10.10.2010 | 01:15
Úr Öskjuhlíð til New York
Muni ég það rétt var Pálmi Haraldsson potturinn og pannan í fyrsta alvarlega samkeppnisbrotinu hérlendis.
Þessi stálheiðarlegi maður var þá á reglulegum samráðsfundum í Öskuhlíð um verð á grænmeti.
Síðan hefur hann fetað hinn þrönga stíg dyggðarinnar í viðskiptum, studdur af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Hannesi Smárasyni og fleirum sem ekki mega vamm sitt vita.
Það er von að þeim sé misboðið að réttvísin og skatturinn séu aftur og aftur á hælum þeirra og það jafnvel til Nýju Jórvíkur.
Og alltaf fyrir misskilning.
Slitastjórn í veiðiferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Nákvæmlega það hurfu litlir 1100 milljarðar og enginn kannast við að hafa tekið þá!
Sigurður Haraldsson, 10.10.2010 kl. 21:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.