17.11.2012 | 17:04
Sýrlandsstjórn fóðrar ófriðinn þarna en Össur þolir engin ólæti.
Sýrlandsstjórn hefur nú engu að tapa lengur og er farin senda vopn og vandræði í allar áttir.
Meðal annars er talið að hún áformi að senda andstæðingum Ísraels efnavopn eða sé þegar búin að því.
Ekki hefur hann Össur okkar þurft nein efnavopn til að rústa Samfylkingunni og íslenskri vinstri stefnu í öreindir.
Og eins og menn vita þolir hann engan ófrið eða ólæti í öðru fólki.
En það er ekki á góðu von þegar veisluvinir Össurar í Hamas fara að setja upp gasgrímur við grillið.
Nú þegar Össur er búinn að kljúfa íslensku þjóðina í tvo hluta út af feigðarflaninu í ESB.
Ólmast hann, sem óðast, að endurvekja hér Sturlungaöldina, hvar við keyrðum öxina hver í annars höfuð.
Þannig að ýmsir eru þegar farnir að brýna atgeirinn og öxina, þá ætti nú hver að sjá að Össur fer létt með að stilla til friðar í Miðausturlöndum.
Ég held að hann ætti að skella sér og líta, umbergis í barbaríinu, á flugeldasýningar og fleira.
Þá getur hann haldið upp á áramótin í mánuð eða meir.
Við biðjum auðvitað öll að heilsa og drekkum hans heillaskál með nýárinu. Þar er þó þörf að veiti vel af.
Eftirskrift:
Það er skiljanlegt að eðlilegar tafir eru oft á svona ferðum sem alveg geta tekið ár og daga.
Össuri myndum við fyrirgefa vorar skuldir þó hann þryti örindið á heimleiðinni.
![]() |
Össur: Öryggisráði ber að grípa inn í |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.11.2012 | 16:39
Mamma Merkel flengir Pútín.
Frú Angela Merkel er mamman í Evrópu.
Þar var hárrétt hjá henni að rassskella hrekkjusvínið Wladimir Pútín fyrir ótuktarskapinn.
Þessar stelpur voru dæmdar í tveggja ára vinnubúðavist af dómara sem Pútín skipaði sjálfur og hefur í vasanum.
Rússaland hefur ekkert komist áfram í lýðræðisátt undir einræðisstjórn Pútíns.
Blaðamenn sem gagnrýna Pútín eru skotnir og aldrei finna yfirvöld morðingjanna.
Það er gleðiefni að einhver af forystumönnum hinna vestrænu lýðræðisríkja þori að taka á Pútín.
Og láta hann vita af því að hann hafi ekki alveg frítt spil frekar en aðrir einræðisherrar í heiminum.
![]() |
Deildu um Pussy Riot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.11.2012 | 23:43
FBI maðurinn heitir Frederick W. Humphries II og er fyrrverandi höfuðsmaður í njósnadeild hersins.
Hann er 47 ára og hann og kona hans eru vinir Kelley hjónanna sem skiptust m. a. á fjölskyldumyndum.
Það með talin myndin fræga sem hann sendi frú Kelley fyrir mörgum árum síðan sem hrekk.
Hún var af einhverju gríni þar sem lögreglumaðurinn pósaði ber að ofan innan um gínur.
Myndin er ekki kynferðisleg sem slík, segir lögmaður sambands alríkislögreglumanna.
Lögreglumaðurinn er þekktur fyrir að vera einbeittur og fylginn sér.
Hann er ennþá í innanhússrannsókn hjá FBI þar sem hann klagaði yfirmenn sína í þingmann Fulltrúadeildarinnar.
Lögreglumaðurinn var höfuðsmaður í njósnadeild Landhers Bandaríkjanna áður en hann gerðist liðsmaður alríkislögreglunnar.
Honum fannst gríðarlega alvarlegt mál að einhver vissi allt um komur og brottför æðstu hershöfðingja.
Flugherinn hefur nú tekið heimsóknarleyfið af Jill Kelley til að heimsækja MacDill herstöðina í Tampa í Flórida.
Hún hafði heimild til að fara einsömul inn á svæðið sem sérstakur vildarvinur hersins samkvæmt ákveðnu vildarvinakerfi.
Frú Kelley var einn af sex óbreyttum borgurum á Tampa svæðinu sem báru heiðurstitilinn sendiherra.
Í þeim skilningi að þau væru eins konar sendiherrar fólksins á svæðinu gagnvart herstöðinni.
Það nýjasta af frú Paulu Broadwell er að Landher BNA hefur afturkallað öryggisheimildir hennar.
Paula var höfuðsmaður og síðast major í njósna- og andhryðjuverkdeildum Landhersins.
Hún var áfram í varaliði Landhersins og var nú í ágúst hækkuð í tign undiroffursta.
Sem herforingi hafði hún heimild til að skoða hernaðarleyndarmál samkvæmt sérstökum aðgangsheimildum.
Henni var heimilt að skoða þær hernaðarupplýsingar sem fundust í tölvunni hjá henni.
En mögulega var hún að brjóta starfsreglur með því að hafa upplýsingarnar í tölvu á heimili sínu.
Sem ekki var læst inni í neinum sérstökum geymslum sem er þá minniháttar tæknilegt brot gagnvart hernum.
Sumar upplýsingar má reyndar ekki fara með út úr opinberum byggingum og tölvum þar.
FBI hefur ekki fundið neitt lögbrot ennþá sem heimfæra má undir alríkislög og mun því afhenda hernum málið.
Mögulega verður Paula Broadwell lækkuð í tigninni eða rekin úr hernum með skömm.
Ekki beinlínis það sem þessi sjúklega metnaðarfulla kona ætlaðist fyrir.
Það var hins vegar ekkert skrítið að þau Petraeus og Broadwell löðuðst hvort að öðru.
Bæði með hermál á heilanum, útskrifuð sem herforingjar úr háskóla hersins sem kenndur er við West Point.
Pedraeus var alveg jafn metnaðargjarn og Broadwell en hefur farið miklu betur með það en hún.
Til að ná sér strax í réttu samböndin kvæntist hann eiginkonu sinni Holly sem var dóttir rektorsins í West Point.
William A. Knowlton var fjögurra stjörnu hershöfðingi sem barist hafði í fyrri heimsstyrjöld og einnig farið til Vietnam.
Hann hafði unnið í Varnarmálaráðuneytinu á skrifstofum starfsmannastjóra hersins og varnarmálaráðherrans.
Bæði vissu þau að mikilvægt var að ná sér strax í réttu samböndin.
Hann gerði það með því að kvænast strax inn í innsta hring hersins.
Hún með því að sænga hjá þeim sem þurfti.
![]() |
Konan sem hershöfðinginn daðraði við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.11.2012 kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2012 | 00:11
Sendiherranum var fórnað. CIA skildi hann eftir ásamt nokkrum "Navy seals"
Samsærissmiðir í BNA telja að CIA sé spillingarhreiður Repúblikanaflokksins og hernaðarsinna.
Þeir hafa nokkuð til síns máls.
Eins og í Iran Contra klúðrinu þar sem Oliver North offursti tók á sig sökina af CIA og Reagan þegar Bush eldri var forstjóri CIA.
Sumir telja að einhverjir í CIA hafi vitað af komu þeirra sem sprengdu turnanna í New York og látið það afskiptalaust.
Þeir vissu kannski ekki hversu stórkostleg aðgerðin yrði en hernaðarhaukanna vantaði átyllu til að komast í stríð.
J. Christopher Stevens sendiherra Bandaríkjanna í Líbíu hafði lagt á sig að læra arabísku og var vinsæll meðal fólks þar.
Maður sem hefði verið trúandi til að semja frið við þjóðirnar í Asíu, hefði hann fengið tækifæri til þess.
Stríðshaukarnir í Repúblikanaflokknum og CIA eru varla óhuggandi yfir því að hann var drepinn.
Samsærissmiðirnir myndu ekki hika við að segja að þeir hefðu sjálfir látið drepa hann.
Að minnsta kosti var alveg fáránlegt að ekkert var gert sem dugði til að bjarga sendiherranum og samstarfsmönnum hans.
Hann hringdi og sagðist vera undir árásum en ekkert gerðist í marga klukkutíma en árásin stóð í alls 7 klukkustundir.
Það hefði verið léttur leikur fyrir Bandaríkjamenn að senda eldflaugar og rústa árásarmönnunum
Það sáum við vel í stríðinu þarna þegar Gaddafi var steypt af stóli.
Þarna í Benghazi var bæði ræðismannskrifstofa og útibú frá CIA.
CIA mennirnir voru flestir hlaupnir burt en þau í utanríkisráðuneytinu héldu að þeir myndi vernda sendiherrann og hans fólk.
Þeir sem drápu sendiherrann vissu greinilega að hann gat leitað skjóls í hernaðarlega sterku virki inni á svæðinu.
Þeir höfðu því með sér íkveikjusprengjur til að kveikja elda svo að þeir sem voru þar inni myndu kafna úr reyk.
Og það var nákvæmlega það sem gerðist. Sendiherrann dó af völdum reykeitrunar.
Eric Cantor leiðtogi repúblikanna í Fulltrúadeildinni vissi af þessu framhjáhaldi í október og einnig félagi hans Dave Reichert.
Mitt Romney réðist réttilega á Obama fyrir að hafa ekki komið sendiherranum og starfsmönnunum til hjálpar.
En fljótlega var Romney látinn hætta að vera með þetta Benghazi mál í kosningabaráttunni.
Sendiherrann var hreinlega skilinn eftir svo að hryðjuverkamenn gætu slátrað honum og þremur öðrum.
Þar af voru tveir fyrrverandi liðsmenn í Navy seals, auk upplýsingafulltrúa og sendiherrans.
Samtök Navy seal´s hafa haldið því fram að þeir hafi augljóslega verið yfirgefnir af yfirlögðu ráði.
Þeir ættu kannski að vita hvað þeir eru að tala um, eru sérfræðingar í nákvæmlega svona aðstæðum.
Þeir sögðu einnig að Obama hefði tvisvar um kvöldið og nóttina neitað að bregðast við með hernaðaríhlutun.
Obamastjórnin afsakaði sig með því að þeir hefðu fengið lélegar og ófullnægjandi upplýsingar frá CIA.
Og að engar flugvélar hafi verið á svæðinu, en ómönnuð njósnavél hafi komið á vettvang 70 mínútum eftir að árásin hófst.
Það hefði þá verið auðvelt að senda þangað eldflaug ef Obama hefði viljað.
CIA sagði þinginu að þarna hefðu óundirbúin og sjálfsprottin mótmæli farið úr böndunum.
En þarna voru ekki venjulegir mótmælendur á ferð.
Heldur á annað hundrað menn með AK-47 hríðskotarifla, handsprengjur, litlar eldflaugar og íkveikjusprengjur.
Og Petraeus er látinn hlaupa strax eftir kosningar til Obama og biðja um lausn.
Svo að hann fari nú ekki að segja þingnefndum frá því hvernig haldið var á málum eða hverju öðru?
Petraeus er sjálfur einn af stríðshaukunum og merkilegt að Obama skyldi setja hann yfir CIA.
Paula Broadwell var auðvitað engin ógn við öryggi Bandaríkjanna, það er aðeins fyrirsláttur.
Konan er fædd í íhaldsfylkinu Norður Dakóta norður við landamæri Kanada.
Hún er herforingjamenntuð í West Point og var major í njósnadeild landhersins og er enn undiroffursti í varaliðinu.
Vann sem hermaður einkum á sviði öryggs-, hryðjuverka- og njósnamála og er einlægur hernaðarsinni.
FBI var löngu orðið ljóst að engin ógn stafaði af sambandi Petraeus og Broadwell.
Það hentaði hins vegar allt í einu að láta Petraeus hætta og þá var þetta mál notað til þess.
Og hver er skýringin á því að allt í einu þurfti hann að hætta?
Eric Holder dómsmálaráðherra Obama stjórnarinnar vissi líka af málinu frá því sumar.
Annað hvort stóð Obamastjórnin fyrir því að Petraeus hætti eða hernaðarhaukarnir í Repúblikanaflokknum.
Það er meira en trúlegt að Obama hafi ekki viljað fara að skjóta eldflaugum svo rétt fyrir kosningar.
Á hinn bóginn skrítið að repúblikanir skyldu hætta tala um málið og þegja yfir því.
Hin skvísan Jill Kelley er hins vegar fædd í Líbanon.
Slúðurdálkur í Washington segir að hún hafi þekkt tvo af þeim Rússum sem reknir voru í fyrra frá BNA fyrir njósnir.
Af hverju er ég ekki hissa?
Hér er svo prýðileg samantekt Wikipedia um klúðrið í Benghazi, Obama og CIA þarfa margt að útskýra.
Þangað til það verður gert er allt opið í þessum málum ennþá, nema það að hinar opinberu skýringar ganga ekki upp.
http://en.wikipedia.org/wiki/Attack_on_the_U.S._diplomatic_mission_in_Benghazi
![]() |
Engar tilviljanir í njósnasögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.11.2012 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2012 | 19:01
Jill Kelley er kannski njósnari?
Framhjáhaldsmál hershöfðingjans er mesta sápan í Washington síðan Bill Clinton var í kynlífsleikjum við Monicu Lewinsky.
Paula Broadwell er athyglissjúk og svífst greinilega einskis á framabrautinni.
Hana dreymdi um að verða þjóðarörggisráðgjafi forsetans í framtíðinni.
Hún á tvo unga syni með sínum stórmyndarlega manni sem er læknir og sérfræðingur í geislalækningum.
Blaðamenn í BNA velta nú vöngum yfir því hvort að læknirinn hafi skrifað nafnlaust bréf í vandamáladálk í New York Times.
Önnur athyglissjúk fegurðardís, og læknisfrú, er Jill Kelley, í Tampa í Florida, hún er sjálfboðaliði í herstöðinni þar nærri.
Þar var Petraeus yfirmaður þar til Obama sendi hann til Afganistan eftir að hafa rekið Stanley McChrystal.
Læknisfrúin kom sér í vinfengi við hershöfðingjann að því er virtist til að fá athyglina af nærveru hans í veislum hennar.
Frú Kelley fannst ekki leiðinlegt þegar herhöfðinginn renndi í hlaðið, að glæsihúsi þeirra hjóna, í 28 bíla lest eins og í bíómynd.
Frú Kelley hefur ábyggilega sofið hjá hershöfðingjanum til að koma þessu smáræði í kring.
Sama hefur hún vísast gert við lögreglumanninn hjá FBI sem hún bað um að rannsaka tölvubréfin frá Paulu Broadwell.
Þessi lögreglumaður er nú í vondum málum hjá yfirmönnum sínum vegna óeðlilegs áhuga á afdrifum málsins.
Við rannsókn á högum hans kom í ljós að hann sendi vinkonu sinni frú Kelley mynd af sér þar hann er ber að ofan.
Það þykir yfirmönnum FBI ekki gott og því síður þingmönnunum sem anda ofan í hálsmál þeirra við skoðunina á málinu
Paula Broadwell sagði frú Kelley að hún vissi hvað hún hefði gert og skipaði henni að halda sig frá Petraeus.
Paula sagði meðal annars að hún hefði séð Kelley káfa á hershöfðingjanum þar sem þau sátu saman við borð.
Nú hefur komið í ljós að frú Kelley hefur farið víðar yfir í málum bandaríkjahers
Hún hefur átt í óviðeigandi bréfaskriftum við John Allen hershöfðingja í Afganistan og hvað þá meira?
Frú Kelley sem er dóttir innflytjenda frá Líbanon er nú farin að líta út sem njósnari fyrir einhverja í miðausturlöndum.
MacDill herstöðin, þar sem frú Kelley er sjálfboðaliði er stjórnstöð bandaríkjahers í málefnum miðausturlanda.
Hún hefur ráðið sér frægan lögmann og einnig sérfræðing í almannatengslum til að sjá um sín mál í fjölmiðlum.
Bandríkjamenn hugleiða nú hvort afsögn CIA forstjórans tengist yfirheyrslum þingsins vegna morðárásarinnar í Líbíu.
