Er aðeins grunnvindhraði á Íslandi. Mannvirki slök í BNA.

Við mannvirkjahönnun ganga íslenskir verkfræðingar út frá grunnvindhraða 35,5 metrum á sekúndu;   35,5 m/sek

Sem þeir aðlaga svo að landslagi, yfirborði o. s. frv.   

130 km/klst vindhraðinn í New York er aðeins rúmlega 36 m/sek. 

Sem segir okkur frekar að mannvirki þarna séu slök og jafnvel léleg ef þau þola ekki slíkan vind. 

Hérlendis fjúka hús ekki eða brenna, hvað þá að rafmagnið fari af landinu út af svoleiðis gjólu.

Þrefalt húrra fyrir íslenskum verkfræðingum. 


mbl.is Glymjandi hrannir gengu á land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er sjálfvirkt hjartastuðtæki á lögreglustöðinni?

Fróðlegt væri að vita hvort þau hafa hjartastuðtæki þarna á lögreglustöðinni. 

Það kostar svona svipað og ein utanlandsferð til Brussel. 

Lögreglan á Ísafirði fékk slíkt tæki gefins árið 2009. Gefandinn var Helga Guðbjartsdóttir. 

Þó að það sé vissulega frábært að kunna hjartahnoð eins og allir lögreglumenn gera.

Þá gera slík tæki gæfumuninn í sumum hjartaáföllum.  Tækið greinir það sjálft hvort það eigi við. 

Um sjálfvirk hjartastuðtæki má lesa um á vef Endurlífgunarráðs: 

http://www.endurlifgun.is/is/sjalfvirk-hjartastudtaeki
mbl.is Lést í haldi lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættu heldur góða.

Frú Álfheiður Ingadóttir er ágætt dæmi um fólk sem nauðsynlega þarf að hætta í stjórnmálunum.

Vinnubrögð kalda stríðsins þurfa að taka enda.

Fólk eins og Álfheiður, Jóhanna, Björn Valur og fleiri eiga ekkert erindi í stjórnmál framtíðarinnar.

Fólk sem stjórnast af heift, hatri og ofstæki er óhæft í samstarfi.

Eftir allar þeirra heitstrengingar eru þeir varla margir sem vilja starfa með þeim.

Ef ná skal einhverjum árangri.

En það er þeim sama um.

Bara að hafa völdin.


mbl.is Álfheiður stefnir á 2. sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þetta þotur frá Litháen.

WOW þarf að gera neytedum grein fyrir því hvaða þessar þotur eru.

Hvort þetta séu með elstu vélum af þessari gerð?

Hvort að þær séu frá Litháen?

Hvort að viðhaldið sé í Litháen?


mbl.is Miklar tafir hjá WOW-air vegna bilunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bannað að vera vondur við aumingja.

Steingrímur J. Sigfússon er hvorki skrímsli eða skrímslapabbi.

Steingrímur er óheiðarlegur, lyginn, ómerkilegur ónytjungur af þeirri síðustu sort sem venjulega er kölluð aumingi.   

Á Íslandi hefur aldrei þótt fallegt að vera vondur við aumingja.

Já skammist ykkar að segja svona ljótt um fólk.   


mbl.is Sagður „skrímslapabbi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver sér um viðhaldið á þessum vélum?

Nú er eitthvert WOW flugfélag farið að fljúga með íslenskan almenning yfir lönd og álfur.

Gaman væri ef einhver gæti upplýst hvaðan þessar þotur koma eða er þetta ein þota?

Hvar þær eru skráðar.   Hverrar þjóðar flugmennirnir eru. 

Og hverrar þjóðar þeir eru sem sjá um viðhaldið á þeim.

Og hvar það fer fram.

???  


mbl.is Lenti í Noregi vegna bilunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúluhús Skúla fógeta.

Ég hef heyrt að af alkunnum dugnaði fari Árni Johnsen fljótlega að bretta upp ermarnar.

Til að endurbyggja kúluhús Skúla fógeta framan við Viðeyjarstofu sem er svokölluð tilgátukúla. 

Rétt væri að kjósa Árna í Húsafriðunarnefnd svo að ekki komi til fleiri tilskildar misgátur hjá nefndinni.   

Hvort að láðst hafi að leita eftir samþykki ættingja Þorláks heitins.

Hvort að Þorlákur hafi haft verslunarleyfi til að reka sjoppuna á þessum stað.  

Og hvort leitað hafi verið eftir samþykki Vatikansins þar sem Þorlákur var tilgetinn kaþólikki í tilgátuhúsi. 

Þá hefur Húsafriðunarnefnd bent á að láðst hafi að leggja fram dánarvottorð Þorláks sem sanni að hann sé látinn.   

 


mbl.is Er Þorláksbúð sögufölsun?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk með of mikinn frítíma.

Alveg ágætt dæmi um firringu og upplausn Vesturlanda er fyrirbæri eins vísindakirkja og svo Vantrú.  

Þar hafa menn daginn fyrir sér við að níða niður Þjóðkirkju okkar Íslendinga.

Og greinilega ekkert háleitara eða þarfara að þumbast við.   

Vantrúarmenn hafa fullkomið leyfi til að trúa ekki á eitt eða neitt, frekar en þeim sjálfum sýnist. 

Og ættu kannski að láta gott heita, hver í sínu skinni.

En þeim skinnum einhverjum, líður á sálinni ver en svo.  

Er af göfugmennsku ætla ekki að unna sér hvíldar.  

Né líta glaðan fyrr en þeir hafa komið íslensku Þjóðkirkjunni fyrir ætternisstapann.

En munu þeir líta glaðir þann dag er það rættist?

Ég held ekki.

Þekki engan í Vantrú og veit ekki hversu vont fólk er þar á ferð. 

Kannski gott fólk sem af gæsku sinni vill ráða yfir hugsunum annarra og trú þeirra? 

Fólk sem af eðallyndi sínu og göfugmennsku vill fara í það hjálparstarf.

Að bjarga öðrum frá því að hugsa sér eitthvað fallegra. 

En um vonsku heimsins og heimsku mannanna. 

Eða kannski eru þau í Vantrú bara fólk með of mikinn frítíma. 

Sem hefur ekki heyrt af t. d. trúarlögreglunni í Saudi Arabíu er gengur um og lemur fólk.  

Það var a. m. k. ekki fallegt af þeim að ráðast á Guðfræðikennarann í Háskóla Íslands. 

Fyrir mér var það ekkert annað en nútímaútgáfa af galdrabrennu.  

Burt séð frá hvað þau eru í Vantrú, þá hefur ofstækisfólk alltaf fundið sér eitthvað til að ráðast á.

Á miðöldum gátu siðblindir ofstækismenn ekki komið kirkjunni um koll.

Hreiðruðu því um sig innan hennar og létu kollanna rúlla á sínum dýrðlegustu tímum.  

Þeir sem ekki voru réttrar trúar voru aðstoðaðir við að átta sig. 

Á að hugsa ekki eða trúa einhverju öðru en því sama og handhafar sannleikans í trúarlegum efnum.

Rannsóknarrétturinn rak á þessum tíma heilsurækt með öllum nýjustu tækjunum þá.

Og einmitt í tækjasalnum játuðu menn svo villu síns vegar.  

Frá hverri þeir voru svo frelsaðir frekar með hitameðferð, eldfærum, hrísi og olíu ef til var. 

Einn og einn lærdómsmaður var svo tekinn fyrir að bulla einhverja bölvaða vitleysuna um veraldlega hluti.

Eins og að jörðin væri ekki flöt miðja alheimsins sem ekki snérist neitt.  

Á síðustu öld ætluðu þýskir nazistar að rækta hið eina sanna og rétta trúleysi. 

Það voru gallaðir einstaklingar sem ekki létu sér nægja að trúa á hinn guðdómlega foringja.

Efstir á listanum voru þeir sem trúðu öðru en því sem rétthafarnir skipuðu.

Got mit uns var það látið heita svona fyrst um sinn eða á meðan það hentaði. 

En svo átti að hrista eða rista trúna úr höfðinu á mönnum.   

Þar átti að byrja á páfanum og kaþólikkum um leið og við væri komið.    

Eða strax og þeir væru búnir að sjóða niður fáeina gyðinga í viðbót.

Nýlega var hjálpræðismaður réttrar trúar, og hugsunar, lokaður inni í Noregi.

Sá reyndi að bjarga siðmenningunni með hreinsunaraðferðum ofstækismanna.   

Og nú eru ofstækismenn allra landa sem óðast að ná sér á strik.

Allt skal rífa niður og hreinsa burt. 

Og alveg sérstaklega það sem komið hefur mannkyninu í gegnum aldirnar. 

Byrja skal á trúnni af því að hún er jú sýndarveruleiki breyskra manna í jarðlífinu. 

Í því hreinsunarstarfi lætur unga fólkið stundum teyma sig fram fyrir skjöldu. 

Með hliðstæðum hætti og þegar það henti öllum gömlu gildunum í fjármálunum. 

Og tók stjórnina sjálft með nýju aðferðunum.

Reynsla og aðferðir forfeðranna var orðinn ferlega úrelt hjá liði sem kunni ekki einu sinni á tölvu.  

Með nýju aðferðunum þurfti unga fólkið ekki að mæta á réttum tíma, hvorki í skólann eða vinnuna. 

Styttist hreinlega í að ekki þyrfti að mæta neins staðar yfirleitt.   

Því síður að taka til hendinni eða leggja á sig píslir yfirleitt.  

Fráleitt að gera sitt besta, það var gersamlega aftan úr fornöld.  Til hvers eiginlega? 

En allir yrðu samt flottir, ríkir og fallegir, í endalausri velmegð og vellystingum.

Þarna var engin sýndarveruleiki á ferð.

Var það nokkuð?

Spennandi tímar framundan eins og alltaf.   


mbl.is Kirkjan kveikti í sínu fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðisferli að troða okkur í Evrópusambandið?

Allt er þetta leikrit Samfylkingarinnar til að fá fram stjórnarskrárbreytingu til að heimilt verði að ganga í Evrópusambandið. 

Um það og alls ekkert annað snýst þetta "...lýðræðisferli..."  hennar Jóhönnu. 

Í eigin störfum hefur Jóhanna rækilega sannað að hún hefur mestar mætur á einræði.


mbl.is „Er afskaplega stolt af þjóðinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á að gera við hann?

Erum við ekki nýbúnir að segjast hafa hann stærstan í Evrópu.

Að menn hafi fengið af sér að ljúga?

Og lengra nef? 


mbl.is Fékk verðlaun fyrir íslenskan reðurstækkara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband