9.10.2008 | 16:33
Hvað með verðtryggðu lánin ?
Ástandið í efnahags- og gengismálum hefur einnig aukið verðbólguna verulega.
Það þarf því einnig að bjóða upp á frystingu á lánum þeirra sem eru komnir í þrot vegna undanfarinna hækkana á vísitölu. Þar þarf að vera um nokkra möguleika að ræða. Skilmálabreytingar þar sem lánið er lengt. Skuldskeytingar, þar sem vanskilum er bætt við höfuðstól lánanna. Frestun hluta af afborgun, t. d. vaxta eða verðbóta. Lánið væri að einhverju leyti víkjandi.
Gengistryggð lán verði fryst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.1.2010 kl. 15:02 | Facebook
Athugasemdir
Í raun ættum við að krefjast þess að fella niður verðtryggingu á lánum, það er óviðunandi, að almenningi sé réttur reikningurinn á þessu sukki fjármálafyrirtækjanna og ofurlaunafólksins, en það er augljóslega planið.
Gullvagninn (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 17:27
Tek undir með Gullvagninum þetta er mikið réttlætismál.
hanna (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 20:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.