Lúðvík er sá eini sem getur tekið við Samfylkingunni.

Og stjórnað henni af einhverju skynsamlegu viti.

Hann hefur reynsluna af verkstjórninni. 

Og er alinn upp við skráargat stjórnmálanna. 

Faðir hans Geir Gunnarsson alþingismaður var einn besti maður vinstri stjórnmálanna á sinni tíð.  

Nú segir auðvitað einhver að kratarnir hafi sett Hafnarfjarðabæ á hliðina. 

Og að á valdastóli myndi Lúðvík setja landið á hausinn.  

En það myndu þá allir kratar gera hvort sem væri.

Enginn munur þar.  

En úrvalsmaður Lúðvík Geirsson. 


mbl.is Lúðvík meltir tíðindin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei í Guðs bænum ekki.

Farðu nú ekki að njóta lífsins með Jónínu, börnunum og barnabörnunum.

Við þurfum á þér að halda. 

Til að ljúka við að jarða þessi landráðasamtök sem heitir Samfylkingin og vill svíkja landið í hendur nýlenduherra í ESB. 

En ef þú hættir nú samt. Taktu þá Steingrím og Össur með þér. 

Þeir eru orðnir svo steiktir að þeir halda að þeir geti gert eitthvert gagn.    

Ofan í þetta gamla.    


mbl.is Jóhanna ætlar að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna er alþjóðaauðvaldinu rétt lýst. Bölvaðir aumingjar.

Það er eins og þessir menn séu að byrja í hinum sveiflukennda áliðnaði.

Græddu fjögur þúsund miljónir á síðasta ári og hafa grætt alveg gífurlega á undanförnum árum og áratugum. 

En hafandi hlaupið úr landi með fjögur þúsund miljónirnar sem þeir græddu í fyrra. 

Auðvitað vælandi yfir einhverjum skattgreiðslum. 

Á þessu ári skal svo grenjað í alvöru út af smá mínus sem er áttundi hluti af gróða síðasta árs.

Tapið draga þeir svo frá sköttum þegar þeir stórgræða næst. 

Og nú skal notað tækifærið og sparka duglega í starfsfólkið sem færði þeim gróðann í fyrra.

Og okkur landsmenn sem útvegum þeim rafmagnið á kostnaðarverði ef við borgum þá bara ekki með því?  

Segi það einu sinni enn: Íslendingar eiga sjálfir að eiga öll álverin. 

Og á eftir að segja það oftar.   

Eigendur álveranna hafa sogið úr okkur blóðið og skera nú niður starfsfólkið við trog.    

Svona fréttir, í sláturtíðinni, geta barasta breytt manni í kommúnista.

Þjóðnýtið álverin !!!!

Áfram Steingrímur !!!

Kjósum VG !!!!

Það er þá þokkalegt helvíti að verða.  


mbl.is 13 sagt upp í Straumsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér vantar okkur meiri upplýsingar.

Átti að finna allan sannleikann í málinu eða átti að rannsaka saknæmt athæfi einstakra manna? 

Vildi embættisdómarinn einungis rannsaka það sem hægt væri að sanna með fullnægjandi hætti?

Og vildu hagfræðingarnir ganga lengra en það? 

Hver var hugsunin með þessari nefnd?

Að kasta ryki í augu almennings?  

Þarf ekki að skipa nýja nefnd? 

 


mbl.is Lét af formennsku vegna ósættis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nazistasleikja og lygari.

Flest sem Sven Hazel sagði um sjálfan sig var haugalygi.

Enda treysti hann sér ekki til að búa í Danmörku eftir stríðið.

Honum tókst að safna saman hermannasögum og setja á blað.

Sem ráðgjafi forlags hans setti svo saman í bók sem sló í gegn.

Þar var komin uppskrift að bókum sem höfundurinn og kona hans notuðu upp frá því.

Hér má sjá það helsta um Sven Hazel á danska wikipedia:

http://da.wikipedia.org/wiki/Sven_Hazel 


mbl.is Sven Hazel er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látiði nú manninn í friði.

Baldur Guðlaugsson þekki ég ekki neitt.

Refsimál Baldurs snerist eingöngu um hans eigin peninga en ekki annarra.    

Opinberlega hefur komið fram í fréttum og á heimasíðum dómstólanna.

Að á sínum tíma hafði hann talið sig hafa lagaheimild til að selja hlutabréfin sín í Landsbankanum. 

Því mati voru dómstólar landsins ekki sammála og dæmdu Baldur til refsingar.

Nú er hann að ljúka við að gera upp refsingu sína við þjóðfélagið. 

Og þá er kominn tími til að láta manninn, og hans fjölskyldu, í friði. 

Það er hins vegar dæmigert fyrir skelfingarástandið á fréttastofum Ríkisútvarpsins. 

Að þar djöflist menn á meintum sjálfstæðismönnum.  

Í stað þess að fjalla um mál þeirra fjölmörgu skjólstæðinga ríkisstjórnarinnar.

Sem ekki hafa gert upp nein mál við neinn. 

Og ætla ekki.   

 
mbl.is Baldur gerir athugasemdir við Kastljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að verðlauna trassaskap?

Stjórnmálamenn hafa látið trassa að endurnýja tækin í heilbrigðiskerfinu. 

Þannig hefur verið "sparað" í rekstrinum. 

Og forstjórinn fær verðlaun fyrir trassaskapinn. 

Hér hefur öllu verið snúið á haus.   

En ekkert þarf að spara á þeim sviðum sem snúa að stjórnmálamönnunum sjálfum. 

Hvar eru t. d. nýju skotheldu ráðherrabílarnir sem búið er að bjóða út?

Fjölmiðlamenn ættu að komast að því. 


mbl.is Segja launahækkun forkastanlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En að vigta farþeganna?

Með sömu rökum ættu farmiðarnir einnig að taka mið af þyngd farþeganna. 

Af hverju á fyrirsæta sem vegur 55 kílógrömm að borga sama verð og 140 kílógramma vaxtaræktarmaður?

Eldsneytiseyðsla flugvélarinnar er í beinu sambandi við þyngdina. 

Fyrir eldsneytisþáttinn í farmiðaverðinu ætti fyrirsætan að greiða 40% af verði  vaxtarræktarmannsins. 

Ævilangt hefur fyrirsætan nánast dregið fram lífið á eigin munnvatni og varla fengið ætan bita.

En vaxtaræktarmaðurinn raðað ofan í sig hverri stórsteikinni á eftir annarri. 

Og ef þau eru ekki gift.

Af hverju á hún svo að niðurgreiða fyrir hann flugmiðanna?

 

 


mbl.is Taka gjald fyrir allan farangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við slíku liggur dauðarefsing í Oklahoma fylki.

Þessi ógæfusami piltur getur átt  von á dauðarefsingu.

Oklahoma fylki í Bandaríkjunum hefur líflátið dauðadæmdan morðingja sem var 16 ára unglingur er hann framdi glæpinn. 

Og var síðasta fylkið til að lífláta einstakling er var unglingur er hann framdi glæp sinn.  ( 17 ára. )  

Árið 2005 bannaði Hæstiréttur Bandaríkjanna að lífláta þá sem voru unglingar, yngri en 18 ára, þegar þeir frömdu glæpinn.  

Oklahoma fylki í er svokölluðu biblíubelti og er með flestar framkvæmdar dauðarefsingar í BNA miðað við fólksfjölda.  

Næst á eftir Texas og Virginíu í fjölda framkvæmdra dauðarefsinga alls.  

Pilturinn er orðinn 19 ára og þau í Oklahoma líta ekkert til ungs aldurs hins meinta morðingja.

Verði hann sakfelldur getur hann átt von á dauðadómi nema hann sé vangefinn.  (Mentally retarded. )

Samkvæmt lögum Oklahoma er refsing fyrir morð af fyrstu gráðu; líflát, lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn eða lífstíðarfangelsi.

701.9 - Punishment for First Degree Murder - ...

A person who is convicted of or pleads guilty or nolo contendere to murder in the first degree shall be punished by death, by imprisonment for life without parole or by imprisonment for life..."

Til að dauðarefsing komi til greina þarf morðið að vera undir refsiherðandi kringumstæðum. 

T. d. að hinn ákærði sé meðvitaður um að hann sé að stofna lífi fleiri en eins manns í stórkostlega hættu.  

"§21-701.12. ... Aggravating circumstances shall be:

... 2. The defendant knowingly created a great risk of death to more than one person;..."

Vitni sögðu hinn meinta morðingja hafa rifist við báða hina látnu. 

Ef mildandi ástæður eru kemur dauðarefsing ekki til greina. 

"§21 701.11. Instructions Jury findings of aggravating circumstance.

... Unless at least one of the statutory aggravating circumstances enumerated in this act is so found or if it is found that any such aggravating circumstance is outweighed by the finding of one or more mitigating circumstances, the death penalty shall not be imposed.... 

Frá árinu 1976 hafa tólf konur verið líflátnar í BNA þar af 3 í Oklahoma.  

Síðasta aftaka í Oklahoma var núna í ágúst og var hún sú fjórða á árinu 2012.  

Í Oklahoma eru dauðarefsingar framkvæmdar með banvænni sprautu. 

Komist dómstólar að þeirri niðurstöðu að það sé ólögleg aðferð hefur fylkið sett undir þann leka.

Rafmagnsstólinn skal nota ef dauðarefsing með sprautu verður bönnuð.

Dauði af völdum byssukúlna frá skotsveit er aðferðin sem skal nota ef sprautan og rafmagnsstólinn verða bönnuð.

Því miður ekki að sjá að refsilögin þarna hafi aftrað morðingjanum að draga upp skotvopn.

Hörmuleg löggjöf bæði um skotvopnaeign og refsingar.   

 

Ofanritaðaðar lagagreinar eru úr  

"Oklahoma Statutes Citationized

Title 21. Crimes and Punishments

Chapter 24 - Homicide Section

Í annarri frétt á Mbl.is telur varðstjóri í lögreglunni í Tulsa ólíklegt að þetta sé dauðadómsmál.

Meðal annars þar sem hinn handtekni hafi mögulega ekki vitað að tveir væru í bílnum. 

Í blöðum í Oklahoma segja vitni að hinn handtekni hafi deilt við báða hina látnu.  

Lögregluvarðstjórinn veit samt meira um þetta en ég. 

Eitt af mörgu sem saksóknari getur fært fram í þessu sambandi eru áhrif málsins á fjölskyldur hinna látnu. 


mbl.is Meintur morðingi Kristjáns handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynþokinn lekur af henni.

Forsetafrú Bandaríkjanna er einfaldlega gríðarlega kynþokkafull.

Stórglæsilega skólagengin, fluggáfuð kona sem jafnvel stendur forsetanum framar að andlegu atgervi.

Eðlilega eru allir vegir færir fyrir konur eins og Michelle Obama.  

Mestur munur ef við hefðum svona fólk í forystu hérlendis í stað aumingjanna.   

Fáráðlingar er skynja ekkert nema eigin vesaldóm og vanmátt. 

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur stjórnað Íslandi frá síðustu alþingiskosningum. 

Þegar því líkur ætla ráðamenn okkar að skríða upp í bæli Evrópusambandsins.  

Þessir aular okkar átta sig á að þeir geta alls ekki sjálfir stjórnað landinu. 

Ekki þó alls varnað verð ég að segja.     

  


mbl.is Stjarna Michelle Obama skín skært
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband