Sýnir ókosti spilltra fjölmiðla fyrir lýðræðið.

Þessi fullyrðing Berlusconi er ekki í samræmi við það sem sést í fréttum frá Líbýu. 

Að þessi gjörspillti bófi, Berlusconi. skyldi verða forsætisráðherra í lýðræðisríki.

Sýnir hversu alvarlegt það að glæpamenn skuli eiga og stjórna fjölmiðlum.

Sýnir hversu áríðandi það er að fjölmiðlaveldi verði hlutuð sundur og séu í dreifðri eignaraðild. 

Það er ekki tilviljun að gjörspillt ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur skyldi byrja á því. 

Að hlaupa niður í Landsbanka Íslands og gæta þess að Jón Ásgeir Jóhannesson héldi 365 miðlum. 

Jóhanna sjálf varð að viðurkenna að hún fékk greitt frá Baug í kosningasjóð sinn í peningum.

En ekki hefur verið gerð grein fyrir ókeypis auglýsingum í fjölmiðlum Baugs.

Fátt eitt hefur komið upp á yfirborðið um fjárstyrki Baugsveldisins til Samfylkingarinnar.

Það sýnir vissulega verstu afskræmingu á lýðræðinu, að á Ítalíu. 

Sé versta skítseyði landsins bæði ráðandi yfir fjölmiðlum og landsstjórninni. 

Og hvernig er það hérlendis?

 
mbl.is Berlusconi: Gaddafi elskaður af þjóðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður punktur!

það hlýtur að verða framarlega í forgangi þeirrar ríkisstjórnar sem tekur við þegar þessi óskapnaður sem nú situr við völd hökklast frá

að breyta þessu, varla fer forsetinn að fara gegn því í andstöðu við "fólkið í landinu".

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 10.9.2011 kl. 07:19

2 Smámynd: el-Toro

Gaddafi á sína stuðningsmenn í Líbíu.  þeir hverfa ekki eins og sól fyrir dögg þó svo NATO hafi sprengt uppreysnarmennina til valda.  ástandið er gríðarlega eldfimt í Líbíu eins og allir vita.  næstu mánuðir munu skýra mikið út hvort samstarf uppreysnarmannana heldur og hvort þeir geti komið til móts við alla ættbálkana í landinu.  sérfræðingar eru flestir efins um að samstarf uppreysnarmannana haldist án riskinga þeirra á milli.

hinsvegar er engri þjóð stætt af því að hafa sama mann við stjórnvölin þetta lengi.

el-Toro, 10.9.2011 kl. 14:07

3 Smámynd: Viggó Jörgensson

Þakka þér Kristján.

Íslenska þjóðin er á elleftu stundu að halda hér í alvöru lýðræði.

Hér er allt á þröskuldinum að verða eins og í Bandaríkjunum.

Þar fer enginn í stjórnmál nema geta útvegað auð fjár í kosningasjóði.

Hérlendis þarf að lögleiða hámark þeirrar fjárhæðar sem eyða má í prófkjörsbaráttu.

Og sú upphæð þarf að vera miðuð við launafólk.

Þeir sem brjóta reglurnar missi það sæti sem þeir voru kosnir í.

Fjölmiðlar sem ná dreifingu um allt land, eða fjölmiðlakeðjur, skuli vera í dreifðri eignaraðild.

Sömu aðilar eða fulltrúar þeirra megi ekki eiga bæði dagblað og ljósvakamiðil.

Viggó Jörgensson, 12.9.2011 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband