Barnaverndarmál.

Svo fremi sem yfirvöld hafa ekki bannað sundæfingar innan um krókódíla þá ræður fullorðið fólk hvað það gerir. 

En hitt er í andstöðu við barnaverndarlöggjöf siðaðra ríkja að leyfa börnum að synda við slíkar aðstæður. 

Það er ekkert annað en algerlega forkastanlegt að hafa leyft þessum börnum að synda þarna.

Það hlýtur að verða athugað hvort að viðkomandi forráðamenn séu hæfir til að vera með börn.

Eigi þeir fleiri börn.    


mbl.is Tólf ára drengur étinn af krókódíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásgeir Haraldsson er einn af okkar bestu mönnum.

Hann lærði barnalækningar í Hollandi og varð fljótlega fræðimaður í fremstu röð barnalækna.

Sem var ekki lítið afrek þar sem barnalæknar okkar voru þá þeir bestu á byggðu bóli. 

Allra fremstir voru nýburalæknarnir sem gátu þá státað af lægstu dánartíðninni í heiminum öllum.

Menn eins og dr. Atli Dagbjartsson yfirlæknir, dósent og fræðimaður í lungnastarfssemi fyrirbura. 

Við Íslendingar ættum allir að hneygja okkur fyrir barnalæknum okkar.

Vel fer því á að fræðilegum leiðtoga þeirra prófessor Ásgeiri Haraldssyni séu veitt verðlaun.

Fáir eru betur að því komnir.    

 


mbl.is Fær viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Abbas forseti eða frímerki?

Blessaður karlinn hann Mahmoud Abbas var kosinn forseti Palestínu til 4 ára árið 2005.

Síðan hafa Hamas ekki séð ástæðu til að halda kosningar.

Hamasfélagar sögðu árið 2009 að forseti þingsins færi með völd forseta.

Hvers konar ríki þykjast þeir vera með?

Það er þá að minnsta kosti ekki lýðræðisríki.

En Hamas liðar eru þeir stórglæpamenn að þeir geta ekki einu sinni farið á Allsherjarþingið. 

Eða yfirleitt látið sjá sig innan um siðað fólk.  Össur var hjá þeim í fyrra.

Og þá er gott að hafa Abbas karlinn sem frímerki á pakkanum til Sameinuðu þjóðanna.

Hamas eru glæpa- og hryðjuverkasamtök, sem halda heilli þjóð í greip sinni. 

Eru verri valdhafar en nazistar ef eitthvað er.

Og þessu voru Sameinuðu þjóðirnar að bjóða heim á bæ. 

Vonandi að SÞ geri þá kröfur um lýðræðisumbætur á Gaza.


mbl.is Palestína verður áheyrnarríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott fyrir glæpamenn sem kjósa þá VG og Samfylkinguna.

Eitthvað er að hjá því fólki sem heldur að lögreglan hafi tíma, eða áhuga, til að hlera símann hjá venjulegum borgurum.

Sjálfsagt er að sjá til þess að það geri lögreglumenn ekki í persónulegum tilgangi og það á að vera í höndum dómstóla.

Enginn á að hafa heimild til að gefa sjálfum sér heimild til að hlera síma eða beita öðrum slíkum úrræðum.

Hvorki einstakir starfsmenn,  eða einstakar stofnanir,  og það verklag á að tryggja með lögum. 

Þannig sé það allt önnur starfsstétt, í allt annarri stofnun, sem heimilar lögreglunni að beita slíkum úrræðum. 

Hjá dómstólum á lögreglan að fá allar þær rannsóknarheimildir sem þörf er á.

Svo fremi sem rannsóknargögn séu nægilegur grundvöllur þeirra að mati dómara.

Ég hef áður ritað um ástæður þess að harðlínu vinstri menn vilja skerða þessar heimildir lögreglu: 

Kommúnistar ennþá sárir og sýna glæpamönnum samlíðan í verki.

Vopnuð bylting var á stefnuskrá Kommúnistaflokks Íslands sem tók við beinum fyrirskipunum frá Moskvu.

Til að fela tengslin var nafni flokksins seinna breytt í Sósíalistaflokkur, þá Alþýðubandalag og loks í VG.

Að sjálfsögðu var það hlutverk lögreglu Íslendinga á hlera símanna hjá þessum byltingarfélögum Sovétríkjanna.

Félögum þessum fannst þeim misboðið og eru ennþá móðgaðir og sárir yfir þeirri löggæslu.

Þó að þeir hafi aðeins ætlað að fremja, hér að eigin áliti, alveg nauðsynlega byltingu.

Þar ætluðu kommúnistar ekki að spyrja þjóðina álits frekar en ráðherrarnir nú.

Kommarnir eru að reyna að gleyma því sjálfir, en við hin munum að síðast árið 1968 ruddust Sovétríkin inn í Tékkóslóvakíu.

Og brutu þar á bak aftur tilraunir þjóðanna þar til að öðlast frelsi undan ofbeldi og oki kommúnismans.

Og þrátt fyrir að íslenskum kommúnistum tækist ekki að hrifsa hér völdin með glæpsamlegum hætti.

Þá finna þeir ennþá til með þeim glæpamönnum er þola þurfa eftirlit og símhlerun lögreglu.

Það var nú von.


mbl.is Úrræði lögreglu skert til muna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsamleg afstaða.

Árið 1991 ákvað ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks að lækka skatta á atvinnulífið.

Afleiðingin varð sú að atvinnulífið og þjóðlífið fóru aftur að taka við sér. 

En þá var nokkur deyfð í þjóðfélaginu eftir langa stjórnartíð vinstri manna. 

Margir að hugleiða brottflutning frá landinu og sáu ekki, hérlendis, sína framtíð ekki fyrir sér. 

Það er því gleðilegt að einhverjir stjórnarliðar átti sig á að skattlagningarstefna kommúnista leggur hamlandi ok á atvinnulífið.

Og að auknir skattar eru ekki til annars en að drepa niður vaxtarbrotann í þessari atvinnugrein.

Rétt eins og kommúnisminn drap niður atvinnulífið og heilu þjóðfélögin í heilan mannsaldur. 

Þarna renna nokkur atkvæði frá stjórnarflokkunum til Marshall, Steingrimsson & Company.  


mbl.is Styðja ekki 14% skatt á ferðaþjónustuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kommúnistar ennþá sárir og sýna glæpamönnum samlíðan í verki.

Vopnuð bylting var á stefnuskrá Kommúnistaflokks Íslands sem tók við beinum fyrirskipunum frá Moskvu. 

Til að fela tengslin var nafni flokksins seinna breytt í Sósíalistaflokkur, þá Alþýðubandalag og loks í VG. 

Að sjálfsögðu var það hlutverk lögreglu Íslendinga á hlera símanna hjá þessum byltingarfélögum Sovétríkjanna.

Félögum þessum fannst þeim misboðið og eru ennþá móðgaðir og sárir yfir þeirri löggæslu.

Þó að þeir hafi aðeins ætlað að fremja, hér að eigin áliti, alveg nauðsynlega byltingu.

Þar ætluðu kommúnistar ekki að spyrja þjóðina álits frekar en ráðherrarnir nú. 

Kommarnir eru að reyna að gleyma því sjálfir, en við hin munum að síðast árið 1968 ruddust  Sovétríkin inn í Tékkóslóvakíu.

Og brutu þar á bak aftur tilraunir þjóðanna þar til að öðlast frelsi undan ofbeldi og oki kommúnismans. 

Og þrátt fyrir að íslenskum kommúnistum tækist ekki að hrifsa hér völdin með glæpsamlegum hætti.

Þá finna þeir ennþá til með þeim glæpamönnum er þola þurfa eftirlit og símhlerun lögreglu.

Það var nú von. 


mbl.is Pólitík að baki takmörkun heimilda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það heitir að læra af reynslunni Steingrímur.

Við Íslendingar höfum ekki góða reynslu af yfirstéttinni í Evrópu.  

Þessari sem arðrændi okkur öldum saman og ræður nú öllu í ESB. 

Við bara trúum því ekki að í Evrópu bíði menn í röðum eftir að fá að gefa okkur peninga.

Og alla þessa styrki og fríðindi sem Össur og Jóhanna er alltaf að jarma um. 

Að við verðum hreinlega böðuð upp úr mjólk og rjóma ef við bara göngum í ESB. 

Það kallast ekki hræðsla við Evrópu, Steingrímur.

Heldur skynsemi.  

Við hana hefur þú ekki átt vingott.   


mbl.is „Nú ræður hræðslan við Evrópu ríkjum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elliærir landsfundafulltrúar?

Það er rétt hjá Hönnu Birnu að lítil endurnýjun er á landsfundafulltrúum í Sjálfstæðisflokknum.

Fljótt á litið sýnast flestir fulltrúarnir vera svona um áttrætt.

Og spurning hvort þeir hafi haldið sig vera að kjósa Bjarna Benediktsson forsætisráðherra.

Bjarni heitinn var lögfræðingur og formaður flokksins þegar landsfundafulltrúar voru upp á sitt besta.

Og hafði tekið við formennsku af Ólafi heitnum Thors eins og landsfundarfulltrúar muna vel.

Já muna það eins vel og að það hafi verið á síðasta landsfundi.

Eða var það ekki annars?


mbl.is Hanna Birna ekki í formanninn að óbreyttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú tekur hún formanninn næst.

Hanna Birna Kristjánsdóttir á aftur að gefa kost á sér sem formaður Sjálfstæðisflokksins.

Þeir Illugi Gunnarsson og Bjarni Benediktsson eiga enn eftir að gera flokksmönnum grein fyrir sínum málum. 

Hvað voru þeir að gera með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í höfuðstöðvum FL Group. 

Nóttina sem Glitnir féll? 


mbl.is Lokatölur í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að losna við kaldastríðskomma.

Katrín Jakobsdóttir er áreiðanlega ein besta dóttir þjóðarinnar.

Hins vegar þarf að losna við kaldastríðskommanna úr stjórnmálunum.

Svandís á kannski eftir að betra sig og ná þeim skilningi að við lifum hér af landsins gæðum. 

Ísland er ekki Gala Pagos sem hægt er að friða. 

Álfheiður og Árni Þór eru algerlega vonlausir stjórnmálamenn eins og flestir aðdáendur formannsins.

Drepleiðinlegt fólk sem knúið er áfram af pólitísku ofstæki.     


mbl.is Katrín efst en Birni Val hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband