27.1.2009 | 02:26
Íslandi skipt upp í samyrkjubú. Allir fá kvaðningu fyrir páska auk skömmtunarseðla.
Hvert samyrkjubú mun sína fimm ára framleiðslu áætlun.
Íbúar á Bíldudal eiga á næstu fimm árum að framleiða 23.568. hægri aftur hjólalegur í Volgu árgerð 1959. Á Djúpavogi skulu framleidd 1300 tonn af Kúlakkasápu til að útrýma færilús. Á Ísafirði skal framleiða 7000 tonn af hör sem nota skal í aktygi. Í Mosfellsbæ skal framleiða 800 tonn af tólg til að smyrja vagnhjól. Í uppsveitum Borgarfjarðar skal framleidd 16000 tonn af súrkáli, o. s. frv.
Já fimm ára áætlun Vinstri Grænna mun bægja hungurvofunni frá Íslandsströndum.
Guði sé lof fyrir endurminningar Stalíns, blessuð sé minning hans.
VG leggur línurnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.1.2010 kl. 15:25 | Facebook
Athugasemdir
Og Grímsey verður Gulag sem og Kolbensey, en þangað fara stórhættulegir efasemdarmenn...
Hlynur Jón Michelsen, 27.1.2009 kl. 03:13
Ha? Ég hélt að VG myndi skilja landið eftir með 2.250 milljarða í erlendum skuldum, ekkert lánstraust og 20% verðbólgu, allt logandi í óeirðum og þjóðin að athlægi.
Eða var það íhaldið? Rifjaðu þetta aðeins upp fyrir okkur, brandarakall.
Rúnar Þór Þórarinsson, 27.1.2009 kl. 03:40
Ég tek undir með Rúnari. Notaðu hausinn á þér og það sem þér var gefið í vöggugjöf. Fólk er búið að vera að fylgjast með hvert stefna síðustu 17 ára hefur skilað okkur. Pokinn í Valhöll er strax orðinn troðfullur af hræðsluáróðri og eiturspúandi og illar tungur ættaðar þaðan eru farnar að vaða uppi sem aldrei fyrr. Svei bara!
Sigurður Atlason (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 06:27
Hvaða hvaða. Það verður bara gaman að rifja upp baðstofustemminguna við olíuljós.
Viggó Jörgensson, 28.1.2009 kl. 14:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.