4.9.2011 | 21:39
Kínverjar koma með sitt eigið verkafólk, tæki og búnað.
Í Svíþjóð voru Kínverjar með stórt fasteignaverkefni sem RÚV sagði frá nú nýlega.
Til að vinna verkið fluttu Kínverjar inn eigið verkafólk.
Sem var ekki á sænsku taxtakaupi.
Heimamenn fyrir austan eru verulega glámskyggnir ef þeir halda að þeir séu að komast í feit mál.
Ef þá langar til að börnin þeirra verði þrælar Kínverja.
Er einfaldara fyrir þá að flytja til Kína.
Að selja landið í heildsölu, til útlendinga, er þeim ekki siðferðilega heimilt.
Ótrúleg skammsýni.
Óska eftir viðræðum við Huang | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Viggó. Vafasamir heims-eigenda-bankar eiga nú þegar stóran hluta af jörðum Íslands, og engum finnst neitt athugavert við það?
Ég mæli með þessum ágæta Kínverja umfram nafnlausa/heimsálfulausa heimsbanka-"eigendur" á Íslensku landi.
Fréttamenn á Íslandi verða að fara að kynna sér staðreyndir mála frá grunni staðreynda.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.9.2011 kl. 02:35
Anna Sigríður.
Þeir eiga svokölluð óbein eignaréttindi. Veð.
Það er grundvallarmunur eða að selja erlendu ríki heil eða hálf héruð. Svona nýtt Hong Kong.
Viggó Jörgensson, 5.9.2011 kl. 08:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.