Vík burt Satan. Kínverjar ættu að laga mengunarmálin heima hjá sér fyrst.

Ef Össuri Skarphéðinssyni lýst vel á eitthvað fyrir hönd okkar Íslendinga er voðinn vís. 

Við kærum okkur ekkert um erlenda auðkýfinga hingað til lands.

Höfum fengið okkur fullsödd af hjálpræði íslenskra fjármálasnillinga. 

Hvað þá að okkur vanti hingað útlendinga sem hafa auðgast á þrælahaldi og skefjalausri mengun jarðar. 

Til Kína sést ekki lengur utan úr geimnum fyrir mengun. 

Mannréttindi vinnandi fólks þar eru í skítnum. 

Þeim er ekki einu sinni treystandi til að framleiða óeitraða mjólk fyrir ungabörn, hvað þá meir. 

Kínverjar eru orðnir hættulegasta plágan á vesturlöndum.   

Verða búnir að gleypa okkur áður en við er litið ef við gætum okkar ekki á þeim.

Íslenskt þjóðfélag vantar nú minni stéttaskiptingu. 

Ekki meiri og það í boði vinstri stjórnar.

Kínverjar gjöri svo vel að sinna náttúruvernd heima hjá sér.  

Ekki veitir þeim af.  

Ja svei svei. 


mbl.is Funduðu um fjárfestingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband