19.11.2009 | 17:08
Verða alþingismenn fangelsaðir ef illa fer?
Dómstóll Evrópusambandsins er þekktur fyrir framsæknar lögskýringar.
Ef landráðakafli íslenskra hegningarlaga er skoðaður sést eftirfarandi:
...91. gr. .....skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
...Sömu refsingu skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri...
Í dag á þetta líklega ekki við þá alþingismenn sem samþykkja icesave lögin, eða icesave samninganefndina.
Þeirra vegna vona ég að framsæknar lögskýringar verði ekki komnar í tísku í evrópskum og íslenskum refsirétti, fari allt á versta veg. Eitt er víst að ekki munu þeir njóta samúðar.
Erum komin í greiðsluþrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:38 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.