2 ára fangelsi skv. hlutafélagalögum - 6 ár skv. hegningalögum.

Það fer að verða flottari félagskapurinn hjá Lalla Jones í grjótinu. 

Refsiramminn skv. hlutafélagalögum er 2 ár auk sekta.  Refsiramminn skv. auðgunarbrotakafla almennra hegningalaga er yfirleitt 6 ár. 

Greinar 248 og 249 bjóða þessum ágætu bankamönnum og stjórn bankans upp á fría gistingu og uppihald  í allt að 6 ár.  

Það fer svo eftir atvikum hvort framangreint á við eða ekki, en miðað við tímasetningar og upphæðir er þetta alveg raunhæfur möguleiki.    

Svo getum við auðvitað öll gert tæknileg mistök en að öðru leyti blásaklaus.... 


mbl.is Yfirlýsingin kom frá forstjóra Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Nú verður væntanlega að koma eins og tíu manns í hvern fangaklefa á næstu árum. Sælutíðin með sérherbergi er sjálfsagt að baki á Litla Hrauni, Kvíabryggju og þessum rasphúsum.

Þá er spurning eftir að Obama sigraði í Bandaríkjunum hvort hann væri til í að lána okkur Gúantanamó þegar það hefur verið rýmt? Hann ætlar að leggja niður starfsemina þar og við höfum nú flutt annað eins milli landa. Var ekki gömlu álveri hrúgað niður á Grundartanga hérna um árið og gömlum kofaskriflum á Kárahnjúkum. Sjálfsagt mætti nota þá líka hvar svo sem þeir eru nú niðurkomnir.

Á Bretlandi voru lengi vel við lýði sérstök skuldafangelsi. Kannski mætti dubba upp slíkri hugmynd enda hafa kærulausir athafnamenn með nýjar kennitölur ætíð þótt mjög varasamir í viðskiptum.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 5.11.2008 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband