Við viljum nammi úr Fríhöfninni og 128 metra stálbrú. Komdu heim í hvelli.

Ekki má lukkudís okkar Íslendinga bregða sér bæjarleið. 

Þá sýður súpan upp úr á Höfðabrekku. 

Össur lendir á glapstigu með Hamas, helstu glæpasamtökum heims.

Hringvegurinn fer sundur og Ögmundur sagður sofa niður í ráðuneyti. 

Allt farið í drasl á Bestu hátiðinni og kynnirinn kallaði fjallkonuna hóru.

Ofan í kaupið brann svo útikamar íhaldsins í Garðabæ. 

Þetta eru voða sætar fjölskyldumyndir frá ESB en þú verður samt að koma í hvelli heim. 

Kauptu 128 metra stálbrú af frú Merkel og berðu henni kveðju Guðs og okkar. 

Ein hundert acht und zwanzig metrar og 7 metra breið.  Þarf að þola 63 tonn.  

Brúin verður að vera á VISA rað, af því að Steingrímur er týndur með tómt ávísanaheftið.

Eða á Ölstofunni, hvað veit ég. 

Kauptu svo nammi og kattamatinn í Fríhöfninni. 

 

 

  


mbl.is Jóhanna fundaði með Merkel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snilldar pistill!

Elvar Másson (IP-tala skráð) 11.7.2011 kl. 21:23

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Landinu er stjórnað af snilld Elvar. 

Viggó Jörgensson, 11.7.2011 kl. 21:34

3 Smámynd: Haraldur Hansson

Það þarf góða færslu sem inniheldur Jóhönnu, Össur og Steingrím en fær mann samt til að brosa
Klassi!

Haraldur Hansson, 11.7.2011 kl. 22:10

4 Smámynd: Viggó Jörgensson

Marktækir stjórnmálamenn eru þessi þrjú ekki, Haraldur.

Frekar eins og fígúrur upp úr bresku þáttunum Yes minister

Hreinn farsi bara.    

Viggó Jörgensson, 11.7.2011 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband