28.11.2008 | 14:10
Lögreglan hefur staðið sig mjög vel - meðalhóf og stilling.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, lögfræðingurinn Stefán Eiríksson hefur meðalhófsreglu stjórnarskrárinnar í heiðri og hefur staðið mjög vel verki að undanförnu.
Lögreglan hefur haft sig eins lítið í frammi og mögulegt er og forðast að hella olíu á eldinn sem nú kraumar undir í samfélaginu.
Það er miklu meira íslenskt að Geir Jón yfirlögregluþjónn gefi mönnum í nefið en að kalla í gasmennina frá ríkislögreglustjóra til að framkalla hér stjórnarbyltingu. Það færu létt með ef þeir gengju í skrokk á friðsömum mótmælendum eins og vörubílstjórum forðum.
Það var einnig ákaflega skynsamlega tekið á aðsúgnum að lögreglustöðinni og allt málið tónað niður.
Þeir sem þar áttu í hlut þurfa ekki að kvarta og máttu vissulega búast við gasi í augun þegar þeir voru byrjaðir að berja upp hurðir með staur.
Þegar ástand á vettvangi er komið á slíkt stig er á ýmsu von. Gasi í augu frá lögreglu, átökum aðila og meiðslum. Mótmælendur gætu hent grjóti í höfuð viðstaddra o. s. frv.
Það er lögbrot hjá forráðamönnum barna og unglinga að vera vísvitandi staddir á slíkum vettvangi með börn sín.
Á ekki von á byltingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.