20.6.2013 | 14:07
Jóhanna var á þessum Benz löngu fyrir stjórnarskipti.
Ég sá frú Jóhönnu á þessum Benz í Hörpunni þann 3. febrúar s. l.
Þá kom hún í Hörpuna til heiðurs Vilborgu Örnu Gissurardóttur, suðurpólsfara.
Það var svo athyglisvert að forsætisráðherra sem á sinni tíð var með þjóðina í röð eftir mat skyldi skella sér á nýjan ráðherrabíl.
Að ég tók mynd af bílnum og númerinu á honum.
Á síðasta kjörtímabili komu löng tímabil þar sem frú Jóhanna þorði vart út úr húsi.
Þá fóru þau í ríkisstjórninni að hugleiða kaup á "skot- og sprengjuheldum" ráðherrabílum og birtust fréttir um það í fjölmiðlum.
Með öryggisgleri hét það í útboðinu.
Til að þurrka fingraför sín af þeim bílakaupum kom frú Jóhanna svo bílamálum stjórnarráðsins á aðrar stofnanir ríkisins.
Rekstrarfélag stjórnarráðsbygginga var látið taka bílamálin yfir þannig að ekki væri hægt að sjá bílakostnaðinn á fjárlögum.
Innkaupastofnun ríkisins sá um útboð á ráðherrabílum fyrir Jóhönnu þegar fólkið stóð í röð eftir mat og seinna matarmiðum.
Það er því ekki rétt að Jóhanna hafi aðeins verið á þessari bifreið í kringum stjórnarskiptin, hrein fölsun bara.
Eru opinberir embættismenn að ljúga að okkur íslensku þjóðinni?
Einhvers staðar eru menn reknir fyrir slíkt.
En það er hjá siðuðum þjóðum.
------------
Þann 7. maí 2012 bloggaði ég um pöntun ríkisstjórnarinnar á sjö nýjum ráðherrabílum með öryggisgleri, sjá hér:
http://viggojorgens.blog.is/blog/viggojorgens/entry/1238849/
------------
9. 12. 2011 bloggaði ég að strætókort væru meira í stíl við raunveruleikann, sjá hér:
http://viggojorgens.blog.is/blog/viggojorgens/entry/1210469/
------------
og þar áður þann 5. 10. 2011:
http://viggojorgens.blog.is/blog/viggojorgens/entry/1102834/
------------
Svo skilur samfylkingarforystan ekkert í fylgishruninu.
Ráðuneytið pantaði ekki nýjan bíl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.6.2013 kl. 18:11 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.