Viljum við svona þjóðfélag?

Er það rétt leið að ég búi til myndband um nágrannann. 

Þar sem ég slít úr samhengi samræður okkar í garðinum. 

Og sendi svo myndbandið til vinnuveitanda hans og fjölmiðla, auk þess að birta það á netinu.

Af því að ég hef á tilfinningunni að hann hafi gert eitthvað af sér.

Er það þjóðfélagið sem við viljum búa í? 

mbl.is Ábyrg afstaða að slíta á milli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásta stendur í fæturna.

Það ber að virða það við Ástu Ragnheiði að hún lætur ekki ofsóknaróða kommúnista vaða yfir sig.

Hún lét heldur ekki ofsóknaróða Jóhönnu Sigurðardóttur stjórna sér í galdrafári Alþingis.

Þegar Steingrímur hlóð bálköstinn undir Geir Haarde hjá Miðaldadómi.

Afsakið það heitir víst Landsdómur en það réttarfar er nánast frá miðöldum.  

mbl.is Aðeins Alþingis að lýsa yfir vantrausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjargar Sandy Obama?

Hvað segiði um það sem fylgist vel með þessu?

Í svona neyð hefur starfandi forseti gríðarlegt forskot á mótframbjóðandann.

Að láta hendur standa myndarlega fram úr ermum.

Þarna syðst á austurströndinni er Flórída með sína 29 kjörmenn.

Flórida vann Obama síðast og var þar heldur sterkari áður en hann svaf af sér fyrstu sjónvarpskappræðurnar.

Þar er ennþá allt í járnum. Tapi Romney Florída er hann langt kominn að tapa kosningunum. 

Þó eru enn of mörg fylki þar sem Obama hefur yfirhöndina en stendur tæpt þar.   

Þar áður vann Bush Flórída tvisvar í röð (2000 og 2004) en hins vegar Clinton á undan honum (1996).

Flórida er stærsta fylgissveiflufylkið sem þau í BNA kalla "swing state".

Nokkuð norðar er Norður Karólina með sína 15 kjörmenn og þar stendur Romney tæpt.

Það er annars repóblikanafylki sem Obama vann tæpan sigur síðast og var þar sterkari áður en hann sofnaði í kappræðunum fyrstu.

Demókratar héldu landsfundinn sinn síðast í Norður Karólínu til að reyna að treysta sig betur í sessi í þessu íhaldssama fylki.

Þeir eru líklega búnir að taka þar núna en repúblikanir sofa þó ekki rótt yfir stöðunni þar.

Hann var sömuleiðis sterkari í Virginíu með 13 kjörmenn en þar er nú allt í járnum.

Virginia er vestan við New Jersey og Maryland en Repúblikanir unnu síðustu þrjár forsetakosningar en Clinton þar á undan.

Romney er sömuleiðis ekki vel staddur ef hann tapar í þessum fylkjum og hvað þá ef hann hefur ekki Florida.

Þar gæti Obama aldeilis slegið keilurnar og það yrði nokkuð reiðarslag fyrir Romney að tapa Virginíu.

Þar norðar koma trygg demókratafylki; Maryland (10), DC (3), Delaware (3), New Jersey (14), New York (29), Rhode Island (4), Connecticut (7), Massachusetts (11), Vermont (3), Maine (4).

Þar getur Obama samt sem áður unnið sér inn atkvæði á landsvísu með því að taka myndarlega á Sandy.

Auk þess getur Obama unnið New Hampshire (4) og að auki tryggt þann eina kjörmann sem er tæpur fyrir Maine.

Fyrir norðaustan New York er svo Pennsilvanía með 20 kjörmenn sem hefur verið demókratafylki.

Þar hefur Obama hins vegar staðið nokkuð tæpt en hefur hert sig þar undanfarið og fær nú frábært tækifæri til að landa þessu stóra fylki örygglega.

Nokkuð vestan við Pennsilvaníu er svo Michigan sem demókratar hafa unnið en ekki með yfirburðum.

Þetta er heimaríki Romney´s og pabbi hans var þar vinsæll ríkisstjóri. 

Þar er Obama sömuleiðs tæpur en hefur hert sig undanfarið enda bjargaði hann bílaiðnaðinum þar á kjörtímabilinu. 

Aðgerð sem Romney var á móti enda vill hann skera niður ríkisafskipti. 

Í Michigan og enn frekar í Ohio hafa republikanar djöflast sem mest þeir hafa mátt í kosningabaráttunni og auglýst mikið.  

Á milli Pennsilvaníu og Michigan og svo fylgisveiflufylkið Ohio með heila 18 kjörmenn.

Þar hafa menn kosið eins og í Flórída. Clinton, Bush, Bush, Obama.

Í Ohio var Obama ennþá sterkari fyrir fyrstu kappræðurnar en nú er þar allt í járum þrátt fyrir afrek Obama þar á kjörtímabilinu. 

Trúlegra er samt að Obama vinni þar út á batnandi efnahagmál í fylkinu.  

Nær vesturströndinni er Obama orðinn öruggur um kjörmennina 7 fyrir demókratafylkið Oregon en þar var hann tæpur um skeið. 

Hann er enn tæpur í demókratafylkjunum Nýja Mexikó (5) og Minnesota (10) en Romney er ekki að koma sterkur þar inn.

Hann hefur hins vegar náð yfirhöndinni í sveiflufylkinu Nevada (6) sem hann vann síðast en stendur nú þar tæpt.  

Romey hefur landað rebúblikanafylkinu Suður Karólínu (9) á austurströndinni en þar stóð hann áður tæpt.

Hann er sömuleiðis orðinn öruggur með Indiana sem Obama vann síðast en republikanar unnu í þrjú skipti þar áður

Romney er ennþá ekki öruggur með Arizona (11) nær vesturströndinni sem republikanar hafa unnið frá því að Clinton vann þar árið 1996.  

Romney hefur sömuleiðis landað örugglega miðríkinu Missouri (10) en það fylki hafa republikanar unnið frá að Clinton var þar 1996. 

Einu afrek Romney er að hafa náð Indiana (11) og Norður Karólínu (15) sem kusu Obama síðast en þar á undan tvisvar sinnum Bush og Clinton 1996.

Og að hafa tryggt sér fylgissveiflufylkið Missouri (10) sem rebublikanar hafa átt síðan að Clinton vann þar.  

Romney er meira að segja ennþá tæpur í Norður Karólínu eins og áður var rakið. 

Og ennþá tæpur í Arizona (11) sem republikanar hafa unnið frá því að Clinton vann þar 1996. 

Frambjóðandi repúblikana síðast John McCain var frá Arizona en samt tapaði Obama þar aðeins með 9% mun.  

Þar keppast demókratar því við að skrá nýja kjósendur á kjörskrá og ætla virkilega að reyna að ná fylkinu af Romney. 

Til að sigra í forsetakosningunum þarf 270 kjörmenn.

Obama telst vera með örygga 185 og 58 tæpa eða alls 243 kjörmenn.  Hann vantar því mögulega aðeins 27 kjörmenn. 

Romney telst vera með örugga 180 kjörmenn og 26 tæpa eða alls 206 kjörmenn. Hann vantar því mögulega 64 kjörmenn. 

Þau fylki sem þá eru enn eftir í pottinum eru sem sagt: 

Florida (29), Ohio (18), Virginia (13), Wisconsin (10), Colorado (9),  Iowa (6) og New Hampshire (4).

Obama vann í öllum þessum fylkjum síðast. 

Obama nægir því í viðbót að tryggja sér  eingöngu Florida fylki haldi hann því sem virðist vera komið hjá honum. 

Eða aðeins tvö fylki ef það eru;  Ohio og að auki eitt af fylkjunum Virginíu, Wisconsin eða Colorado. 

Eða þrjú fylki ef það eru Virgínía og Wisconsin og að auki hvert sem er af ríkjunum Colorado, Iowa eða New Hampshire. 

Eða að vinna fylkin fjögur Wisconsin, Colorado, Iowa og New Hampshire.

Í þessum dæmunum um tvö, þrjú eða fjögur ríki geta svo að sjálfsögðu verið ríki með fleiri kjörmenn í stað ríkis, í dæminu, með færri kjörmenn.  

Maður gæti haldið að Obama yrði að klúðra Sandy feitt til að tapa þessu.  

En óvissuþættirnir eru ennþá allt of margir til að vera viss um það.  

Varaforsetaefni Romney´s er frá Wisconsin og þeir eru líklega sterkari þar.

Romney á sumarhús í New Hampshire og vinsæll þar út af því. 

Colorado hefur verið íhaldssamt fylki og kosið republikana í 8 skipti af 9 í forsetastól áður en Obama vann þar síðast. 

Demókratar unnu þar öldungadeildarþingmann og fylkisstjóra á árinu 2010.

Virginía hefur verið íhaldssamt fylki en þar hefur íbúasamsetning verið að breytast.

Þar er mikið af opinberum starfsmönnum sem eru ekkert hrifnir af niðurskurðarhugmyndum Romney´s.

Eitt helsta afrek Obama var að bjarga efnahagsmálum Ohio í horn og trúlega vinnur hann fylkið út á það.

En það er líka þar sem repúblikanar hafa djöflast mest og eytt auðæfum í auglýsingar. 

Obama er líklega sterkari í Iowa en þar djöflast republikanar líka í kosningabaráttunni og auglýsa mikið. 

Vandamál Obama í Flórída eru óleyst vændræði af efnahagslegum toga og einnig fjölgandi hvítir ellilífeyrisþegar.

Og að koma þeldökkum spænskumælandi kjósendum á kjörstað, ungum Kúbönum á Suður Flórída og ungum kjósendum frá Puerto Rícó í miðju fylkinu.  

Gaman væri að heyra frá BNA í ykkur sem ekki eruð rafmagnslaus.

mbl.is Slóð eyðileggingar í Ameríku

mbl.is Meiriháttar neyðarástand í NY og NJ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starfsfólki veitingahúsa er ekki alltaf treystandi.

Á íslenskum veitingahúsum má sjá starfsfólk frá öllum heimshornum er starfar þar til lengri eða skemmri tíma.

Eins og í öllum öðrum starfsstéttum er þar misjafn sauður á ferð þó væntanlega séu allflestir sómafólk.

Óskastarf lyfjanauðgarans væri auðvitað að vinna sem barþjónn, ekki þó of lengi á hverjum stað.

Er líða tekur að lokum getur bruggað fórnarlambinu sín launráð og séð svo sjálfur um "heimfylgdina".

Draumavinur lyfjanauðgarans er barþjónn, hjá hverjum væri hægt að pantað sér "fórnarlamb" eins og af matseðli.

Það hefur verið mikið áhyggjuefni að margar nauðganir hafa átt sér stað á salernum veitingahúsa.

Skeytingarleysi sumra eigenda og starfsmanna er greinilegt.

Af hverju ætli það sé?

---------------------------

Þetta blogg er endurbirt þar sem ég hef nýlega fengið athugasemd hér á síðuna. 

Frá konu sem fékk svona einkenni þar sem hún sat á veitingahúsi með vinkonu sinni. 

Miðað við frásögn hennar var engum til að dreifa nema starfsmanni.

Er gat haft tækifæri til að setja eitthvað í glasið hennar. 

Vinkonan bjargaði konunni heim.

Verra ef þær hefðu orðið viðskila. 

mbl.is „Ég var bjargarlaus“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heldur leiðinlegar aðferðir.

Eyjan.is segist vera með myndband um þennan mann, sem hægt sé að skoða þar. 

Ég hafði ekki geð í mér til að skoða það.

Þeir sem telja sig vita um lögbrot eiga að tilkynna þau til réttra yfirvalda.

Þar er athugað hvort að málið eigi við rök að styðjast.

Sé svo er mælt fyrir um opinbera rannsókn lögreglu. 

Þar á eftir er skoðað af saksóknara hvort að rök séu til að gefa út ákæru.

Þar næst er málið rekið fyrir dómstólum.

Þegar dómur fellur um að viðkomandi sé sekur.

Þá fyrst er komin ástæða til að halda því fram opinberlega að viðkomandi hafi brotið refsilög.

Með þeim fyrirvara að málinu gæti verið áfrýað til Hæstaréttar sem gæti sýknað viðkomandi. 

Það er heldur ógeðfelt að aðrir en réttmæt yfirvöld dæmi menn og taki þá úr umferð í samfélaginu. 

Hér er ég ekki að tala um stjórnmálaumræðu. 

Þar eru brigsl um lögbrot orðin fastur liður sem að Hæstiréttur hefur sagt að sé hluti af lýðræðislegri umræðu. 

Þeir sem nú er helst brigslað um landráð og hvers konar svik eru einmitt þeir sem komu stjórnmálaumræðu á það stig.

Eða þau Steingrímur, Össur og Jóhanna Sigurðardóttir.

Með leyfi Hæstaréttar ætla ég því einu sinni enn að kalla þau landráðafólk, liðneskjur og liðhlaupa. 

En þannig leyfum við okkur ekki að tala um einkapersónur út í bæ.

Og ekki heldur um stjórnmálamenn sem ekki hafa tamið sér munnbrúk eins og þau ofangreind.  

Sem er að vísu um það bil það eina sem þau geta.

Afsakið ég gleymdi drulluhálistanum honum Birni Val sem er heldur ekki svo merkilegur pappír. 

Þessi sem kom systur sinni á götuna með þrjú börn.

Sá götustrákur hefur gefið öllum skotleyfi á sig og það úr báðum hlaupunum.  Um hann má segja allt. 

Þeim dela sigar Steingrímur og þau í Stalínæskunni á alla þá sem neita að baða sig með þeim í flórnum.  

Ruslaralýður úr rennusteininum. 

mbl.is Óskar eftir leyfi vegna umfjöllunar DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er refsing hins fátæka.

Þeir sem hljóta dauðadóm, t. d. í Texas fylki í BNA.

Eru fyrst og fremst þeir sem ekki hafa efni á lögmannsaðstoð á eigin vegum.

Þeim er úthlutað réttargæslu á vegum hins opinbera.

Þar eru gjarnan á ferðinni lögmenn eins og sá sem sofnaði.

Í réttarhaldinu í einu dauðadómsmálinu.

Andstyggilegt þjóðfélag.

mbl.is Dauðadóm snúið eftir 34 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farnist þeim vel.

Vonandi að stelpurófan komi sér upp sæmilegu eldhúsi.

Svo að hún geti áfram sýnt okkar hvað við eigum að borða.

Ef við viljum halda okkur svona ungum og sætum.

mbl.is Rikka kemur sér fyrir á nýju heimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með nýjar vélar en viðhaldið áfram í Litháen?

Það er gleðiefni að Íslendingar séu ekki svo illa komnir að þurfa að ferðast með tvítugum farþegaþotum.

Það því full ástæða til að óska WOW air til hamingju sem nánast nýja flugvél. 

Sem farið hafa hrakfarir á milli gjaldþrota flugfélaga víða um heim.

En hitt er furðulegra af hverju skráningin og viðhaldið er í landi eins og Litháen. 

Það er bara ekki traustvekjandi að mínu mati.

Því miður.  

mbl.is WOW yngir upp flotann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starfsfólki veitingastaða er ekki öllu treystandi.

Á íslenskum veitingahúsum má sjá starfsfólk frá öllum heimshornum er starfar þar til lengri eða skemmri tíma.  

Eins og í öllum öðrum starfsstéttum er þar misjafn sauður á ferð þó væntanlega séu allflestir sómafólk.

Óskastarf lyfjanauðgarans væri auðvitað að vinna sem barþjónn, ekki þó of lengi á hverjum stað. 

Er líða tekur að lokum getur bruggað fórnarlambinu sín launráð og séð svo sjálfur um "heimfylgdina".  

Draumavinur lyfjanauðgarans er barþjónn, hjá hverjum væri hægt að pantað sér "fórnarlamb" eins og af matseðli.

Það hefur verið mikið áhyggjuefni að margar nauðganir hafa átt sér stað á salernum veitingahúsa.

Skeytingarleysi sumra eigenda og starfsmanna er greinilegt. 

Af hverju ætli það sé?  

mbl.is „Ertu að sjá hvað er í glasinu?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband