Of margir komnir í dópið hérlendis.

Réttast væri að vona að þetta sé alveg einstakt tilvik en við hverju er að búast?

Það líður ekki öllum vel á sálinni í þjóðfélaginu okkar.

Hérlendis er opið heimboð til erlendra glæpamanna til að markaðssetja og selja unga fólkinu eiturefni. 

Þetta hefur verið að undirlagi íslenskra stjórnmálamanna sem létu landið verða aðila að Schengen. 

Hér hafa leynst axarmorðingjar og hvers konar óþjóðalýður frá Schengen löndum. 

Erlendur maður var fyrir nokkrum árum tekinn fyrir stórkostlegt smygl á eiturlyfjum.

Eftir fangelsisvist var hann rekinn úr landi fyrir fullt og allt.

Hann var samt kominn hingað til landsins eftir fáeina mánuði og er ábyggilega hérna ennþá. 

Til margra ára hefur það verið þannig hérna sunnanlands. 

Að þeir sem þurfa að skilja eftir bíla utan alfaraleiða, t. d. vegna bilunar yfir nótt. 

Þurfa ekki að búast við að koma að bílnum í heilu lagi, þegar þeir hyggjast sækja hann. 

Þá er vísast búið að stela hljómflutningstækjum og undan honum bæði dekkjum og felgum.  

Eða jafnvel bílnum í heilu lagi og byrjað að brytja hann niður í varahluti af gestunum frá Schengen. 

Þeir sem skilja bíla eftir til lengri tíma utan alfaraleiða mega svo búast við eyðileggingu þeirra.

Í malargryfjum eða á sambærilegum stöðum voru vinnuvélar einatt skotnar af byssumönnum. 

Sjálfsagt þykir að brjóta ljós og rúður í öllum gömlum bílum og tækjum. 

Auk þess er öllu er stolið steini léttara meira að segja á vöktuðum geymslusvæðum.

Það nýjasta er að gestirnir frá Schengen stela öllum hvarfakútum, hvar sem til þeirra næst.

Í þeim er dýr málmur sem hægt er selja til endurvinnslu. 

Þessir sem skemmdu bíl grunnskólakennarans hafa hins vegar væntanlega verið íslenskir dópistar.

Og mögulega fundist upplagt að ná sér niðri á þeim sem ætti svona nýlegan og vandaðan bíl.

Kannski haldið að þetta væri bíll ráðherra eða alþingismanns.  

Þá færi maður kannski að skilja þetta.

Að sjálfsögðu óþolandi þróun og algerlega ólíðandi. 

En hér hefur löggæslan verið skorin niður við trog.

Úti á landi hefur lögreglan ekki efni á eftirlitsferðum lengur.  Má þakka fyrir að komast í neyðarútköll. 

Þökk sem alþingismönnum og ríkisstjórn.

Þegar búið er að greiða eðlilegan kostnað við utanríkisþjónustuna s. s. rekstur sendiráða.

Fara árlega yfir sex þúsund miljónir í utanríkismál sem Össur er hreinlega að leika sér með.

Þar vantar ekki peninganna enda er Össur búinn að heimsækja allar heimsálfur oft nema helst  Suðurskautslandið. 

Og svo var Jóhanna að panta nýja ráðherrabíla með öryggisgleri. 

Ekki vantar peninganna þar.  

Þetta eru ekki fífl nema það sjáist á einhverju.

Árið 2004 sagði Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður, í Viðskiptablaðinu, um áform um að kaupa nýja ráðherrabíla:

"...Hvarflar að ráðherrunum að hægt sé að spara á þessum útgjaldalið skattborgaranna á sama tíma og lögð er til lokun á bráðadeild Landspítalans, neyðarmóttöku í nauðgunarmálum eða að loka endurhæfingardeild fyrir 32 fjölfatlaða einstaklinga í Kópavogi?..."

Ef þetta er sama Jóhanna og nú pantar sér nýja ráðherrabíla.

Þá er hún gengin af því litla viti sem kannski var. Eða siðblind eftir allt saman.

Hér má sjá hlekk á Ríkiskaup þar sem fram kemur að búið er að semja við sjö bílaumboð um kaup á ráðherrabílum:

http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/15130

Eins og venjulega er ríkisstjórnin í feluleik við okkur fólkið í landinu.

Við megum ekki vita neitt um bílasamninginn.

Og til að auka á feluleikinn er kaupandinn Rekstrarfélag um stjórnarráðsbyggingar.

Þar verður kannski hægt að fela bifreiðakostnaðinn inni í einhverjum vaxtakostnaðarlið.

Allt uppi á borðum í opinni stjórnsýslu lofaði Jóhanna, þegar hún settist í stjórnarráðið, og dró gardínurnar niður.


mbl.is Rústuðu bíl grunnskólakennara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin ætlar að selja það til Kínverja.

Ágangur kínverskra stjórnvalda í að kaupa hér landið í heildsölu er ekki út af engu.

Nú nýlega var kínverski forsætisráðherrann hér á landi til að ýta á eftir landakaupum kínverska ríkisins.

Útsendari Kína, dulbúinn sem auðmaður, vill ólmur kaupa hér eitt prósent af landinu í heildsölu.

Með ljóðalestri og fögrum loforðum er hann búinn að ljúga sig inn á þá kjána í Samfylkingunni. 

Sem trúa öllu sem sagt er við þá á útlensku.

Kínverjar eru búnir að kaupa upp auðlindir í Afríku í stórkostlegum mæli.

Og líta á okkur með sama hætti og Afríkubúa.

Að við eigum engra annarra kosta völ en að selja undan okkur landið og auðlindir þess.

Verði kínverskum útsendurum selt hér landið í heildsölu er það rétt aðeins byrjunin.

Það yrði stærra slys en heimildirnar til að selja fiskveiðikvótann til einkaaðila. 

Rof á þjóðfélagssáttmálanum og rétt að byrja smíðina á fallöxinni eins og í París forðum.  

 


mbl.is Ísland ríkast allra landa að ferskvatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja afnema frelsi einstaklingsins.

Nú vilja ungir sjálfstæðismenn styðja við ríkisforræði yfir námsmönnum.

Hvað kemur ungum sjálfstæðismönnum það við hvort að menn stunda nám sitt af kostgæfni eða ekki?

Einhverjir eru að skoða sig um eftir stúdentspróf og skrá sig í nám sem þeim hentar svo ekki. 

Hvað kemur ungum sjálfstæðismönnum það við?  

Vilja þeir kannski að ríkið ákveði í hvaða nám menn eiga að fara eins og í alræðisríki?  

Sumir eru í háskólanámi til þess að endurmennta sig án þess að ætla að ljúka prófi í viðkomandi grein.

Ef einhverjir borga innritunargjöldin og mæta svo ekki til náms er það gott fyrir Háskólann að fá innritunargjöldin.

Í deildum þar sem fyrirlestrar eru í stórum sölum, skiptir Háskólann það engu hvort einhverjir mæta ekki. 

Fyrir suma er það heilmikil hindrun að eiga að greiða kr. 60.000. í innritunargjöld. 

Ungir sjálfstæðismenn ættu að varast að ganga lengra á þeirri braut. 

Íslendingar eiga áfram að vera fjálsir að því að mennta sig í skóla. 

Það á ekki að gera að forréttindum þeirra efnuðu. 

Með því að hindra fólk í að ákveða örlög sín sjálft eru menn að vega að frelsi einstaklingsins. 

Svo ömurlegt hlutskipti eiga undir sjálfsstæðismenn ekki að velja sér.  

Fyrir neðan þeirra virðingu. 

Ungir sjálfsstæðismenn ættu að finna sér önnur baráttumál en að éta upp það andstyggislegasta frá Bandaríkjunum. 

Ef það er boðskapurinn í reynd að leggja eigi niður Háskóla Íslands til að hlúa að einkaskólum.

Árleg skólagjöld, í grunnnámi, eru kr. 348.000. í  Háskólanum í Reykjavík en kr. 696.000. í meistaranámi.

Hjón sem áttu þrjú börn með tveggja ára millibili. 

Þurfa því að greiða kr. 7.308.000. í skólagjöld á níu ára tímabili. 

Til að koma börnum sínum í gegnum grunnnám og meistaranám við Háskólann í Reykjavík.

Meiri hluta Íslendinga hugnast varla þessi framtíðarsýn, verði Háskólinn Íslands aflagður.  

 

 

 

 

 


mbl.is Vilja auka kostnaðarþátttöku háskólanema
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ríkisstjórnin pantar nýja lúxus ráðherrabíla.

Tugir þúsunda í stórkostlegum vandræðum og einhverjir komnir fram á brúnina eru fréttirnar úr þjóðfélaginu.

Af ríkisstjórninni er það hins vegar að frétta að hún hefur pantað sér nýja ráðherrabíla.

Með öryggisgleri svo að þessir svöngu geti ekki ráðist inn í bílanna.

Næst þegar þeir hafa þrótt til að mótmæla á Austurvelli.

Svínin í Dýrabæ seldu hestinn til slátrunar.

Svínin í vinstri velferðarstjórninni níðast á bágstöddum. 

Og panta sér nýja lúxus bíla.

Sér einhver muninn?

Árið 2004 sagði Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður í Viðskiptablaðinu um áform um að kaupa nýja ráðherrabíla:

"...Hvarflar að ráðherrunum að hægt sé að spara á þessum útgjaldalið skattborgaranna á sama tíma og lögð er til lokun á bráðadeild Landspítalans, neyðarmóttöku í nauðgunarmálum eða að loka endurhæfingardeild fyrir 32 fjölfatlaða einstaklinga í Kópavogi?..."

Ef þetta er sama Jóhanna og nú pantar sér nýja ráðherrabíla.

Þá er hún gengin af því litla viti sem var.  

Eða siðblind eftir allt saman.  

Hér má sjá hlekk á Ríkiskaup þar sem fram kemur að búið er að semja við sjö bílaumboð um kaup á ráðherrabílum:  

http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/15130

Eins og venjulega er ríkisstjórnin í feluleik við okkur fólkið í landinu.

Við megum ekki vita neitt um samninginn.

Og til að auka á feluleikinn er kaupandinn Rekstrarfélag um stjórnarráðsbyggingar.  

Þar verður kannski hægt að fela bifreiðakostnaðinn inni í einhverjum vaxtakostnaðarliðnum.

Allt uppi á borðum í opinni stjórnsýslu lofaði Jóhanna þegar hún settist í stjórnarráðið og dró gardínurnar niður.


mbl.is „Fólk er komið á brúnina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hver eitraði fyrir Össuri, Jóhönnu og Steingrími ?

Eins og þessi ríkisstjórn hefur staðið sig. 

Er engu líkara en að einhver hafi eitrað fyrir þeim Össuri, Jóhönnu og Steingrími.

Getur það virkilega verið að þau hafi fæðst svona?

Lenín var augljóslega drepinn með eitri. 

53 ára maður við góða heilsu, hvorki með of háan blóðþrýsting eða sykursýki, deyr ekki svona. 

Nú fer maður að óttast að ESB hafi eitrað fyrir Össuri og Jóhönnu. 

AGS fyrir Steingrími.

Og nú síðast Kínverjar yfir Oddnýu og Katrínu Júlíusdóttur.

Það er ekki eðlilegt hvernig allt þetta fólk vill svíkja þjóð sína og landið sitt.

Svo hefur einhver sett róandi eða slakandi út í grautinn á Bessastöðum.

Hefur einhver orðið var við forsetaframbjóðandann þar?  


mbl.is Eitraði Stalín fyrir Lenín?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Egill er öndvegismaður.

Sr. Egill Hallgrímsson er gamall vinnufélagi minn.

Og er mér ljúft að staðfesta að þar fer einstakur öndvegismaður. 

Ekki hvarflar að mér að eitthvað sé athugavert við störf Egils þó að hann sé ekki bókhaldsmaður.

Enda segir hann að bókhaldið fari til fagaðila. 


mbl.is „Ámælisverður klaufaskapur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þægilegra að skoða bara vörulistann.

Bauhaus er með staðlaða alþjóðlega heimasíðu.

Vörulistinn er ekki kominn á þá íslensku.

En hérna er sá danski: (Fljótlegra að skoða þann stóra en að hlaða niður PDF.)

http://www.bauhaus.dk/aktuel-avis/produktkatalog/index.html


mbl.is Allt fullt hjá Bauhaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Huang virðir ekki íslensk lög og sendir stjórnvöldum tóninn.

Reynsla Svía af kínverskum landakaupamönnum eins og Huang Nubo er slæm.

Þeir fóru ekki eftir neinum lögum eða reglum í Svíþjóð.

Þessi Huang Nubo er þar enginn eftirbátur.

Hann er allur af vilja gerður til að brjóta íslensk lög eða fara í kringum þau.

Það sama á við um virðingu fyrir réttum íslenskum yfirvöldum.

Í gegnum fjölmiðla í Kína sendir hann innanrískisráðherra Íslands tóninn. 

Allt er þetta forsmekkurinn um það sem koma skyldi.

Kínverskt yfirvöld ætla að vaða yfir okkur Íslendinga.

Íslensk lög kom þeim ekkert við.

Íslensk stjórnvöld skal vanvirða þegar það hentar.

Lögin um sölu og afnotarétt fasteigna gilda jafnt um sölu sem um leigu til lengri tíma en þriggja ára. 

Hvernig telur þessi Nubo að hann geti leigt til níutíu og níu ára, þegar hámarkið er þrjú ár?

Þessi Nubo ætti að fá lífverði næst þegar hann kemur til Íslands.

Ekkert síður en þau Jóhanna og Steingrímur.

En vonandi kemur hann ekkert aftur.

Og ekki heldur aðrir landakaupamenn kínverskra stjórnvalda, dulbúnir sem auðmenn. 

Kína er glæparíki með sömu stjórnvöldum og árið 1989.

Keyrði yfir sína eigin námsmenn á skriðdrekum, þar sem þeir sváfu í tjöldum sínum. 

Á Torgi hins himneska friðar í höfuðborginni Peking.

Það má ekki gleymast. 


mbl.is Huang fagni ekki of snemma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi ekki til að bjarga krónubréfaeigendum.

Þeir alþjóðlegu fjármálabraskarar sem notuðu krónuna sem leiktæki fyrir hrun.

Til að hagnast á því að spila með íslenskt efnahagskerfi og íslenskan almenning.

Og til að fá þá allt of háu vexti sem hægt var að fá hérlendis. 

Þeir eru margir fastir með krónurnar sínar út af gjaldeyrishöftum. 

Þeir eru mjög uggandi um að fá krónunum sínum skipt fyrir erlendan gjaldeyri sem fyrst.

Áður en krónan hrynur meira. 

Og þá myndi hún hrynja rækilega í kjölfarið.

En þeim herrum gæti nú ekki verið meira sama um það.

Eða íslenskan almenning.

Eitthvað af þessum krónubréfum er mögulega hætt að bera vexti. 

Og þá er það spurningin. 

Er íslenska vinstri stjórnin að bjóða þessi skuldabréf, og lofa 6% ávöxtun.

Og bjarga þessum krónubröskurum úr vandræðunum. 

Á kostnað íslensks almennings?

Eins og að þessir krónubraskarar séu á framfæri íslensku þjóðarinnar.

Eða að hún eigi að ábyrgjast brask þeirra ?

Í þakklætisskyni fyrir að koma okkur á hausinn? 

   


mbl.is Skuldabréf fyrir 124 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Títanic sökk af mörgum samverkandi ástæðum.

Helstu mögulegar ástæður þess að Titanic sigldi á borgarísjaka og fórst:  

*Bógur skipsins var settur saman með lélegri járnhnoðum en venjulega voru notuð. 

*Járn og stál á þessum árum hafði allt of lélegt kuldaþol.

*Eldur hafði logað í kolageymslu þar sem stærsta rifan kom á skipið.

*Tvöfaldur botn var í Titanic en ekki tvöfaldar hliðar eins og þá var byrjað að smíða í skip.

*Menn í útsýnisturni skipsins höfðu ekki sjónauka eins og þeir voru vanir. 

*Útgerðarmaðurinn stjórnaði hraða skipsins en ekki skipstjórinn. Honum lá mjög á til New York.

*Útgerðarmaðurinn taldi enga ástæðu til að minnka hraða skipsins þrátt fyrir fréttir af ís á siglingaleiðinni.

*Skipstjórinn lét það yfir sig ganga að minnka ekki hraðann þrátt fyrir nokkrar áhyggjur af ís. 

*Engir ljóskastarar voru á farþegaskipum þeirra tíma, nema þeim sem fóru um skipaskurði.

*Það var hlýjast vorið, í 30 ár, það sem borgarísjakarnir komu og þeir voru óvenju sunnanlega.

*Áhafnasamstarf var afar lélegt: Undirmenn áttu ekki að tjá sig um öryggismál varðandi siglingu skipsins.

*Veðurskilyrði voru algerlega einstök, ládauður sjór, logn, ekkert tunglsljós.  Afar erfitt að greina ísjaka.

*Sumir úr áhöfninni töldu að borgarísjakinn, hafi á hliðinni sem snéri að skipinu, innhaldið mikið af leir og sandi. 

*Hugsanlega voru hillingar við sjóndeildarhringinn sem trufluðu sýnina framundan.

*Óvíst er að skipstjórinn hafi fengið öll þau skeyti um ís sem skipinu bárust.

*Loftskeytamennirnir lögðu meiri áherslu á farþegaskeyti en að taka á móti fréttum um ís.

*Stýri skipsins var allt of lítið miðað við stærð þess.

*Rangar aðferðir tíðkuðust við neyðarbeygjur.  Drepið var á öllum vélum þannig að virkni stýrisins minnkaði.

*Skipið hefði líklega þolað að sigla beint á ísjakann sem hefði þá verið betra en að beygja.

*Hefðu hin vatnsþéttu skilrúm skipsins náð hærra upp, hefði skipið náð að halda sér lengur á floti.

*Í nokkra stund var skipinu siglt á hálfri ferð eftir áreksturinn, sem fyllti það fyrr af sjó.

*Aldrei var slegið af hraðanum, nema í þoku, á þessum stærstu farþegaskipum þessarra ára.

Hér er fyrri samantekt mín um Titanic; viðbætur og athugasemdir eru afar vel þegar.  

http://viggojorgens.blog.is/admin/blog/?entry_id=1234973
mbl.is Nútímaútgáfa af Titanic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband