12.12.2011 | 23:03
En Dorrit er búin að því.
Ég hugsa bara að ég sofni ágætlega þó að Óli sé ekki búinn að ákveða sig.
Það skiptir eiginlega engu máli hvað við Óli ákveðum í þessu máli.
Hún Dorrit er búin að ákveða að Óli verði eitt kjörtímabil í viðbót.
Og við Óli hlýðum því bara, en skiptum með okkur verkum.
Hann fer í framboð en ég fer svo og kýs hann.
Út af frammistöðu hans í icesave.
Nema auðvitað að Dorrit segi mér að kjósa einhvern annan.
T. d. Jóhönnu eða Össur.
Bara hvað sem er, til að losa þau úr þessum hrakningum þeirra, að álpast út í stjórnmál.
Því eina sem þau geta alls ekki.
Ekki enn gert upp hug sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.12.2011 kl. 18:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.