Rekum múslimaprestinn úr landi.

Einhver erlendur prestur (imam) múslima hr. Ahmad Seddeq er strax farinn að skapa hatur og illindi hérlendis.

Annað hvort þarf að afnema trúfrelsi þegar í stað.

Eða setja það í lög að prestar og forstöðumenn trúfélaga séu íslenskir.

Ummæli imamsins um að samkynhneigðir séu barnaræningjar er ekki málflutningur sem er viðeigandi í okkar samfélagi.

Ef að einhverjir múslímar ætla að stunda hér hatursfullan málflutning í þjóðfélaginu þá skal reka þá úr landi þegar í stað. 

Það þýðir ekkert að biðjast afsökunar.  Menn sem hafa sannað öfgafullt innræti sitt eiga hingað ekkert erindi. 

Danir hafa hroðalega reynslu af innflutningi á ofstækisfullum múslimaprestum. 

Gerum ekki sömu mistökin.

Burt, burt, burt  með manninn eins og skot.  

Ef eitthvað þessu líkt fer að ágerast þarf jafnvel að banna opinbera iðkun múslímatrúar hérlendis. 

Og kannski fleiri trúarbragða í leiðinni, og ýmsa innlenda trúarsöfnuði sem misnota safnaðarmeðlimi.  

Slíkt ofstæki, hatur, forneskja, kvennakúgun og heift er ekkert sem okkur vantar til Íslands. 

Og ekki til Vesturlanda yfirhöfuð.  Hér eru alveg nægileg vandræði fyrir, takk.

Það er allt í lagi að þeir múslímar sem hér búa stundi sína trú í friði.

Þetta er gjarnan fólk sem hefur gifst Íslendingum og allt í fína lagi með það.  Alveg ágætt fólk eins og Salman Tamini.

En það er ekki þar með sagt að hér eigi að reisa moskur og að óþekktir erlendir múslímar eigi að fara að stunda hér trúboð. 

Annars er þessi múslímaprestur víst á vegum Menningarseturs múslíma sem er í Ýmishúsinu.

Sem styrkt er af einhverjum myrkraöflum (?)  í Saudi Arabíu.   

Sem strax virðast hafa sent hingað einhvern trúarbrjálæðing. Einn eða fleiri.

Mér skilst að einn slíkur hafi verið rekinn úr Félagi múslíma.  

Af hverju var hann ekki rekinn úr landi???

Þessi samtök í Saudi Arabíu eru víst með starfssemi víða um heim. 

Frá þeim samtökum í Ástralíu hafa komið sjálfsmorðsmenn.

Og þess vegna á að banna þessi Menningarsamtök strax og reka alla presta þeirra burt héðan.

Bara eins og skot. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Viggó...Stríð við Múslima hér á Landi er rétt að birja..........

Vilhjálmur Stefánsson, 19.7.2013 kl. 20:52

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Það rísa að minnsta kosti á manni burstirnar Vilhjálmur.

Þegar einhver setur glæpastimpilinn á alla sem eru samkynhneigðir. 

En í leiðinni þarf maður að gæta sín að setja ekki glæpastimpil á alla múslíma sem flest er jafn ágætt fólk og samkynhneigðir.

En það eru glæpamennirnir í al-Qaida og Talibanar ekki. 

Allt sem tengist þeim, og þeirra málflutningi, þarf að banna og reka burt hið snarasta. 

Viggó Jörgensson, 19.7.2013 kl. 21:43

3 Smámynd: Viggó Jörgensson

'Þessi aths mín er á bloggi GSÞ og hér til minnis. 

Sæll Svanur Gísli. Ég hef ekki misst svefn yfir uppgangi múslima á Íslandi, hingað til. Og hef þar af leiðandi ekki fylgst nægilega vel með þeirri starfssemi. Taldi heldur enga þörf á því þar mér sýndist það vera ágætt fólk og friðsamt. Ég vissi að til var Félag múslima á Íslandi. Og þar var mest áberandi ágætur maður Salman Tamini. Svo vissi ég af einhverju sem hét Menningarsetur múslima í Skógarhlíð. Ég hafði engan veginn gert mér grein fyrir að það væri sjálfstætt trúfélag. Mér finnst nafnið eitt benda til þess að það hafi menn einmitt viljað. Almenningur hefur alls ekki almennt áttað sig á að þarna sé komið nýtt múslimafélag. Er Ýmishúsið orðið að mosku??? Þannig að ég er sem sagt einn þeirra seku. Sem ruglaði þessu saman og hélt að aðeins væri eitt Félag múslima á Íslandi. Og hélt að þessi "brjálaði" ofsatrúarprestur væri á þess vegum og var frekar hissa. Hafði heyrt af styrk frá Saudi Arabíu og hélt að imaminum hefði verið troðið þar með. Og var því eindregið á móti því að yfir þennan imam yrði byggð moska á besta stað. Þakka þér kærlega fyrir þennan upplýsandi pistil. Nema það að nú fer ég hins vegar að missa svefn yfir uppgangi múslima á Íslandi. Þessi tenging við Saudi Arabíu og þessir glæpamenn á þeirra vegum frá Ástralíu. Nú vil ég banna, þegar í stað, þetta Menningarsetur múslima. Og reka alla þeirra presta úr landi. Mér er sama hvað fulltrúar glæpasamtaka eru kallaðir. Sama hvort þeir eru prestar eða mótorhjólamenn. Burt með þá eins og skot. Viggó Jörgensson, 21.7.2013 kl. 05:22

Viggó Jörgensson, 21.7.2013 kl. 05:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband