12.12.2012 | 08:04
Aðeins notuð sem genaferja.
HIV veiran tengist sérstaklega T eitilfrumum sem eru hvít blóðkorn og hluti af ónæmiskerfi líkamans.
Ein gerð T eitilfrumna drepur aðrar frumur sem innihalda sýkla og getur líka drepið t. d. krabbameinsfrumur.
Aðrar frumur ónæmiskerfisins þurfa venjulega að virkja T eitilfrumur, í raun og veru kalla þær til starfa.
Á síðast liðnum áratug hafa vísindamenn í læknisfræði náð verulegum árangri í lækningu á ýmsum blóðkrabbameinum.
Þar hafa þeir nýtt sér nýjustu tækni svo sem að flytja gen í T eitilfrumur og breyta erfðum þeirra og eiginleikum.
Í fréttinni er fjallað um að hluti af HIV veiru hafi verið notuð til að flytja gen inn í kjarna T eitil drápsfrumu.
T eitilfrumurnar eru teknar úr sjúklingnum sjálfum og á rannsóknarstofu er nýja geninu komið fyrir.
Þær eru síðan settar aftur í sjúklinginn en þá ráðast þær á krabbameinsfrumurnar og drepa þær án þess að vera kallaðar til þess af öðrum frumum.
Af því að HIV vírusinn er sérhæfður í að koma sér inn í T eitilfrumur þá er hluti hans notaður í þessum tilfellum.
Vísindamenn telja sig örugga með að hafa eyðilagt meingerandi hluta hans.
Svo að hann geti ekki drepið T eitilfrumurnar og gert þá viðkomandi berskjaldaðan fyrir ýmsum sýkingum.
Óskemmdur HIV virus leggst á sérstaklega á T eitilfrumur af CD4 gerð sem eru hjálparfrumur.
En í krabbameinslækningunum er hluti hans, virusvektor, notaður til að ferja gen í T eitilfrumu CD8
Þannig að breytta T eitilfruman drepur aðeins frumur með ákveðnu próteini utan á sér.
Sem eru nákvæmlega krabbameinsfrumurnar sem á að útrýma.
Frábær árangur hefur náðst í baráttunni við sumar tegundir af hvítblæði með þessum aðferðum.
Og þessir snillingar eru rétt að byrja.
![]() |
Beittu HIV veiru gegn hvítblæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2012 | 16:42
Vantar löggjöf um valdbeitingu fyrir allar stofnanir.
Það eru ekki bara öldrunarstofnanir sem vantar skýrari lagareglur um valdbeitingu.
Þær vantar fyrir allar opinberar stofnanir utan refsivörslukerfisins.
Almenn hegningalög heimila neyðarvörn inni á stofnunum eins og annars staðar.
Það er líka leyndarmál að ráðist er að starfsmönnum á hvers konar umönnunarstofnunum.
En leiðbeiningareglur vantar um rétta útfærslu á þessum neyðarréttarúrræðum.
Á opinberum stofnunum er það skilyrði að þeim sé beitt af kurteisi og án meiðsla.
Í almennum hegningalögum, og sóttvarnarlögum, eru einnig neyðarréttarlegar lagaheimildir.
Það er allt of langsótt að þurfa að sækja heimildir þangað til að baða fólk svo dæmi sé tekið.
Á hinn bóginn er refsivert að svipta fólk persónufrelsi og beita það hótunum um líkamlegt ofbeldi.
Ótvírætt þarf að vera hvort að böðun á einstaklingi, án vilja hans, er lögmæt valdbeiting eða löglaust ofbeldi.
Það sama á við um alla umönnun þeirra sem eru á stofnunum, hvort sem það er hluta úr degi eða að staðaldri.
Og rétt væri að slíkar lagareglur ættu jafnt við óháð sjálfræði eða ástandi.
Við slíka reglusetningu þarf einnig að gæta að andlegu ofbeldi.
Mæla þarf fyrir um hvaða mál á að ræða, og afgreiða, með vandamönnum viðkomandi.
Á það að vera leyfilegt að skólayfirvöld beiti nemendur refsiviðurlögum án aðkomu forráðamanna?
Þar sem oft eru margir fullorðnir starfsmenn að rannsaka, yfirheyra, ásaka og refsa einum nemanda?
Ekki er fullorðnum einstaklingum boðið upp á slíka málsmeðferð af yfirvöldum.Um allt þetta vantar lagareglur.
Því miður.
![]() |
Valdbeiting gagnvart öldruðum tabú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2012 | 15:32
Orðgreppurinn Steingrímur.
Blígði illum glyrnum á þingmenn en brá ekki háttum og flensaði tungum tveim.
Þegar Steingrímur fyrirbýður mönnum munnbrúk, kjafthátt og svartagallsraus.
Er það eins og að Leppalúði væri stórhneykslaður að skamma jólasveinanna fyrir tröllskap og hrekki.
Sjálfur er landslygarinn Steingrímur einmitt íslandsmeistari í munnbrúki, kjaftavaðli, heimsendaspám og lygi.
En fram liggja feigs götur.
Maðurinn er löngu genginn af vitinu.
Og sömuleiðis þeir sem kjósa hann aftur.
![]() |
Ekki rétt að vera með munnbrúk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2012 | 08:02
Eins og á okkur sjálfum.
Við Íslendingar þurfum að laga okkur að hnattrænni hlýnun og auknum skordýrafjölda.
Við viljum hafa fallega garða í kringum húsin okkar og þar er auðvitað líf og fjör.
En komi svo mikið sem ein fiskifluga inn um gluggann er heimilisfriðurinn um koll.
Með miklum skunda er lýst yfir heilögu stríði þar til kvikindið liggur á vellinum.
Með broti og bramli er bardaginn háður þar til helvítið er hætt að suða þetta.
Og er flugan flýgur upp úr brakinu er arkað eftir eitrinu í geymsluna eða búðina.
Ekkert hikað við að eitra fyrir meinvættinum jafnt sem heimilisfólkinu sem ætti heldur að forðast.
Mikið skordýraeitur veldur blóðkrabbameinum og skyldi notast sparlega þá fólk er heima á bæ.
Hollara að hafa húsflugukvikindið svo fremi sem hún er ekki að baða sig í mjólkurkönnunni eða smjörinu.
Sjálf erum við svo með hundrað sinnum fleiri gerla en líkamsfrumur og sú veisla aðallega í smáþörmunum og niður úr.
Flestir eru gerlar þessir okkur nauðsynlegir við meltinguna en mikill minnihluti eru sjúkdómsvaldandi sýklar.
Og þó höfum við alls konar gerðir af þeim líka, s. s. í augum, nefi, eyrum, munni, á tönnum, húðinni og í þörmunum.
Og á ónefndum fleiri stöðum. Við erum bara hluti af þessu lífríki sem alls staðar er í kringum okkur.
En sjáanleg skorkvikindi eru sko meinárar sem ekki má þola innandyra. Gætu komið óorði á heimilið.
Bara að enginn plaffi nú á jólatréð með haglabyssunni en þá er mitt til sölu.
Ef einhvern vantar jólakött þá fæst minn á niðursettu verði út af lítilsháttar óværu úr garðinum eða af tengdafólkinu.
![]() |
Líf og fjör getur leynst í jólatrjám |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.12.2012 kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.12.2012 | 23:36
Svavar var með þeim flottari.
Þetta prjónles er með flottu mynstri og fer vel við Arafatklútinn og Svavar sjálfan.
Menn eru ekki sjálfkrafa flottir þó að þeir mæti í mölétnum jakkafötum frá verzlun Gefjun Iðunnar í Austurstræti 10.
Sumir Forlagsgestir hafa oft farið í jólaköttinn, jafnvel frá því fyrr en sú ágæta ullarverzlun lagði upp laupanna.
![]() |
Mætti í grófri ullarpeysu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.12.2012 kl. 03:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.12.2012 | 16:58
Hér er komið mál fyrir stjórnlagaráðið.
Það getur bætt því við offituákvæðið að bannað sé að mismuna ljótu fólki.
Banna þarf svo auðvitað að mismuna þeim sem eru leiðinlegir og sköllóttir og fá því ekki að verða forsætisráðherrar.
Af hverju má t. d. leiðinlegt fólk, og ljótt, sitja á Alþingi og leiðinlegt fólk, og feitt, vera í þjóðmálaþáttum í sjónvarpinu?
En svo má ljótt fólk, og leiðinlegt, ekki stjórna Útsvari eða öðrum skemmtiþáttum um helgar.
Þar eru bara gáfaðar fegurðardísir eins og Þóra Arnórsdóttir og Brynja Þorgeirsdóttir.
Og ekki er hann Sigmar okkar leiðinlegur þó að hann sé auðvitað ljótari en þær.
Það er ekki nema sanngjarnt að nú sé komin röðin að drepleiðinlegasta fólki landsins að sjá um dagskrána.
Hún getur varla versnað mikið úr þessu.
![]() |
Sótti konuna til saka vegna ljótleikans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.12.2012 kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2012 | 18:06
Drápu Díönu
Og nú þennan hjúkrunarfræðing.
Fjölmiðlamennirnir hljóta að vera hreyknir af sér þessa daganna.
![]() |
Hjúkrunarfræðingur Katrínar látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2012 | 11:52
Velkomin heim.
Og til hamingju með þessar yndislegu litlu stúlkur.
Ósvikin íslensk þrautsegja og dugnaður verð ég að segja.
Það væri svo fróðlegt að vita í framhaldinu meira um aðstæður þarna í Kólumbíu.
Við Íslendingar erum ekki sérfræðingar í mútum og þess háttar.
En maður spyr sig um þrákelni þessa undirréttardómara.
En allt að einu gleðileg jól, fallega fjölskylda.
![]() |
Komin heim með dæturnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.12.2012 | 17:11
Slíkt á ekkert erindi í stjórnarskrá.
Stjórnarskrárskaup Samfylkingarinnar ætlar engan endi að taka.
Það er hástig heimskunnar að banna mismunun vegna líkamsþyngdar.
Offita er sjúkdómur og þeir sem þjást af henni eru sjúklingar sem ekki eru hæfir í alls konar störf.
Hvernig á offitusjúklingur sem stendur á öndinni við að bera sig um sjálfur, að vinna við björgunarstörf?
Hvernig getur hann verið slökkviliðsmaður, sjúkraflutningsmaður eða lögreglumaður?
Getur hann verið sundlaugarvörður í skólasundi ef hann þarf sjálfur að nota lyftu til að komast upp úr lauginni?
Hann gæti ekki einu sinni kafað niður á botn laugarinnar eða bjargað sér upp aftur.
Offitusjúklingar eru einatt með allt of háan blóðþrýsting og færu þar af leiðandi sjálfir í lífshættu við svo aukna áreynslu.
Er hægt að hafa offitusjúklinga í flugáhöfn eða áhöfn farþegaskipa?
Eða yfirleitt í nokkrum störfum þar sem viðkomandi gæti þurft að bjarga öðru fólki?
Svarið er einfaldlega nei.
Nær væri þá að banna heimsku í stjórnarskránni en það er heldur ekki hægt.
Í stjórnlagaráðinu eru flestir sjúklingar sjálfir. Með athyglissýki alveg ólæknandi.
Það kitlar þau að verða fyrst í heiminum með þessu heimsku sína. Segir allt sem þarf.
Vilja þau ekki líka verða fyrst í heiminum til að banna mismunun yfirleitt, banna bara próf og hæfniskröfur?
Þá gæti hver fávitinn orðið skurðlæknir, flugstjóri og brúarverkfræðingur.
Sem nú þegar getur orðið þingmaður, ráðherra og forsætisráðherra.
Það myndi þeim líka í stjórnlagaráðinu.
Þá væri þeirra tími kominn líka.
![]() |
Tillaga um holdafar vekur athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.12.2012 | 16:13
Ómannlegt álag á aumingja stúlkuna.
Í augum bresku hirðarinnar er Katrín eins og hver önnur undaneldishryssa í hesthúsum krúnunnar.
Hverra hlutverk er að tryggja þeim framhald á úreltum stjórnarháttum fortíðarinnar.
Einungis tveggja mánaða þungun hertogaynjunnar hafa hirðmenn nú haldið við veðri um veröld víða.
Varla hefur hertogaynjan viljað að svo snemmbærum tíðindum væri útvarpað úr höllinni.
Það hlýtur að vera óbærilegt álag að vera ætlað að eignast barn með heilli þjóð.
Hvað þá með hirðmenn, og heimsbyggðina alla, hangandi við skráargatið hinu megin við hjónarúmið.
Von að konan hafi fengið yfir höfuðið og brjálæðið bara rétt að byrja.
Er elti Diönu allt til enda og gekk þá treglega af henni dauðri.
![]() |
Ekki hefðbundin morgunógleði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)