24.11.2012 | 11:07
Hægt að gefa stofnfrumur úr naflastreng sem nýtast við gerð nýrra líffæra.
Við upphaf lífsins getur hver og einn gefið stofnfrumur úr naflastreng sínum.
Það stæði þó móðurinni, eða foreldrunum, nær að standa fyrir slíkri gjöf fyrir hönd barnsins síns.
Lækna heimsins vantar sárlega stofnfrumur úr naflastreng til að geta bjargað lífi fólks og heilsu.
Við þann gleðilega atburð sem barnsfæðing er jafnan ætti það að vera átakalaust að gefa slíkar frumur.
Sérstaða stofnfruma úr naflastreng er að þær eru aðeins níu mánaða gamlar.
Þeir foreldrar sem vilja gefa slíka gjöf fá nánari upplýsingar hjá læknum Blóðbankans.
Á árinu fréttum við um þegar íslenskir og sænskir læknar skiptu um barka í manni sem stundar jarðvísindanám hérlendis.
Eitt af mörgum dæmum um það sem hægt er að gera með stofnfrumum.
![]() |
Fólk ræði um líffæragjafir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.12.2012 kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2012 | 08:40
Hvað skyldi það nú standa lengi?
Sagan sýnir að Ísraelsmenn þrá frið og hafa ekki gert annað en að verjast óvinum sínum.
Þar hafa þeir þó tekið rösklega til hendinni og greinilega ekki talið veita af.
Hryðjuverkasamtökin Hamas eru hins vegar með það á stefnuskrá sinni að eyða Ísraelsríki.
Og hafa nú á seinni árum notið bandalags þess glæpalýðs sem stýrir Íran undir merkjum trúarbragða.
Upphaflega stefna forystumanna Palestínumann var að eyða bæði Ísrael og Jórdaníu.
Á öllu landssvæði þessarra ríkja átti að stofna ríki Palestínumanna. Hvort þá vantaði svo stórt land fylgdi ekki sögunni.
Ekki hefur heyrst af áformaðri eyðingu Jórdaníu á seinni tíð en það á kannski að bíða betri tíðar.
En eins og venjulega semja forystumenn Palestínumanna um frið af því að þeir áttu ekki annars úrkosti.
Svo halda þeir glæpaverkum sínum áfram eins og þeir hafa gert síðast liðin 60 ár.
Þeir vilja ekki frið og því síður þeir í Íran.
![]() |
Vopnahléið hefur haldið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2012 | 08:31
Þessu er hárrétt lýst hjá Árna Páli.
Það er loksins að eitthvað heyrist með viti frá forystumönnum Samfylkingarinnar.
Það er nefnilega engan veginn víst að íslenska þjóðarbúið geti staðið við erlendar skuldbindingar í framtíðinni.
Þá skiptir engu máli hvað gjaldmiðillinn heitir. Það er blekking að þar breyti einhverju þó að hér sé tekin upp evra.
Við fengjum ekki fleiri evrur en sem næmi þeim vörum og þjónustu sem við gætum selt útlendingum.
Og því þá síður að við fengjum lán, eins og hver vildi, á einhverjum sparivöxtum eins og margir halda.
![]() |
Hörmuleg sviðsmynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2012 | 07:22
Þessi unga kona
Er þegar orðin einn besti prestur landsins.
Endar sem biskup.
![]() |
Makaleit er fjársjóðsleit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2012 | 01:02
Slík aftaka heitir morð án dóms og laga.
Það heitir morð og þeir sem standa í slíku eru morðóður skríll og stórglæpamenn.
Slíkan skríl er ekki hægt að kalla þjóð og yfirráðasvæði þeirra er ekki hægt að kalla ríki.
Það er ömurlegt að heyra að íslenskir alþingismenn séu að réttlæta morðárásir Hamas liða.
Þeir eru að skjóta fleiri hundruð eldflaugum á almenna borgara í Ísrael. Fólk. Venjulegt fólk.
Og þó að svör Ísraela séu ekki alltaf betri þá þykja mér þeir seinþreyttir til vandræða.
Það er ekki nema hálfsdagsverk að smíða Quassam flugskeyti úti í bílskúr og allt til þess fæst hér í verslunum.
Með sömu rökum samþykkja þingmennirnir að allt sé í lagi að skella einni slíkri flaug á landsfund VG eða Samfylkingarinnar.
Af því að einhver sé ósáttur við þau þar. Svona rétt eins og þau á Gólan og Gaza eru ósátt við Ísrael.
Hver væri munurinn ef ég mætti spyrja?
Eru almennir borgarar í Ísrael ekki venjulegt fólk eins og þau í VG eða Samfylkingunni?
Fólk sem ekki má myrða?
Hvað er það í ósköpunum sem gefur Palestínumönnum leyfi til þess að hafa síðast liðin fjörutíu ár.
Verið fyrstir og fremstir í flugránum, hryðjuverkum og morðárásum á almenna borgara í öðrum löndum?
Ef að þau í VG og Samfylkingunni geta ekki svarað þessu, þá er einhverjum óhætt að hefja smíðina.
Eða er það ekki annars?
Ég vona ekki en íslenskir alþingismenn hafa ekki umboð íslensku þjóðarinnar til að réttlæta morð eða morðárásir í öðrum löndum.
![]() |
Drógu lík njósnara um götur Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.11.2012 kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
21.11.2012 | 00:16
Hamas liðar myrða fólk eins og þeir eru vanir.
Það heitir ekki að taka fólk af lífi þegar það er gert án dóms og laga.
Það heitir morð og þeir sem standa í slíku eru morðóður skríll og stórglæpamenn.
Slíkan skríl er ekki hægt að kalla þjóð og yfirráðasvæði þeirra er ekki hægt að kalla ríki.
Það er ömurlegt að heyra að íslenskir alþingismenn séu að réttlæta morðárásir Hamas liða.
Þeir eru að skjóta fleiri hundruð eldflaugum á almenna borgara í Ísrael. Fólk. Venjulegt fólk.
Og þó að svör Ísraela séu ekki alltaf betri þá þykja mér þeir seinþreyttir til vandræða.
Það er ekki nema hálfsdagsverk að smíða Quassam flugskeyti úti í bílskúr og allt til þess fæst hér í verslunum.
Með sömu rökum samþykkja þingmennirnir að allt sé í lagi að skella einni slíkri flaug á landsfund VG eða Samfylkingarinnar.
Að því að einhver sé ósáttur við þau þar. Svona rétt eins og þau á Gólan og Gaza eru ósátt við Ísrael.
Hver væri munurinn ef ég mætti spyrja?
Eru almennir borgarar í Ísrael ekki venjulegt fólk eins og þau í VG eða Samfylkingunni?
Fólk sem ekki má myrða?
Hvað er það í ósköpunum sem gefur Palestínumönnum leyfi til þess að hafa síðast liðin fjörutíu ár.
Verið fyrstir og fremstir í flugránum, hryðjuverkum og morðárásum á almenna borgara í öðrum löndum?
Ef að þau í VG og Samfylkingunni geta ekki svarað þessu þá er einhverjum óhætt að hefja smíðina.
Eða er það ekki annars?
![]() |
Hamasliðar taka svikara af lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2012 | 14:11
Segiði svo að Ögmundur hafi ekki áhrif.
Nú getur hann glaðst sá góði drengur Sveinn Rúnar Hauksson yfir því að mótmæli hérlendis og víða um lönd hafi borið árangur.
Því nú er Hillary Clinton á leið til Ísrael að fregna hvort hún geti miðlað málum í deilu Palestíumanna og Ísraela.
Hins vegar finnast mér undarlegar aðfarir Palestínumanna að skjóta sífellt eldflaugum yfir landamærin.
Þessar heimasmíðuðu Quassam eldflaugar þeirra eru fylltar af járnarusli til að valda fólki sem mestu líkamstjóni.
Og þeim er ekki stefnt á hernaðarskotmörk heldur lenda þær þar sem verkast vill.
Svona eins og þau í Smárahverfinu, í Kópavogi, smíðuðu eldflaugar í bílskúrnum og sendu eitthvað yfir í Garðabæ.
Gazasvæðið snýr að hinni hálfviltu Sínai eyðimörk þar sem Egyptar hafa misst niður stjórn sína eftir byltinguna heima við.
Bæði í gegnum jarðgöng og eftir öðrum leiðum hafa Palestínumenn náð sér í miklu fleiri og stærri flugskeyti.
Mörg eru af gerðinni Grad og eru framleidd í Rússlandi, Búlgaríu og Kína.
Þeim er smyglað eftir ótrúlega flóknum leiðum, t. d. frá Kína, en einnig hafa Íranir og Sýrlendingar lagt þau til.
Og að sjálfsögðu eru nú einnig líbísk vopn úr geymslum Gaddafi boðin til sölu öllum sem hafa vilja.
Grad flugskeytin geta slasað fólk, og drepið, í allt að 100 metra fjarlægð frá lendingarstaðnum og náð til Tel Aviv eða Jerúsalem.
Ísraelsmenn geta hins vegar frekar varist þeim með eldflaugavarnarkerfi sínu.
Baráttuaðferðir Palestínumanna hafa mér alltaf fundist undarlegar, vilji þeir búa við frið.
Flugrán, hryðjuverk, sjálfsmorðsárásir og eldflaugaskot á nágrannana.
Ég held þeir vilji engan frið.
![]() |
Clinton til Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.11.2012 kl. 01:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2012 | 16:45
Hjörleifur er helmingi greindari maður en Steingrímur.
Og nú hæðist hann að fíflinu Steingrími sem hélt að hann væri kominn í öruggt skipsrúm til langrar framtíðar.
Og gæti því leyft sér að hugsa aðeins um sjálfan sig en ekki grundvöllinn; stefnuna og kjósendur VG.
Því eftir næstu kosningar verður fíflinu Steingrími skolað út í hina pólitísku hlandfor, þaðan sem hann kom.
Hjörleifur Guttormsson er hins vegar einhver allra besti stjórnmálamaður sem vinstri menn hafa átt.
Sem lagði á sig gríðarlega vinnu til að þess að vera almennilega inni í öllum sínum málum.
Hann var fylginn sinni sannfæringu og lét aldrei þvæla sér um hina pólitísku hlandfor sem Steingrímur fer brátt að sökkva í.
![]() |
Segir VG ósjálfbært rekald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.11.2012 | 16:24
"Assholes"
eða rassgöt er ljótasta orðið sem borgarstjóranum dettur í hug að nota á þá sem eru á móti hommum.
Þetta hefur verið verra en ég hélt þarna hjá þeim Birgittu á Hlemmi í gamla daga.
En ég tek auðvitað undir með borgarstjóranum að "idiots" eða fíflin eru víða.
![]() |
Jón Gnarr: Hommafælnir eru fífl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2012 | 20:43
Berfættur í sandinum.
Í heitasta hluta heimsins eru flestar pestir í boði.
Þar er hægt að sýkjast af hvers konar iðrapestum sem ýmist eru af völdum baktería eða sníkla.
Stingandi og bítandi flugur, og skorkvikindi, bera með sér fjölskrúðuga sjúkdóma.
Í ám og vötnum leynast einnig blóðsugur og alls konar óværa önnur.
Meira að segja í sandinum, á ströndinni, eru blóðsjúgandi flær sem bera sjúkdóma í fólk.
Þeir sem hyggja á ferðalög til slíkra landa eiga að leita sér læknishjálpar áður en þeir leggja af stað.
Þiggja viðeigandi bólusetningar og hafa með sér þau lyf og viðbúnað sem læknirinn ráðleggur.
Í þessum löndum er einnig sérlega varasamt að vera með óvarið opið sár eða jafnvel aðeins tannskemmd.
Það er því einnig rétt að fara til tannlæknisins ef þetta er lengri ferð en venjulegt frí.
Og fái menn einhver einkenni í ferðinni, eða eftir heimkomu, sem ekki hverfa á eðlilegum tíma.
Þá á ekkert að draga það að skunda til læknis á ný.
![]() |
Með lirfu í handleggnum eftir Afríkuferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.11.2012 kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)