Obama og þau í Hvíta húsinu hafa logið eins og þau þurftu um það mál.
Hér er athyglisverð grein blaðamannsins Michael Hastings um mál hershöfðingjans Petraeus.
http://www.buzzfeed.com/mhastings/the-sins-of-general-david-petraeus
Sá er sérfræðingur í málefnum hersins og skrifaði fræga grein í tímaritið Rolling Stone fyrir tveimur árum.
Sem varð til þess að Obama rak Stanley McChrystal fjögurra stjörnu hershöfðingja Bandaríkjanna í Afganistan.
Hér að neðan er hluti af umfjöllun Reuters um málið:
Kelley and her husband, Scott Kelley, a Tampa cancer surgeon, became friends with Petraeus when he was stationed at MacDill Air Force Base in Tampa from 2008 until 2010, people familiar with the situation said.
At the time, Petraeus was commander of the U.S. military's Central Command, which runs operations in the Middle East and South Asia.
The two families socialized in Tampa and in Washington, the people said.
Unlike Broadwell, who has been silent and out of public view since the story broke on Friday, Kelley has put out a statement on her family's friendship with the Petraeuses and asked that her family's privacy be respected.
A source close to the family said that Kelley is now being advised on how to respond to the Petraeus uproar by one of Washington's most prominent trial lawyers, Abbe Lowell, a family friend who has represented high-profile criminal defendants like former U.S. Senator John Edwards and disgraced Republican lobbyist Jack Abramoff.
Lowell did not respond to requests for comment.
Kelley has also enlisted the help of Judy Smith, a well-known crisis PR manager who is the model for the ultra-effective fixer and spin doctor Olivia Pope in the ABC Thursday night TV drama "Scandal."
http://www.reuters.com/article/2012/11/13/us-usa-petraeus-women-idUSBRE8AC04Y20121113
![]() |
Leitað á heimili ástkonunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.11.2012 kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2012 | 17:12
Trúlegra að Petraeus hafi haldið framhjá með fleiri konum.
Framhjáhaldsmál hershöfðingjans er mesta sápan í Washington síðan Bill Clinton var í kynlífsleikjum við Monicu Lewinksy.
Paula Broadwell er athyglissjúk og svífst greinilega einskis á framabrautinni.
Hana dreymdi um að verða þjóðarörggisráðgjafi forsetans í framtíðinni.
Hún á tvo unga syni með sínum stórmyndarlega manni sem er læknir og sérfræðingur í geislalækningum.
Blaðamenn í BNA velta nú vöngum yfir því hvort að læknirinn hafi skrifað nafnlaust bréf í vandamáladálk í New York Times.
Önnur athyglissjúk fegurðardís, og læknisfrú, er Jill Kelley, í Tampa í Florida, hún er sjálfboðaliði í herstöðinni þar nærri.
Þar var Petraeus yfirmaður þar til Obama sendi hann til Afganistan eftir að hafa rekið Stanley McChrystal.
Læknisfrúin kom sér í vinfengi við þau hershöfðingjahjónin til að fá athyglina af nærveru hershöfðingjans.
Frú Kelley fannst ekki leiðinlegt þegar herhöfðinginn renndi í hlaðið, að glæsihúsi þeirra hjóna, í 28 bíla lest eins og í bíómynd.
Sú hefur ábyggilega sofið hjá hershöfðingjanum til að koma þessu smáræði í kring.
Sama hefur hún vísast gert við lögreglumanninn hjá FBI sem hún bað um að rannsaka tölvubréfin frá Paulu Broadwell.
Þessi lögreglumaður er nú í vondum málum hjá yfirmönnum sínum vegna óeðlilegs áhuga á afdrifum málsins.
Við rannsókn á högum hans kom í ljós að hann sendi vinkonu sinni frú Kelley mynd af sér þar hann er ber að ofan.
Það þykir yfirmönnum FBI ekki gott og því síður þingmönnunum sem anda ofan í hálsmál þeirra við skoðunina á málinu
Paula Broadwell sagði frú Kelley að hún vissi hvað hún hefði gert og skipaði henni að halda sig frá Petraeus.
Bandríkjamenn hugleiða nú hvort afsögnin tengst yfirheyrslum þingsins vegna árásarinnar á sendiherrann í Líbíu.
Obama og þau í Hvíta húsinu hafa logið eins og þau þurftu um það mál.
Hér er athyglisverð grein blaðamannsins Michael Hastings um málið.
http://www.buzzfeed.com/mhastings/the-sins-of-general-david-petraeus
Sá er sérfræðingur í málefnum hersins og skrifaði fræga grein í tímaritið Rolling Stone fyrir tveimur árum.
Sem varð til þess að Obama rak Stanley McChrystal fjögurra stjörnu hershöfðingja Bandaríkjanna í Afganistan.
Hér að neðan er hluti af umfjöllun Reuters um málið:
Kelley and her husband, Scott Kelley, a Tampa cancer surgeon, became friends with Petraeus when he was stationed at MacDill Air Force Base in Tampa from 2008 until 2010, people familiar with the situation said. At the time, Petraeus was commander of the U.S. military's Central Command, which runs operations in the Middle East and South Asia. The two families socialized in Tampa and in Washington, the people said. Unlike Broadwell, who has been silent and out of public view since the story broke on Friday, Kelley has put out a statement on her family's friendship with the Petraeuses and asked that her family's privacy be respected. A source close to the family said that Kelley is now being advised on how to respond to the Petraeus uproar by one of Washington's most prominent trial lawyers, Abbe Lowell, a family friend who has represented high-profile criminal defendants like former U.S. Senator John Edwards and disgraced Republican lobbyist Jack Abramoff. Lowell did not respond to requests for comment. Kelley has also enlisted the help of Judy Smith, a well-known crisis PR manager who is the model for the ultra-effective fixer and spin doctor Olivia Pope in the ABC Thursday night TV drama "Scandal."
http://www.reuters.com/article/2012/11/13/us-usa-petraeus-women-idUSBRE8AC04Y20121113
![]() |
Hátt fall hjá flekklausum foringja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2012 | 10:08
Átti að koma fyrir þingnefnd í næstu viku.
Sumir Bandaríkjamenn telja trúlegra að Obama sé að losa sig við Petraeus svo að hann beri ekki vitni.
Það voru mikil vandræði á bandaríska stjórnarheimilinu þegar sendiherrann í Líbíu var drepinn ásamt þremur öðrum.
Þeir sömu telja að Petaeus hafi ekki tekist nægilega vel upp að mati þeirra í Hvíta húsinu.
Í að taka skellinn af forsetanum og nú fái Petraeus að fjúka svo að hann fari ekki að segja sína sögu í þinginu.
Bandarísk yfirvöld hafa lengi vitað um framhjáhald Petraeus með blaðakonunni.
Tímasetningin nú er því varla tilviljun. Þeir vissu af framhjáhaldinu áður en hershöfðinginn var gerður að forstjóra CIA.
Bloggarinn Avatar JCAL segir:
"Gen Betrayus was sleeping with Iraq female terps when he was in Mosul. It was common knowledge that lead to his nickname General Pussy."
![]() |
CIA-stjóri hættir vegna framhjáhalds |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.11.2012 | 17:21
Það sem er rétt hjá Jóni Steinari.
Er að svokölluð áfallastreituröskun er ekki sjálfstætt sönnunargagn í sakamálum.
Áfallastreituröskun er vissulega vísbending um að einhver hafi fengið áfall við, eða eftir, einhverjar aðstæður.
En hún er hvorki sönnun um einstök málsatvik né hvað þá sönnun um sekt, eða sakleysi, þeirra sem þar komu að málum.
Þannig getur einhver orðið fyrir áfallastreituröskun vegna þess að hann gerði eitthvað sem hann er ekki vanur að gera.
Eitthvað sem er nægilegt til þess að viðkomandi verði í framhaldinu fyrir áfalli og streitu sem truflar líf hans.
Undir áhrifum áfengis gæti einhver t. d. haft kynmök við aðila sem aldrei hefði orðið.
Ef viðkomandi hefði t. d. ekki verið meira drukkinn en venjulega eða aðstæður frábrugðnar.
Skömm eða hræðsla út af viðbrögðum umhverfisins getur þá valdið áfalli.
Og ef viðbrögð umhverfisins eru ofsafengin er ákveðin hætta á að viðkomandi láti þvæla sér til að segja eitthvað nauðgun.
Sem var það ekki.
Eða hræðsla við að hafa smitast af kynsjúkdómi, lifrarbólgu, HIV o. s. frv.
Hræðsla við að hafa smitast af HIV er fullkomlega nægileg til að þjást af áfallastreituröskun.
Þar þarf ekki svo mikið sem nauðgun til.
Áfallastreituröskun er óbeint sönnunargagn sem hefur verið gert allt of hátt undir höfði.
Greiningin er þar fyrir utan byggð á hugvísindum en ekki raunvísindum eins og t. d. DNA próf.
Nýlega vitnaði Jón Steinar Gunnlaugsson í hæstaréttardóm þar sem hann taldi ungan mann, ranglega sakfelldan um nauðgun.
Þar annaðist kunningjakona foreldra hins meinta fórnarlambs, skýrslutöku í Barnahúsi sem dómari.
Þar með talið skýrslutöku af vinkonu hins meinta fórnarlambs.
Sú vinkona sagði, að fórnarlambið hafi í upphafi sagt, að ekki hafi verið um nauðgun að ræða.
Hún hefði "...riðið honum..." en sæi geðveikt mikið eftir því.
Vegfarandi sá til samræðis unga fólksins og sagðist ekki hafa séð þar neina nauðung þar sem stúlkan eðlaði sig ofan á piltinum.
Eftir samræði þessa barnunga fólks kom pilturinn fram við stúlkuna eins og karldýr af skynlausi skepnutegund.
En eftir að hafa lesið héraðsdóm og hæstaréttardóminn og um þessar aðstæður í Barnahúsi.
Þá er ekki með nokkru móti hægt að sannfærast að um nauðgun hafi verið að ræða.
Og ef að vafinn er svo mikill þá BER að sýkna, líka þó að viðkomandi sýnist koma beint úr rennusteininum.
Að mínu mati er enginn vafi á að þarna hafa dómarar gefið afslátt af sönnunarmati sínu vegna þrýstings.
Ungi maðurinn var hins vegar sakfelldur fyrir að hafa mök við aðila yngri en 15 ára.
Það var hárrétt og engar málsbætur eða vafi um það.
Skýrslutaka dómarans í Barnahúsi, kunningjakonu foreldra stúlkunnar, var í andstöðu við anda laga og mannréttindasáttmála.
Um að sakaðir menn eigi rétt á að um mál þeirra sé fjallað fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstól.
Viðkomandi tók sem dómari við héraðsdómstólinn þátt í öflun gagna í dómsmálinu sem gátu bæði leitt til sektar eða sýknu.
Engu breytir þó að viðkomandi dómari hafi ekki dæmt í málinu sjálfu.
Þetta mál er hneyksli fyrir dómskerfi okkar og viðkomandi dómarar, sem sakfelldu, ættu að segja af sér.
Þeir eru orðnar gungur sem ekki treysta sér lengur til að dæma eftir lögunum.
Kröfur um afslátt af lögbundnum mannréttindum eru ekki kröfur um réttlæti.
Þær eru kröfur siðblindra kyndilbera óréttlætis og lögleysu.
Það er ekki nýtt að siðblindir ofstækismenn reyni að helga málstað sinn með blekkingum.
En siðblindan er engu betri þó að hún klæðist hempu eða mussu.
![]() |
Dómstólar látið undan múgæsingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.11.2012 kl. 01:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.11.2012 | 15:43
Veitir sannanlega ekki af endurmenntun en hún á að vera árlega.
Ekkert var kennt um hleðsluútreikinga og jafnvægi í meiraprófinu þegar ég tók það fyrir áratug.
Ekkert um útreikninga á samspili hraða og vinds sem blæs frá hlið.
Ekkert um áhrif miðsóknarkrafts í beygjum (Sem almennt er frekar kallað miðflóttaafl.)
Ekki var við frábæra kennara ökunámsins að sakast. Námsefnið var einfaldlega ófullnægjandi.
Bæði í flug- og siglinganámi er strax í upphafi farið vel í þessa þætti sem skipta gríðarlegu máli.
Og þeir skipta ekkert minna máli í akstri stórra ökutækja heldur en í flugi eða siglingum.
Árlega fréttist af ökutækjum sem eru að fjúka út af vegum eingöngu vegna þekkingarleysis.
Oft eru þetta frábærir bílstjórar svo langt sem það nær en meiri menntun vantar einfaldlega.
Í tilteknu dæmi væri hægt að aka stærstu gerð af fulllestuðum bíl af öryggi í mesta mögulega vindi frá hlið.
Svo fremi sem að þyngdarpunktur farmsins stæði ekki óvenju hátt og að ekki væri hálka eða snjór á veginum.
Í sama tiltekna dæmi væri hins vegar alveg öryggt að bílinn myndi fjúka á hliðina væri hann ólestaður.
Nákvæmlega svona dæmi sáum við þegar flutningabíll, með tengivagni, fauk á hliðina á Borgarfjarðarbrúnni í fyrra.
Bílstjórinn var afbragðsmaður úr Borgarfirðinum og ekki við hann að sakast að námsefninu sé ábótavant.
Þarna er skiptir máli flatarmálið á hlið bílsins, hæð hans, breidd, þyngdarpunktur, þyngd, hjólbarðar og lögun bílsins.
Einnig vindhraðinn, vindátt, yfirborð vegarins, snjór, hálka, bleyta, landslag og hraði bílsins.
Hjólhýsi eru dæmi um ökutæki sem eru sérstaklega létt miðað við rúmmál sem tekur á sig vind.
Almenn ráðlegging söluaðila hjólhýsa hefur einatt verið að ekki sé ráðlegt að aka með þau í vindi sem er yfir 15 m/s.
Við einhvern tiltekinn vindstyrk er einfaldlega öryggt að þau munu fjúka út af veginum.
Lítill munur er á ólestuðum sendibíl og hjólhýsi í þessu tilliti og það sama gæti átt við um rútur.
Það ergilegasta er svo að á vefnum liggja fyrir allar nauðsynlegar upplýsingar um þessi mál.
Frábærar skýrslur á vef Rannsóknarnefndar umferðarslysa, frábærar skýrslur verkfræðinga á vef Vegagerðarinnar.
En efni þeirra þarf að komast til þeirra sem aka þessum stóru bílum, ásamt hliðstæðum upplýsingum úr öðrum áttum.
Til þess eru endurmenntunarnámskeið besta leiðin.
En þau eiga að vera á hverju ári en ekki á fimm ára fresti og snúast fyrst og fremst um öryggismál.
![]() |
Bílstjórar skikkaðir á skólabekk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
8.11.2012 | 12:17
Össur fær 11 þúsund miljónir í utanríkismál.
Blessaður læknirinn getur vissulega brosað gegnum tárin þegar hann hugsar til þess að ekki er allt á vonarvöl.
Þannig segja fjárlögin í ár að Össur okkar fái ellefu miljarða á næsta ári.
Hann getur samt því miður ekki leikið sér með það allt saman því að fastur kostnaður eins og ráðuneytið og sendiráðin kosta 4 miljarða.
En svo hefur okkar maður frjálsar hendur með afganginn.
Þannig fær þessi Íslandsstofa 489 miljónir. Það er þau sem auglýsa í Ameríku að við ætlum að skipta um nafn og kennitölu.
Og þá geta menn glaðst yfir því að ef Össur misreiknar sig á heftinu, eins og í fyrra, þá fær hann bara meira á fjáraukalögum.
Í ár fékk hann orðalaust skitnar 165 miljónir sem hann misreiknaði sig í afstemmingunni á farseðlunum.
Ein ferðabókunin til Brussel mislagðist nefnilega í gegnum Indland og önnur flækti Össuri um Afríku.
En það verður ekki við öllu séð í ráðuneytinu frekar en á Veðurstofunni.
![]() |
Hrun Landspítalans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.11.2012 kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)