8.11.2012 | 10:46
Spáðu rigningu og slyddu en féð kafnaði í snjó.
Ögmundur hefur algerlega rétt fyrir sér í þessu máli.
Bóndi sem les veðurspá um hvassa norðanátt með rigningu, slyddu og 4° hita.
Á ekki von á því að allt hans búfé kafni þar með í snjóbyl og fannfergi.
Það þyrfti þá að vera greindur bóndi sem áttar sig á að slydda þýði lágt hitastig.
Og að þar með geti hitinn lækkað enn frekar af því að þetta er norðanátt.
En þeir eru varla svo greindir bændurnir þarna sem hafa jú kosið sér Steingrím og Björn Val á þing.
Nema að þeir hafi losað sig við þá suður til að hvíla sig á síbyljunni.
Alls ekki er hægt að ætlast til þess af Veðurstofunni að hún geti alltaf séð fyrir alla mögulega dynti í veðrinu.
En þegar spáð er rigningu og slyddu hlaupa fæstir til að spenna á sig snjóþrúgur eða gönguskíði.
Það sem upp úr stendur er að Veðurstofan spáði hvassri norðanátt slyddu og rigningu.
Það var ekki með nægum fyrirvara spáð því mannskaðaveðri þar sem ekki var hundi út sigandi.
Það er ekki fyrr en kl 11 að morgni fyrsta óveðursdagsins að Veðurstofan minnist á SNJÓ.
Og þá er nú heldur seint að leggjast í smalamennsku á afréttum.
Að slíkri spá er ekkert gagn í þessu tilliti.
Og það var nú það sem Ögmundur var að segja.
![]() |
Ummæli ráðherra komu Veðurstofunni í opna skjöldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2012 | 16:53
Romney var ekki sannfærandi frambjóðandi.
Á undanförnum árum hefur Romney talað með og á móti flestum málum.
Á það benti einn af hörðustu flokksmönnum hans þegar forval frambjóðanda stóð yfir.
Þegar upp var staðið töldu repúblikanir Romney einfaldlega vera það skársta sem þeir höfðu.
Aðkoma hans að því að flytja bandarísk störf úr landi, fór algerlega með þann meðbyr sem Romney vantaði.
Demókratar auglýstu þetta vel í vor, sumar og allt haust en Romney fór ekki að svara þeim fyrr en í haust.
Þá voru demókratar búnir að stimpla vel inn í kjósendur að þetta væri auðmaður sem hugsaði ekkert um þeirra hag.
Romney svaraði ekki blaðamönnum um skattamál sín og kvartaði svo yfir umfjöllun þeirra.
Ummæli hans um að þau 47% landsmanna sem ekki greiddu alríkisskatta voru hræðilegt klúður.
Á fjáröflunarfundi sagði hann þessi 47% vera byrði á öðrum landsmönnum.
Ekkert um það að stór hluti af þessu fólki greiddi skatta í sínum heimaríkjum og allir óbeina skatta af neyslu.
Kannski er karlinn ekki svo slæmur en þetta var ekki pólítískt ekki klókt af honum.
![]() |
Erfitt að fella sitjandi forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.11.2012 | 15:54
Breytt landslag í bandarískum stjórnmálum.
Hin ráðandi hvíta yfirstétt hefur hingað til reynt að torvelda minnihlutahópum að nýta kosningarétt sinn.
Með því að flækja allt kosningaferlið tókst þeim að halda ýmsum frá kjörstað.
Fólki sem ekki var vel að sér í ensku, illa læst eða ólæst.
Það fólk kaus ekki vegna kosningaskráningarkerfis sem er hreinlega fáránlegt miðað við íslenskar reglur.
Þá tókst lengi vel að fæla sömu hópa frá með því að hafa kosningaseðilinn nægilega flókinn.
Demókratar hafa unnið gríðarlega vinnu í að hjálpa minnihlutahópum í gegnum kosningaferilinn.
Meðal annars með því að nota vel tímann sem gefst til utankjörstaðakosninga með sínu fólki.
Gríðarlegur vöxtur eru í hópum spænskumælandi fólks sem upprunnið er í löndum sunnan BNA.
Þeir eru orðir 16% landsmanna og hefur fjölgað um 43% á síðasta áratug.
Mest er fjölgunin í suðurríkjunum þar sem vagga Repúblikana hefur legið í hálfa öld.
Í 8 slíkum ríkjum er fjölgunin frá um 100% og upp í tæplega 148%
Á sama tíma er Repúblikanaflokkurinn að færa sig frá þessu fólki með ofstækisfullum málflutningi gagnvart innflytjendum.
Eina mið- og suðurríkið sem telst vera traust fyrir Demókrata er New Mexico og þar eru spænskumælandi orðnir 46% kjósenda.
Í öðrum fylkjum í mið- og suðurríkjunum mál sjá áhrif af fjölgun spænskumælandi íbúa.
Í fylkjum eins Nevada 26.5% íbúa, Colorado 20.7% íbúa og Florida 22.5%
Og þar sem fylgi flokkanna er mjög svipað skiptir spænskumælandi hlutinn gríðarlega miklu mál þó að hann sé ekki svo stór.
Í fylkjum eins og Norður Karólínu 8.4% íbúa, Virginia 7.9% íbúa og Wisconsin 3.6% íbúa.
Og Repúblikanar geta haldið áfram að svitna.
Í Georgíu eru spænskumælandi íbúar 9% íbúanna sem hefur fjölgað um 96% á einum áratug.
Þar eru 16 kjörmenn og Romney vann með aðeins 8% mun.
Í Arizona eru spænskumælandi íbúar 25% íbúanna sem hefur fjölgað um 46% á einum áratug.
Þar eru 11 kjörmenn og Romey vann með aðeins 11,4% mun.
Í Texas eru spænskumælandi íbúar 32% íbúanna sem hefur fjölgað um 42% á einum áratug.
Þar eru 38 kjörmenn og Romey vann með um 15,8% mun.
Tapi repúblikanir fylkjum eins og Texas, og fleiri slíkum, eru þeir búnir að vera sem leiðandi flokkur í bandarískum stjórnmálum.
Það væri reyndar hið besta mál Bandaríkjamenn og heimsbyggðina alla.
![]() |
Völdu Romney í stað Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2012 | 15:01
Skynsemin sigraði.
Verði getnaður við nauðgun er það vilji Guðs, segja mestu vitleysingarnir í Repúblikanaflokknum.
Þeir sömu vilja í banna fóstureyðingar og skerða þar með kvenfrelsi.
Helst vilja sumir þeirra banna getnaðarvarnir líka.
Með þessa vitleysinga á bakinu var Romney að reyna að höfða meira til kvenna í kosningabaráttuni.
Þá hafa margir Repúblikanir rekið harða stefnu gegn innflytjendum og vilja þá burt sem komist hafa yfir landamærin úr suðri.
Ekki var þetta heldur til að bæta stöðu Romney í fylkjum eins og Florida eða miðríkjum eins og New Mexico og Colorado.
New Mexico (46% frá Suður Ameríku) og Colorado (20% frá Suður Ameríku) eru einu miðríkin sem Obama sigraði í.
Þá hefur þetta varla hjálpað Romney í Nevada þar sem spænskumælandi kjósendur eru komnir í 26%
Svo eru kjósendur í Bandaríkjunum allmennt búnir að átta sig á að fjárlagahallinn og önnur vandræði séu arfur frá Bush.
Sem auk þess að lækka skatta var stríðsbrjálaður eins og margir haukarnir í Repúblikanaflokknum.
Stríðið í Írak var fyrsta stríðið sem Bandaríkjamenn háðu án þess að eiga fyrir því.
Af því sýpur almenningur í Bandaríkjunum nú seyðið.
![]() |
Romney viðurkenndi ósigur sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2012 | 00:10
Einnig mjög fallegar myndir á vefnum airpano.com/
Vefur sem kennir sig við sjö undur veraldar er með gífurlega fallegar myndir frá Íslandi.
Á vefnum má skoða ýmsa af merkilegustu stöðum heimsins og þar eru myndir af fimm stöðum á Íslandi.
Slíkar myndir eru gífurleg auglýsing fyrir landið og ómetanlegar fyrir ferðaþjónustu okkar.
Sjá hér gífurlega fallegar myndir að fjallabaki:
http://www.airpano.com/360Degree-VirtualTour.php?3D=Iceland-Fjallabak
![]() |
Loftmyndir frá Íslandi vekja heimsathygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2012 | 21:15
Um 98% Íslendinga styðja frambjóðanda Demókrataflokksins.
Nýlegar sögðu fjölmiðlar að af 32 þjóðum væru Íslendingar traustustu stuðningsmenn demókrata í Bandaríkjunum.
Um 98% þjóðarinnar styddu frambjóðanda Demókrataflokksins og þar af leiðandi ekki meira en 2% frambjóðanda Repúblikanaflokksins.
Demókratann Obama styðja um 98% þjóðarinnar og af þeim eru um 40% sjálfstæðismenn.
Þessi sömu 40% sjálfstæðismanna styðja samt sem áður frekar Repúblikana segja þau á stjórnarheimilinu.
Sem hafa reiknað út að 40% þjóðarinnar geti leynist inni í 2% þjóðarinnar eða minna.
Svo eru einhverjir undrandi á að landið stefni í gjaldþrot.
Það er nú að skýra sig.
http://www.ruv.is/frett/islendingar-myndu-kjosa-obama
![]() |
Tengdi Sjálfstæðisflokkinn við repúblikana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2012 | 17:07
Romney gæti ennþá unnið.
Í gær var Mitt Romey nokkuð öruggur með 191 kjörmann en auk þess var Florida að hallast á hans hlið.
Í dag virðist forskot hans í Florida vera að aukast þannig þar hefur Romney 29 kjörmenn eða alls 220.
Í gær var Romney með 1% forskot í Flórída sem er 2% í dag. Það er innan skekkjumarka en í samræmi við þróunina þar.
Í gær var jafnt í Norður Karólínu en hún virðist vera að halla sér aftur til Romney. Þar eru 15 kjörmenn.
Virginía með sína 13 kjörmenn hafði hallast til Obama í gær en er í dag að hallast til Romney.
Í gær var Obama með 3% forskot í Viginíu sem er innan skekkjumarka.
Romney gæti einnig unnið Iowa með 6 kjörmenn og einnig Ohio með 18 kjörmenn.
Vinni hann í þessum fylkjum er hann búinn að vinna með 272 kjörmönnum.
Í dag er ekki nokkur leið að átta sig á þróuninni í Iowa og Ohio, þó að þar hafi Obama 3% forskot sem innan skekkjumarka.
Nema að kjósendur eru undir loftárásum af auglýsingum.
![]() |
Niðurstaðan verður söguleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2012 | 17:52
Og hélt hlífiskyldi yfir Margréti Müller.
Þeir sem mest hamast við að sannfæra sjálfa sig um að sr. Ágúst George sé saklaus af öllum ávirðingum.
Hafa með engu móti getað útskýrt hvers vegna maðurinn losaði sig ekki við Margréti Müller.
Þrátt fyrir að um áratugaskeið hafi rignt yfir sr. George kvörtunum yfir fúlmennsku hennar og illsku.
Hann sem átti að hafa verið svo góður við börnin og hugsað um hag þeirra fram yfir allt.
Þetta eru skelfileg mál bæði fyrir fórnarlömb og einnig fylgismenn þeirra sem ásakaðir eru.
Einn af þeim sem mest eiga bágt vegna sr. Georgs, er Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur í Kaupmannahöfn.
Honum er einnig stórkostlega misboðið að rannsókarnefndin gerði ekki meira með upplifun hans af sr. George.
Hann ólmast því við að kasta rýrð á nefndarmenn í rannsóknarnefndinni.
Tveir af þessum nefndarmönnum eru fyrrverandi kennarar mínir.
Sá þriðji viðskiptavinur minn um skeið og á sinni tíð einhver besti embættisdómari landsins.
Og er auk þess höfundur frábærra fræðigreina um réttarheimspeki.
Ég fullyrði, fyrir minn hatt, að hæfara fólk finnst ekki á Íslandi til að sitja í rannsóknarnefnd í þessum málaflokki.
Mér þykir því aumt að Vilhjálmur sé í bágindum sínum að kalla rannsóknarskýrsluna "...klámhögg..." og "...falsanir..."
Og þar sem ég vildi fá einhver haldbær rök hjá Vilhjálmi, auk þess að stríða honum lítillega.
Þá taldi hann mig vera "...kjána... ...ótíndan dóna, dylgjukarl..." og gerði því skóna að ég væri rasisti.
Og þó svo að allt þetta kynni að vera rétt hjá Vilhjálmi þá kom hann ekki með nein efnisrök í málinu.
En hneykslaðist eðlilega á "...siðleysi margra Íslendinga og rökleysuhyggju og múgæsingu..."
Það sem Vilhjálmur kallar fölsun er að stúlkan A hafi ekki vitað nafnið á kaþólska biskupnum þegar hún var 13 ára.
Og hafi áratugum síðar misminnt um nafn á þessum biskupi sem hún hitti líkast til aldrei sjálf.
Vilhjálmur er afar hneykslaður á fréttaflutningi og skýrslugerð um þessar ávirðingar.
Í bréfum til rannsóknarnefndarinnar segir Vilhjálmur meðal annars:
"...Persónulega, finnst mér sem sérfræðingi sem langmenntaður er í heimildarýni, að margt í frásögn meintra fórnarlamba séra Georgs sé út í hött..."
"...Ég minnist séra Georgs sem vinalegs og hægláts manns, sem þegar hann mátti vera að lék sér með okkur strákunum í fótbolta...""...en ég upplifði ekkert í háttum séra Georges sem mér þykir benda til pedastrianisma eða pedófílíu, nú þegar ég lít í bakspegilinn.
Engin börn báru heift í garð hans. Börn leituðu til hans í vandamálum sínum, því enginn þorði að tala við Margréti..."
Þá kýs Vilhjálmur að misskilja það sem rannsóknarnefndin segir um efni ásakanna frá því fyrir árið 1988.
Þar er rannsóknarnefndin að vísa til þess að engin gögn séu til um hvers efnis ásakanir hafi verið fyrir þann tíma.
Dæmi um það er að á árinu 1964 fór faðir stúlkunnar A á fund biskups til að ásaka sr. George.
Báðir eru þeir látnir, faðirinn og biskupinn, og ekkert er til skriflegt um efni þess sem þeim fór á milli.
(Og engin gögn eru til um viðbrögð biskupsins eða kaþólsku kirkjunnar við erindi föðursins).
Því segir rannsóknarnefndin um þetta atvik og fleiri:
"...Með vísan til alls ofangreinds verður rannsóknarnefndin að telja óvarlegt að álykta nokkuð um efni ásakana eða viðbrögð við þeim fyrr en kemur að árinu 1988..."
Þetta misskilur Vilhjálmur algerlega.
Og telur að rannsóknarnefndin sé að taka afstöðu til sannleiksgildis á framburði meintra fórnarlamba.
Og Vilhjálmur fullyrðir á bloggi sínu:
"...Nú, þegar í ljós er komið, að vart stendur steinn yfir stein í frásögnum meintra þolanda frá því fyrir 1988, sem hægt er að álykta um á rökrænan og vitrænan hátt, að nöfn þessa fólks sem setti fram ásakanirnar er alveg eins hægt að birta eins og nöfn meintra gerenda..."
Vilhjálmur ruglar því saman annars vegar;
hvers efnis ásökun föður A var við biskup - eða efni annarra hliðstæðra ásakanna og viðbragða við þeim-
og hins vegar ásökunum sem komu fram hjá hinum meintu fórnarlömbum sjálfum.
Hinn langmenntaði sérfræðingur í heimildarýni hefur áhyggjur af rökleysuhyggju.
Og þeim áhyggjum deili ég með vini mínum dr. Vilhjálmi.
![]() |
Séra Georg fengi viðurkenningu páfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.11.2012 kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Romney var með 142 örugga kjörmenn og var nokkuð öruggur um 49 til viðbótar.
Það hefur ekkert breyst.
Svo hafði hann 2% forskot í Norður Karólínu þar sem eru 15 kjörmenn.
Í gær var jafnt í Florida en þar er Romney 1% hærri í dag og þar eru 29 kjörmenn.
Sá árangur er tregablandinn þar sem 28 kjörmenn hafa í dag verið að hallast í áttina til Obama.
Romney hefur tapað þessu 2% forskoti í Norður Karólínu og þar fóru þessir 15 kjörmenn og þar er staðan jöfn í dag.
13 kjörmenn Virginíu er aftur komnir til Obama og það með 3% forskoti sem er reiðarslag fyrir Romney.
Romney er því með nokkuð örugga 191 kjörmenn en í stað þess að hafa 15 volga er hann með 29 volga í dag.
Alls eru það því 220 kjörmenn sem hallast að Romney í skoðannakönnunum dagsins.
Þessa stundina er Obama með 217 nokkuð örugga kjörmenn þar sem hann hefur 4% forskot eða meira.
Það er reyndar 36 kjörmönnum færra en í gær.
Í gær var Obama með 28 kjörmenn fyrir Ohio, Nevada með 3% forskot í báðum fylkjum og New Hampshire með 2% forskot.
Í dag hefur hann svo bætt við sig 13 kjörmönnum Virginíu með 3% forskoti.
Í gær var Obama með 281 kjörmann sín megin en dag eru þeir 294. (Virginía) 270 þarf til að sigra.
Í hlutlausa pottinum í dag eru 9 kjörmenn Colorado sem líklegra er að Romney vinni og svo þessir 15 fyrir Norður Karólínu.Kannanir sögðu í gær að Obama væri siglingu upp á við í Virginíu og Norður Karólínu sem reyndist rétt.
Það virðist hins vegar hafa verið rangt að hann væri einnig á uppleið í Florída.
Til að sigra, þarf Romney að halda þessu forskoti í Florída.
Auk þess að á til sín Norður Karólinu og Colorado.
Og vinna auk þess Ohio og Virginíu þar sem Obama hefur 3% forskot.
Það verður sögulegt ef Obama tapar þessu en það er þó ekki útilokað.
Hann hefur aðeins 3% forskot í Wisconsin, Iowa, Virginíu, Nevada, Ohio og aðeins 2% forskot í New Hampshire.
Alls eru það 57 kjörmenn sem eru þetta tæpir skv. skoðannakönnunum og þar eru jú skekkjumörk.
Í morgun sagði hollenska blaðið De Volkrant frá 100 miljón dollara skattasniðgöngu Romney´s.
Það var í gegnum Holland og bætist við það sem áður hefur verið fjallað um varðandi Cayman, Bermuda og Lux.
Hvernig datt þeim í "The grand old party"í hug að bjóða þennan mann fram?
![]() |
Obama hefur misst fylgi ungs fólks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.11.2012 kl. 01:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.11.2012 | 10:42
Obama með yfirhöndina.
Mitt Romney hefur nær ekkert orðið ágengt í tvær til þrjá vikur.
Hann var verulega seinheppinn að vera á móti björgunarpakka Obama í bílaiðnaðinum.
Svo eru opinberu starfsmennirnir í Virginíu ekki hrifnir af hugmyndum Romney´s um niðurskurð hjá hinu opinbera.
Ekki einu sinni Nevada, þar sem atvinnuleysi er vandamál, er á bandi Romney.
Þar er atvinnuleysið mest í Bandaríkjunum og húsnæðisvandræði og Romney hefur reynt að hamra þar á því.
Það er svo aumt að Wisconsin sem er heimaríki varaforsetaefnisins skuli vera komið í körfuna hjá Obama.
Svipað með New Hampshire þar sem Romney á sumarhús og vinsæll þar þess vegna.
Svo er það ákveðin niðurlæging fyrir Romney að hafa hvorki náð Michigan né Massachusetts.
Hann ólst upp í Michigan og pabbi hans var vinsæll ríkisstjóri þar.
Massachusetts er svo hans eigið heimaríki þar sem hann býr og var ríkisstjóri.
Hann er hefur 142 örugga kjörmenn og nær öruggur um 49 til viðbótar.
Þá hafa þessir 15 kjörmenn Norður Karólínu ýmist verið hans eða ekki.
Þessa stundina eru þeir þeir volgir Romney megin með 2% forskot á Obama.
Alls eru þetta 206 kjörmenn og þannig hefur það verið í tæpar tvær vikur.
Það var svo reiðarslag fyrir hann á föstudag þegar hagtölurnar komu út um fjölda atvinnulausra.
Í október urðu nefnilega til 171.000. ný störf t. d. tengd bílaiðnaðinum sem Obama bjargaði með ríkisaðstoð.
Eitthvað sem Romney var á móti en Ohio hefur 18 kjörmenn og þar skiptir þetta miklu máli.
Og á þessu siglir Obama nú í Ohio og virðist lítið ganga hjá Romney að ná niður 3% forskoti Obama þar.
Sama er enn upp á teningnum í Iowa 4% forskot (6 kjörmenn) og í Nevada 3% forskot (6 kjörmenn).
Obama landaði Wisconsin fyrir rúmri viku þannig að þar er hann enn með 4% forskot og 10 kjörmenn.
Þessi ríki Ohio, Iowa og Winconsín eru í vesturríkjunum þar sem bílaiðnaðurinn á rætur.
Og þar er líka Minnesota sem Romney gerði sér vonir um að vinna en þar hefur Obama aukið forskot sitt úr 4 í 8%.
Fyrir fjórum dögum var jafnt í New Hampshire en nú hefur Obama þar 2% forskot og 4 kjörmenn.
Þessa stundina er Obama með 179 örugga kjörmenn, nokkuð örugga 74 kjörmenn til viðbótar ( 4% + forskot).
Þar er Obama með 253 kjörmenn sem Romney nær varla af honum úr þessu.
En að auki er Obama með þessa 28 kjörmenn fyrir Ohio, Nevada og New Hampshire (2-3%) forskot.
Haldi hann þeim hefur hann sigrað með 281 kjörmönnum en 270 kjörmenn þarf til að sigra.
Þá eru eftir í pottinum Florída 29 kjörmenn, Virginía 13 kjörmenn og Colorado 9 kjörmenn.
Kannanir segja að Obama sé á siglingu upp á við í Flórída, Virginíu og meira að segja í Norður Karólínu.
Obama vann í því íhaldssama fylki síðast og þar skiptu atkvæði úr utankjörfundaratkvæðagreiðslum miklu máli.
En demókratar voru þá duglegir að smala sínu fólki til að kjósa utan kjörfundar og eru það enn.
En að Obama sigli niður á við í íhaldsfylkinu Colorado sem eru ekki sérstakar fréttir þrátt fyrir sigur hans síðast.
Þar þykir þau fagur fuglasöngur, loforð Romney´s um niðurskurð á umsvifum og afskiptum alríkisins.
Slíkur málflutningur fellur vel að eyrum íbúa í New Hampshire en þar hefur það ekki virkað hjá Romney.
En það er í norðvesturríkjunum sem úrslitin virðast ráðast.
Til að sigra, þarf Romney að halda Norður Karólinu og ná til sín Colorado.
En auk þess að vinna Flórída, Ohio og Virginíu.
Að atvinnustefna Obama hafi í október verið að fjölga störfum er nákvæmlega það sem kjósendur á Flórída vilja heyra.
Ótrúlegt ef Romney er ekki fallinn á tíma í þessari baráttu
![]() |
Lokaspretturinn er hafinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)