Svo vill ESB fá sjö miljarða á ári.

Skattar hafa sem sagt lækkað eða staðið í stað.

Þetta er ég alltaf að reyna að segja ykkur.

Og nú hefur hann Steingrímur minn staðfest þetta sjálfur.  

Þó hann hæfi reyndar ferilinn á smáræðis sykurskatti en það var bara til að styðja ykkur í megruninni.

Og hættuð þessari sultugerð og færuð heldur að brugga til að spara gjaldeyri.

Og það tókst glæsilega því aldrei hefur verið bruggað annað eins í landinu.  

Og ekki veitti heldur af að hækka á ykkur sykurinn því að þið hafið aldrei verið eins feit.   

Og því ætlum við Steingrímur að hækka kolefnisgjaldið til að þið séuð ekki alltaf á bíl. 

Ykkur sláturkeppunum veitir ekki af hollri hreyfingu og útilofti. 

Svo þurfum við að herða sultarólina því að þegar við erum komin inn í Evrópusambandið.

Vill það fá sjö miljarða á ári í félagsgjöld. 

Innfalið í því er dagvistargjaldið fyrir Össur.

Það einasta eitt sem við Steingrímur vorum að spekúlera er að leggja á ykkur smáræðis jólaskatt. 

Svo að þið étið ekki yfir ykkur og komið svo á sjúkrahúsin í nýárinu.

Bumbult af rjóma og útmökuð alveg, með mör og smjör, út á kinn.   

Við erum nefnilega að hugsa um að loka sjúkrahúsunum fyrstu vikuna í janúar. 

Út af vörutalningu og selja smjörið til Noregs. 

Við erum sko að spara fyrir nýju ráðherrabílunum.

Þegar þau koma að heimsækja Jóhönnu frá Brussel þýðir ekki að bjóða þeim upp á einhverjar druslur. 

 


mbl.is Stærstu skattstofnarnir óbreyttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband