28.1.2013 | 16:25
Við Íslendingar - Ekki þú Össur.
Ef þú ætlar í alvöru að læra eitthvað af þessu.
Segðu þá af þér.
Eða bullaðu bara áfram.
Því erum við orðin vön.
Ginningarfífl ESB og afglapi.
![]() |
Stjórnmálamenn læri af Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.1.2013 | 16:13
Nær að bera ríkisstjórnina út.
Við hefðum verið betur komin með Júlíus þennan sem forsætisráðherra en frú Jóhönnu Sigurðardóttur.
Hann stendur þó fastur fyrir sem er annað en ríkisstjórnin gerði í icesavemálinu.
Það væri nær að lögreglan væri nú á þessari stundu að bera ríkisstjórnina út úr stjórnarráðinu.
Og landráðamenn út úr Alþingishúsinu.
En vonandi tekst okkur að finna fangaklefa fyrir það fólk síðar, þau eru jú sjálf að hugsa um byggja yfir sig á Hólmsheiði.
Núverandi stjórnarliðar fundu það upp sjálfir að sækja stjórnmálamenn til saka.
Ekki nema eðlilegt að þeir verði ákærðir fyrir þau landráð sem þeir hafa framið.
Júlíus kaupmaður Þorbergsson var í blaðaviðtali spurður hvort hann seldi sprútt í verslun sinni.
Hann sagðist borga skatta og skila virðisaukaskatti af öllu sem hann seldi sama hvað það héti. Ríkissjóður fengi sitt.
Mörgum sinnum heiðarlegri maður en ráðherrar og stjórnarliðar þessarar ríkisstjórnar.
![]() |
Júlli borinn út úr Draumnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2013 | 16:06
Ætlið þið að segja af ykkur?
Þannig á spurningin að vera Sigmundur.
Berðu svo fram vantraust á ríkisstjórnina.
![]() |
Ætlið þið að biðjast afsökunar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2013 | 16:04
Þetta er ekki þinn sigur Össur. Þú ert landráðamaður.
Við Íslendingar unnum fullum sigur en ekki þú Össur. Þú varst að tapa.
Ekki reyna að troða þér inn í sigurliðið.
Þú segir að stjórnmálamenn eigi að læra af icesave málinu og gerðu það þá sjálfur.
Og segðu af þér.
Annars ertu bara að bulla.
Eins og venjulega.
![]() |
Þetta eru glæsileg úrslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2013 | 16:01
Jú einmitt Jóhanna þú ferð fyrir Landsdóm samkvæmt þinni eigin aðferð.
Auminginn hún Jóhanna Sigurðardóttir taldi það rétt að sækja Geir Haarde til saka fyrir Landsdómi.
En segir núna að ekki eigi að leita sökudólga.
Hún sem á vísan 16 ára fangelsisdóm út af landráðum vegna icesave samninganna.
Ásamt þeim Steingrími og öðrum þjóðníðingum og landráðamönnum fleirum.
![]() |
Eigum ekki að leita sökudólga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2013 | 12:05
Sigur okkur Íslendinga. - Ósigur þinn Steingrímur landráðamaður.
Þetta er sigur okkar sem felldum lögin um icesave svikasamninga ríkisstjórnarinnar.
Ósigur Steingríms og annarra landráðasvikara sem standa að þessari ríkisstjórn.
Er reyndu ítrekað að láta okkur borga það sem við áttum aldrei að borga.
Hungurstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er versta ríkisstjórn allra tíma.
Þar sem stuðningsmennirnir eru þjóðníðingar og sumir þeirra ekki annað en skríll og ruslaralýður.
Sem ekki einu sinni þau í VG treysta sér til að bjóða aftur fram til þingsetu.
Þó að ólæsir hálfbjánar fyrir norðan ætli enn einu sinni að bjóða okkur upp á uppsölujafninginn Steingrím J. Sigfússon.
Samfylkingin hefur landráð á stefnuskrá sinni þannig að þar er boðinn fram hver auminginn sem leið á um.
Í Samfylkingunni er þess gætt að stefnan taki ekki um of upp á höfuðið og er því aðeins þessir þrír stafir; ESB.
Meira að segja Jóhanna Sigurðardóttir náði að læra þá í réttri röð og meira þarf nú ekki til á þeim bænum.
Von að svangt fólk standi í röðum eftir mat í landi þar sem svona vesalingar stjórna.
![]() |
Stórkostlegur sigur fyrir okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.1.2013 | 11:45
Stríð er viðbjóður ekki tölvuleikur.
Það verður aldrei nægilega áréttað að stríðsátök eru ekkert annað en alger viðbjóður.
Í síðustu heimstyrjöld voru t. d. miljónir ungra karlmanna sviptir framtíð sinni vegna heimsku og brjálæðis nokkurra stjórnmálamanna.
Þeir fengu að drepast, og limlestast, af völdum bruna, skotsára og sprengjubrota og úr hungri, kulda og viðbjóðslegum sjúkdómum.
Börn, konur, sjúklingar á sjúkrahúsum, fólk á öllum aldri var drepið í loftárásum, brennt til bana, kæft í reyk og steikt í fosfór.
Og nú á árinu 2013 er ennþá stríð og skæruhernaður um víða veröld.
Hvar alls kyns geitahirðar, kúasmalar og úlfaldahirðingjar eru að berjast með fullkomnum sprengjuvörpum og eldflaugum.
Og alltaf eru það börnin, konurnar mæður þeirra og aðrir saklausir borgarar sem mest fá að finna fyrir viðbjóðnum.
Ásamt sjúklingum, öldruðum og auðvitað þeir barnungu menn sem fórnað er á vígvellinum.
Og hverjir græða svo mest á þessu öllu saman.
Jú það eru hvítir pattaralegir vesturlandabúar sem framleiða og selja bláfátækum þjóðum hergögn.
Og í seinni tíð nýja yfirstéttin í Kína og Rússlandi.
Stórkostlegar framfarir í heiminum að menn sem baða börnin sín upp úr skólpi skuli alltaf eiga vopn til að drepa alla í næsta þorpi.
Þökk sé þróunaraðstoðinni og blessun siðmenningarinnar frá Vesturlöndum, Rússlandi og Kína.
![]() |
Meiri hermaður en prins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2013 | 11:31
Frábært fordæmi hjá Hæstarétti.
Það er óþolandi að þjóðfélagslegir misyndismenn geti hindrað þjóðfélagslega umræðu með hótunum um málsókn.
Og hálfu verra ef glæpamenn geta komið í veg fyrir umfjöllun um glæpi sína með hótunum um málsókn.
Og það á hendur venjulegu launafólki eins og fréttamönnum, eða pistlahöfundum, sem ekki fela stolna sjóði í skattaskjólum.
Það er því frábært fordæmi hjá Hæstarétti að hætta að dæma misyndismönnunum miskabætur þó að eitthvað sé ónákvæmt í umfjöllun um þá.
Það sér ekki á svörtu og engar bætur eiga fást fyrir að einhver bæti þar gráu ofan á svart.
Málskostnað á svo að fella niður í þessum tilfellum eða hreinlega á ríkissjóð í þágu málfrelsis.
![]() |
Vill að allir geti áfrýjað til Hæstaréttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2013 | 20:37
Steingrímur er tært fífl.
Nú eru að koma kosningar.
Þá heldur Steingrímur að almenningur sé svo vitlaus að kjósa hann út á fleiri lygaloforð.
Hann sem fórnaði íslenskum almenningi fyrir umsókn um aðild að ESB.
Eftir bankahrun gerði ríkisstjórnin alls ekki allt sem hægt var fyrir almenning.
Hún var að halda að sér höndum til að uppfylla skilyrði ESB í ríkisfjármálum.
Þess vegna fóru þúsundir manna til annarra landa sem ekki hefðu þurft þess ef ríkisstjórnin hefði verið að vinna fyrir fólkið í landinu.
Steingrímur J. Sigfússon er fullkomið pólitískt fífl ef hann heldur að þetta sé trúverðugt nú.
Að hann ætli að fara að hugsa um fólkið í landinu .
Hann tækifæri til þess er liðið.
En hann nýtti það ekki.
Tært fífl.
![]() |
Aðstoði skuldug heimili |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.1.2013 | 02:12
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er fallin. Samfylking og VG með minnihluta á þingi.
Nú er Samfylkingin með 19 alþingismenn og Vinstri hreyfingin grænt framboð með 11 alþingismenn.
Samanlagður þingstyrkur ríkisstjórnarflokkanna á Alþingi er því 30 alþingismenn.
Róbert Marshall, hefur lofað að verja ríkisstjórnina falli og þar með hefur ríkisstjórnin opinberlega 31 þingmann á bak við sig.
Samkvæmt þingræðisreglunni ber Jóhönnu Sigurðardóttur að fara á Bessastaði og biðjast lausnar.
Fari Jóhanna ekki sjálfviljug er rétt að stjórnarandstaðan beri fram vantraust svo að þjóðin fái þetta á hreint.
Þjóðinni kemur þetta nefnilega við er það ekki.
![]() |
Kornin sem fylltu mælinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)