4.6.2011 | 14:49
Árið 874 er á tímabilinu 770-880, styrkir þá fyrri niðurstöður.
Á heimasíðu sinni segir dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur að
landnámsleifarnar séu frá því einhvern tímann á tímabilinu árið 770 til 880.
Og segir okkur að þetta sé 68% öruggt.
Við þurfum bara barnapróf til að sjá að það er 100% öruggt.
Að landnámsárið 874 sé innan tímabilsins 770 til 880.
Og hvað er þá nýtt í þessu?
Segir kenningum um landnám hrundið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það kemur fram að þessi hús voru yfirgefin á þessu árabili og þá væntanlega eftir langa notkun. Bygging þeirra hefur því átt sér stað mun fyrr.
Sigurður M Grétarsson, 4.6.2011 kl. 15:33
Sigurður M Grétarsson, 4.6.2011 kl. 15:33: Góður punktur Sigurður, góður punktur.
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 4.6.2011 kl. 15:50
Nei strákar mínir. Þarna er blaðamaður Mbl. að rýna í eitthvað sem blaðamaður Fréttablaðsins hefur eftir dr. Bjarna.
Sjálfur segir Bjarni neðangreint á heimasíðu sinni.
Hvar sjáiði minnst á að húsin hafi verið yfirgefin á þessu tímabili.
Það stendur "...völdu menn að byggja bústað..."
"...Vorið 2009 hófust fornleifarannsóknir í Vogi sem er í nágrenni Kirkjuvogskirkju í Höfnum.
Fornleifafræðistofan undir stjórn dr Bjarna F. Einarssonar fornleifafræðings sá um rannsóknina í samvinnu við Háskóla Íslands en 13 nemendur í fornleifafræði fengu æfingu í verklegri fornleifafræði.
Rannsóknin var unnin í samstarfi við Byggðasafn Reykjanesbæjar með styrk frá Menningarsjóði Suðurnesja og Fornleifafræðistofunni.
Einhvern tíman á árabilinu 770 – 880 e.Kr (þetta getum við sagt með 68% öryggi, samkvæmt C14 aldursgreiningu) völdu menn að byggja bústað sinn á þessum stað en ekki annarsstaðar, af hverju?
Hvaða kosti sáu menn við staðinn?
Ein ástæða getur verið að það er góð lending í Ósnum en Ósinn var í ferðabók Ólafs Olavíusar frá 1780 kallaður Diupi.vogur.
Önnur ástæða gætu verið ríkuleg fiskimið og gjöfular eyjar rétt fyrir utan ströndina, eyjar sem sumar hverjar eru horfnar í dag.
Í björgum skammt hjá voru fuglar og egg og upp til heiða voru bæði grösug svæði fyrir kvikfé, skógur til kolagerðar og mýrarauði í mýrum sem hægt var að vinna járn úr.
Við ströndina var rekaviður og hvalrekar. En kannski var önnur ástæða fyrir þessu öllu saman.
Kannski voru menn á höttunum eftir tönnum úr hval og rostungi, kannski skipti nálægðin við Grænland máli?
Nánari rannsóknir munu varpa skýrara ljósi á þessar hugmyndir.
En Vogur hefur alla burði til að varpa nýju ljósi á tengsl manna við stærstu eyju í heimi..."
Viggó Jörgensson, 4.6.2011 kl. 20:40
Einmitt Viggó. Eiginaldur brenndu leifanna skiptir einnig máli, og við tvö staðalfrávik eru enn frekari líkur á því að aldursgreiningin sýni einmitt að skálinn í Vogi sér frá 9. og 10. öld. Sjá hér og hér. Þessi eina greining á óskilgreindu brenndu efni, ein á báti, er ekki sönnunargagn fyrir eitt eða neitt, og það veit Bjarni F. Einarsson mætavel.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.6.2011 kl. 22:35
Þakka þér enn og aftur Vilhjálmur Örn.
Var búinn að lesa bloggið þitt um þetta mál.
Viggó Jörgensson, 5.6.2011 kl. 00:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.