10.2.2009 | 18:15
Sagði þingmennsku eins að vera á kassa í stórmarkaði. Lýsir hvernig er komið fyrir þingræðinu.
Þarna kemur greind og glæsileg kona úr atvinnulífinu. Kona sem hefur náð árangri í sínum störfum. Og hún nennir ekki að sóa tíma sínum í setu á Alþingi.
Afbragðsfólkið er í miklum minnihluta á Alþingi. Það fólk sækist ekki eftir þingsetu og hættir jafnvel fljótlega þegar það kynnist vinnubrögðunum.
Ekkert lát er hins vegar á framboði fólks sem hvorki hefur menntun, reynslu eða vitsmuni til þingsetu.
Alþingi er í reynd orðið verndaður vinnustaður sem væri svo sem í lagi ef þjóðarhagur lægi ekki við.
Guðfinna ekki í kjöri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.