20.10.2012 | 23:26
Datt ekki í hug að kjósa en samt algjörlega á móti.
Að um 67% segi JÁ af þeim 40% sem nenntu á kjörstað, þýðir að Samfylkingin segir JÁ.
Um 67% af um 40% kjósenda eru 27% - 28%, af öllum á kjörskrá, eða svipað og kusu Samfylkinguna síðast.
Sem sagt; nákvæmlega engar fréttir. Enda um að ræða stjórnarskrártillögur Samfylkingarinnar og Evrópusambandsins.
Ég hef ekki lesið þessar tillögur þó ég hafi verið, í rúm 30 ár, alveg sérstakur áhugamaður um stjórnlög.
Þessi blekkingarleikur þeirra Össurar og Jóhönnu er ekki yfirlestrar virði hvað þá til að eltast við á kjörstað.
"...Valdið til fólksins..." og allt það er bara eitt kjaftæðið enn sem það fólk tekur.
Eini tilgangurinn er að fá fram breytingu til að heimilt sé að ganga í Evrópusambandið.
Og þá verður valdið endanlega farið frá fólkinu og sýnir vel við hvaða heilsu þau eru í Samfylkingunni.
Sé ekki í tillögurnar komið ákvæði um að heimilt sé að ganga í Evrópusambandið.
Verður því laumað inn í meðförum þingsins á síðari stigum.
Öllum hópum í stjórnlagaráði var stjórnað af útsendurum Samfylkingarinnar og þessu leikriti öllu.
Bara eitt sem skil ekki.
Af hverju var Ragnar Reykás ekki í stjórnlagaráði?
Ragnar er rökvísastur allra lögspekinga af þeim í Samfylkingunni.
Nema auðvitað að hann sé í VG hjá Steingrími frænda sínum.
![]() |
Kjörsókn um fjörutíu prósent |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.10.2012 kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.10.2012 | 17:55
Tók hann ekki lýsið með?
Hafi manngrjónið ekki tekið lýsið sitt með hafragrautnum þá þarf vissulega að sekta hann.
Bifreiðin var ekki á ferð. Ökumaðurinn var að bíða eftir að komast aftur af stað.
Hvað er athugavert við að ljúka við hafragrautinn sinn þegar bifreiðin er ekki í akstri?
Ég hef séð menn vera að raka sig á rauðu umferðaljósi, konur að mála sig og kemba hár sitt.
Aðrir eru að leita sér lúsa, hreinsa úr nefinu á sér af mikilli samviskusemi ellegar húðhreinsa sig á spegilinn.
Sé ekkert athugavert við að fólk nýti tímann þegar það er ekki að skapa hættu á nokkurn hátt.
Verra ef þeir gleyma að koma sér af stað þegar umferðarljósið verður grænt eins og spegillinn.
En þá njóta þeir yfirleitt góðfúslegrar hjálpar samborgaranna sem flauta lítið eitt og jafnvel örlítið til.
Lögreglunni væri nær að taka betur á þeim sem eru að snæða heilu máltíðirnar með akstrinum.
Pylsur, hamborgara, samlokur, að sjálfsögðu með gosdrykk og ís í eftirrétt, allt til að hafa ofan af sér við aksturinn.
Auk þess auðvitað að vera í hrókasamræðum með farsímann klemmdan á öxlinni.
Svoleiðis verður fólk sem ekki borðar hafragraut og fúlsar við lýsinu.
![]() |
Borðaði hafragraut undir stýri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2012 | 10:43
Dæmi um ofbeldi og sadisma frekar en klám.
Dæmin sem prófessorinn nefnir af "gonzo" klámi er af ofbeldi og sadisma þó að það sé í búningi "kynlífs".
Þeir sem virkilega hafa gaman af því að sjá konur tárfella út af sársauka við kynferðislegar athafnir.
Eru fyrst og fremst ofbeldismenn með öfugsnúið hugarfar.
Eðlilegum karlmönnum finnst fjarstæða að meiða konur sínar vísvitandi.
Íslenskar konur láta heldur ekki fara svona með sig.
En þetta er enn ein áminningin um að vanda kynhegðun sína til að verða ekki fórnarlamb lyfjanauðgunar.
Þar sem ofbeldismenn geta farið með konuna, eða karlinn, að sjúklegri vild.
![]() |
Klámiðnaðurinn niðurlægir konur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.10.2012 | 14:16
Ofsóknir kommúnista á heiðarlega embættismenn.
Furðulegt að Valgerður Bjarnadóttir skuli taka þátt í ofsóknum kommúnista á ríkisendurskoðanda.
Sem byrjaði á því að harðstjórinn Álfheiður Ingadóttir ætlaði að áminna Steingrím Ara Arason.
Fyrir að tala við embætti ríkisendurskoðanda án hennar leyfis sem heilbrigðisráðherra.
En varð að hætta við áminninguna eftir að ríkisendurskoðandi mótmælti því við Alþingi.
Að forstöðumenn ríkisstofnanna mættu ekki hafa samband við embættið án áhættu.
Um að ráðherrar færu þá að ráðast á embættismennina fyrir að sækja sér leiðbeiningar til Ríkisendurskoðunnar.
Fyrir þetta, og fleira, hafa kommúnistar ofsótt ríkisendurskoðanda og sýnt honum fádæma dónaskap við öll tækifæri.
Hundshaus kommúnista, Björn Valur Gíslason, er hælbítur á Sveini Arasyni.
Honum siga kommarnir ætíð út á þá sem nagaðir skulu úr skónum.
Það er Alþingi ekki samboðið að þar skuli sitja óbermi eins og Björn Valur.
Sem kom ættingjum sínum á kaldan klaka með því að láta falla á þá miljóna skuldir.
Og það er Valgerði Bjarnadóttur engan vegin samboðið að taka þátt í aðför kommúnista að ríkisendurskoðanda.
![]() |
Vill að ríkisendurskoðandi víki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.10.2012 | 00:51
Pútin skipaði sjálfur dómarann árið 2008.
![]() |
Meðlimur Pussy Riot í viðtali |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2012 | 00:43
Hypjaðu þig burt maður á meðan þú getur.
Í annarri frétt hér á mbl.is er fjallað um komandi valdhafaskiptingu í Kína.
Þar er vísað í umfjöllun Bloomberg fréttaveitunnar um viðbjóðslega spillingu í kringum valdamenn í Kína.
Og sérstaklega fjallað um þann gífurlega auð sem systkin og ættingjar komandi forseta hafa náð að sölsa undir sig.
Slíkan viðbjóð viljum við Íslendingar ekkert hafa með að gera.
Við erum nýlega búnir að sjá hvernig íslenskir fjárglæpamenn höguðu sér.
Og höfum alls engan áhuga á að flytja hingað kínverska spillingu og misskiptingu.
Ekki einu sinni fréttastofa RÚV, eða Spegillinn, trúa orði af bullinu í þér.
Komdu þér nú burtu hr. Nubo og hættu þessari lygaþvælu allri.
Sjá greinina á Bloomberg hér.
http://www.bloomberg.com/news/2012-06-29/xi-jinping-millionaire-relations-reveal-fortunes-of-elite.html
![]() |
Huang hvattur áfram af forsetanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.10.2012 | 00:37
Misskiptingin hvergi meiri en í Kína.
Það er með öllum ólíkindum hvað valdastéttirnar í kommúnistalöndunum í Kína og Rússlandi hafa náð að stela miklu.
Af því að allir eiga nú að vera jafnir í þessum kommúnismalöndum.
Þessi grein í Bloomberg er mjög fróðleg.
http://www.bloomberg.com/news/2012-06-29/xi-jinping-millionaire-relations-reveal-fortunes-of-elite.html
![]() |
Valdaskipti standa fyrir dyrum í Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2012 | 19:52
Hver ætti að hafa áhuga á kínverskum Volvo?
Fólksbílahluti Volvo er nú í eigu hins kínverska Zhejiang Geely Holding Group.
Það þarf nú ekki að segja meira.
![]() |
Volvo stöðvar framleiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.10.2012 | 23:33
Ætti ekki að koma neinum á óvart.
Margsinnis hef ég mótmælt stórkallalegum fullyrðingum þeirra Steingríms og Jóhönnu um árangur þeirra við landsstjórnina.
Árangur þeirra er nákvæmlega engin.
Allur ávinningur er á kostnað almennings er hert hefur sultarólina, misst atvinnuna, farið í skóla eða úr landi.
Fyrri ríkisstjórn lagði drög að því að landsstjórnin yrði í höndum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Steingrímur mótmælti því hástöfum og vildi skila láninu þaðan.
Engu að síður hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stjórnað efnahagsmálum landsins alla stjórnarsetu núverandi ríksstjórnar.
Um skuldastöðu landsins hef ég leyft mér að halda fram.
Að ennþá sé engan veginn öruggt að við getum greitt núverandi skuldir þjóðarinnar.
Það þurfti einungis að rýna lauslega í stóru tölurnar til að átta sig á að staðan er hrikaleg.
En þetta er engan vegin á hreinu ennþá.
Ætluð núverandi staða gæti batnað, en einnig gæti staðan verið miklu verri en nú sýnist.
Allt sjálfshól núverandi ríkisstjórnar er algerlega innistæðulaust.
Hvort við höfum það af?
Fer annars vegar eftir því hvernig skuldastaðan verður þegar öll uppgjör liggja fyrir.
Og hins vegar eftir aflahæfi þjóðarbúsins framvegis, í erlendum gjaldeyri.
Sem að sjálfsögðu mun alls ekki lagast eins og þarf.
Með fáráðlinga við stjórn sem ekki vilja styðja við atvinnulífið í landinu.
Mega ekki heyra minnst á virkjanir eða aukna orkusölu í neinni mynd.
Reyna þvert á móti að kæfa allt með aukinni skattheimtu.
Ef núverandi ríkisstjórn situr hér áfram fer landið lóðbeint til andskotans.
Þar er þó að minnsta kosti eitt atriði, í hagstjórninni, sem engum vafa er undirorpið.
Nema hvort við sökkvum niður í neðsta.
Þannig að það verði ekki fjandinn sem faðmi okkur heldur Stalín sjálfur.
Þá rætist æskudraumur Steingríms pílagríms-
för til Stalíns.
![]() |
Skuldum 90% meira en áður var talið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.10.2012 kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2012 | 16:45
Breyta þarf byggingareglugerð.
Í byggingareglugerð er talið upp allt það sem krafist er um gerð á nýjum íbúðum.
Krafist er að þar sé 18 fermetra stofa, baðherbergi, eldhús o. frv.
Almenn krafa er um öryggi, aðgengi, hollustu, gætt sé að þægindum íbúa og ótalmargt fleira.
Sérkrafa um læsanlega skápa fyrir geymslu á lyfjum og öðrum efnum hættulegum börnum, reykskynjari og slökkvitæki.
Eitt af mörgum vandamálum vesturlanda er að íbúum fjölgar ekki nægilega til að halda þjóðfélögunum gangandi.
Hér er ein orsökin komin.
Það vantar rólur í hjónaherbergin.
Og læsanlegan skáp fyrir hjálpartæki.
![]() |
Dótaherbergi fyrir fullorðna fólkið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)