrir mótmælendur eru alltaf dulbúnir eins og hryðjuverkamenn.

Meira að segja á Bessastöðum voru einhverjir dulbúnir í kaffi.

Þá þarf að fá á hreint hvort eitthvað af þessu fólki er bara í mótmælum til að komast í slagsmál og skemmdarverk.

Svona svipað og fótboltabullur í Englandi sem hafa engan áhuga á fótbolta en því meiri á slagsmálum, skemmdarverkum og líkamsmeiðingum.

Að koma í veg fyrir lýðræðislega umræðu í sjónvarpi, þar sem stjórnarandstaðan tekur þátt. Hvaða tilgangi þjónar það?

Að henda grjóti í venjulegan launamann í lögreglunni og slasa hann á höfði.

Hvaða málstaður getur réttlætt það?

Á sama hátt þarf að komast að því, hvort fáeinir lögreglumenn misnoti ítrekað valdbeitingarheimildir lögreglu, með því að beita harðræði umfram tilefni.

Okkar góða lögregla þarf að losna við slíka einstaklinga, séu þeir til.

Á hinn bóginn er eðlilegt að lögreglan beiti vopnum á einstaklinga eða hóp manna sem hafa gripið til vopna í verki og slasað fólk með þeim.

Skiptir þá ekki máli hvert vopið er eða hver hinn slasaði er.

Lögreglunni ber að leysa upp slíkan vopnavettvang.

Friðsamleg og lögleg mótmæli koma lögreglunni hins vegar ekkert við.


mbl.is Gengu í lið með lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólakveðjur að sunnan.

Sendi langfrænda mínum Vilhjálmi kveðjur og þakkir.

Fyrir að skrifa þessa sögu sem ekki má gleymast. 

Hvernig lífsbaráttan var á síðustu öld.  Eins og menn reyndu hana á eigin skrokki, og samferðamanna, heima á bæ.  


mbl.is Nær 100 ára með ritræpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk þrautsegja sem kom okkur í gegnum aldirnar.

Af hverju komust við í gegnum aldirnar í eldgosum, móðuharðindum, pest og plágu?

Það var nákvæmlega vegna þess að við áttum fólk eins og Brian Roff.

Óbilandi þrautseigja og fyrirhyggja í bland við óútskýranlegt innsæi í samtíð sína og umhverfi.  

Það var kallað að kunna fótum sínum forráð og til þess þurfti brjóstvit. 

Á okkar dögum er samfélaginu stjórnað af því stórgáfaða fólki.

Sem hefur ekkert vit.

 

 

 

 


mbl.is Íslendingur vann hetjudáð í Kaliforníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn ræður hvort dómnum verður fullnægt.

Samkvæmt bandarískum herlögum er forsetinn einráður um það hvort að dauðadómum yfir hermönnum er fullnægt.

Sá frægi uppljóstrari Bradley Manning var stálheppinn að hafa demókrata í Hvíta húsinu.

Bush forseti var áður ríkisstjóri í Texas og skrifaði viðstöðulaust upp á dauðadóma á færibandi. 

Hefði hann verið í Hvíta húsinu og Rumsfeld varnarmálaráðherra hefði Bradley ekki átt von á góðu. 

Bradley braut nefnilega af sér sem hermaður í stríði sem er mjög alvarlegt mál samkvæmt herlögum. 

Sem sést svo sem á því að herinn hefur meðhöndlað Bradley eins og skepnu.

Og margir farnir að skammast sín fyrir þar vestra. 

Svo mjög að fangelsinu var hreinlega lokað, þessu sem hann sat í fyrst.  

http://www.quantico.usmc.mil/activities/display.aspx?PID=588&Section=SecBn
mbl.is Hermaður gæti hlotið dauðadóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En kemst slíkt bann í gegnum Fulltrúadeildina?

Samtök framleiðenda og eigenda skotvopna eru með sterkustu hagsmunahópum Bandaríkjanna.

Það er óhætt að segja að þeir eigi ákveðna þingmenn eins og Baugur á hérlendis forsætisráðherrann og fleiri þingmenn. 

Í Bandaríkjunum fer enginn í stjórnmál nema eiga fjársterka aðila að til að borga offjár í kosningasjóðinn. 

Hér heima þurfti Baugur aðeins að greiða kr. 60.000., í prófkjörssjóðinn,  fyrir Jóhönnu.  

Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfesti árið 2008 rétt einstaklinga til að eiga skammbyssur, riffla og haglabyssur.

Að samkvæmt stjórnarskránni megi einstaklingar eiga slík vopn til veiða og sjálfsvarnar.

Rétturinn tók skýrt fram að setja mætti ýmiss konar skorður við sölu á skotvopnum og hverjum selja þau.

Nær enginn vafi er á að heimilt yrði að banna t. d. hríðskotabyssur, önnur sjálfvirk skotvopn og jafnvel hálfsjálfvirk.

Vandræði Obama liggja í því að Repúblikanar eru með meirihlutann í Fulltrúadeildinni.

Og í þeim flokki eru vitleysingar eins og þingmaðurinn sem sagði að starfsmenn Sandy skólans hefðu átt að vera vopnaðir. 

Sem sagt þjóðfélag þar sem allir eru að miða skotvopnum á alla, líka á börnin í skólanum.  

Von að vel gangi. 

   


mbl.is Obama vill banna hríðskotavopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morðinginn er frekar fyrrverandi vinur barnfóstrunar.

Sá heitir Jose Ramos, og var árið 1987 dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir að níðast á tveimur drengjum. 

Hann hefur mögulega vitað að Etan litli færi einn í skólabílinn þennan dag. 

Eða ætlað að hitta á þau bæði en hitt svo drenginn einan. 

Miklu sennilegra að vinur barnfóstrunar gæti platað Etan litla með sér frekar en alls ókunnur maður. 

Af lestri um málið er þó ekki ljóst hvort að þau voru þá hætt saman þannig að drengurinn hafi ekki þekkt hann.  

Árið 2004 dæmdi dómari, í einkamáli, Ramos fyrir að bera ábyrgð á hvarfi drengsins. 

Hann var aldrei ákærður í opinberu sakamáli af því að hann neitaði staðfastlega.   Auðvitað. 

Pedro Hernandez hefur játað á sig morðið en sýnist vera gæðablóð sem þjáist af geðklofa sjúkdómi.

Stoppistöð skólabílsins var fyrir utan vinnustað hans á þeim tíma. 

Vel er hugsanlegt að hann hafi tekið hvarfið á drengnum gríðarlega nærri sér.

Svo mjög að hann hafi farið að telja sjálfan sig þann seka úr því að enginn fannst morðinginn. 

Hann fór að ræða um möguleika á því við ættingja sína fyrir meira en 30 árum.

Og hreinlega segja þeim að hann hafi hugsanlega drepið barn í New York.  

það segir kannski sitt um heilsu hans að ættingjarnir tóku ekkert mark á þessu tali hans. 

Þar til að einn þeirra fór til lögreglunnar nú í vor. 

Nákvæmlega alls ekkert rennir frekari stoðum undir framburð Hernandez.  

Það er reyndar ekki einu sinni sannað að drengurinn hafi verið myrtur. 

En hvarf hans vakti hins vegar gífurlega athygli í Bandaríkjunum og myndir of honum birtust á mjólkurfernum.

Hafi einhver rænt honum hefði verið verulega erfitt að leyna drengnum í talsverðan tíma.  

Með slæman geðklofa sjúkdóm er meira en mögulegt að Hernandez ljúgi þessu upp á sig og trúi því sjálfur. 

En hann sagðist, við yfirheyrslu, hafa ráðist á drenginn en neitaði því svo síðar hjá dómara.  

Vissulega ekki ómögulegt að hann sé sekur. Hann var þarna á þessum tíma.  

Mjög athyglisvert verður að fylgjast með framvindu þessa máls. 

    


mbl.is Gísli vinnur að 33 ára gömlu morðmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hnignun samfélagsins og hrun þess framundan.

Víst eru um það að Jón Gnarr Kristinsson er drengur góður sem á að nýta hæfileika sína til að gera grín að samtíð sinni. 

Á því sviði er hann svo mikill snillingur að hann hefur fíflað sauðheimskan almenning til að kjósa sig í borgarstjórn. 

Þar sem hann þiggur á aðra miljón króna á mánuði fyrir að gera alls ekki neitt.

Enda getur hann ekkert á þeim sviðum þjóðþrifamálanna sem hann hefur aldrei kynnt sér neitt.  

Ef þetta er ekki stórkostlegt grín þá ekki hvað?

Svo kvarta þessir kjósendur yfir kjörum sínum, hruni og vesöld.

En ætla áfram að styðja til góðra verka þá vesalinga sem ekkert kunna til þeirra.    

Það er þá von á góðu.

 
mbl.is Jón Gnarr í 5. sæti í Reykjavík norður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið að lofa Þór einhverju embætti?

Það er hefur verið nokkuð augljóst, allt kjörtímabilið, að Þór Saari styður ríkisstjórnina.

Er eitt af því sem gerði kleyft að niðurlægja Jón Bjarnason fyrir að standa með Íslandi á móti ESB. 

Það verður fróðlegt að fylgjast með því hverju ríkisstjórnin launar Þór Saari.

Hans hlýtur að bíða þægileg innivinna eftir kosningar. 


mbl.is „Liggur við að manni verði flökurt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi fær falleinkunn hjá prófessornum.

Björg Thorarensen er prófessorinn í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands. 

Björg var mjög vel heima í öllu því ferli er mannréttindakafli stjórnarskrárinnar var endurskoðaður.

Sem er eina gagngera breytingin á heilum kafla í stjórnarskránni til þessa.

Björg er því helsti sérfræðingur landsins í þessum málum. 

Og hún gefur vinnubrögðunum, á Alþingi, greinilega falleinkunn. 

Eigi að endurskoða stjórnarskrána þarf að nota til þess allt næsta kjörtímabil. 

Í góðri samvinnu allra flokka og okkar bestu sérfræðinga. 

 


mbl.is Endurskrifa þarf greinargerðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband