15.4.2011 | 22:02
Treysta menn ekki Steingrími?
Svona geta menn verið mikil hrekkjusvín.
Steingrímur er ekki fyrr lagður af stað til að láta rassskella sig hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir að klúðra icesave.
Að pörupiltar hlaupa til og rengja það sem Steingrímur var búinn að segja okkur sjálfur.
Að hann hefði farið til Færeyja svo hann vissi alls ekkert um að Össur væri að fara í stríð í Líbýu.
Þar sem Steingrímur gisti í símalausum skerpukjötshjalli var hann aldrei spurður um neitt.
Fiskiflugurnar rekkjunautar Steingríms höfðu aldrei heyrt minnst á Líbýu, Gaddafi eða Össur.
Þessum þinghrekkjusvínum myndi hefnast fyrir ef Steingrímur neitaði að koma aftur heim.Það væri jafngott á þá.
Svona pottormar.
Ákvörðun um Líbíu einnig rannsökuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2011 kl. 00:16 | Facebook
Athugasemdir
Ég tel að við eigum að taka færeysku fiskiflugurnar sem fyrirmynd, og vera ekki að eyða orðum í Steingrím Gimbil. Þær hafa heyrt það frá frændum sínum, þeim sem fljúga á milli eyja, að það sé ekkert að marka þau orð sem koma frá Steingrími Gimbli.
Eggert Guðmundsson, 15.4.2011 kl. 22:20
Já en mest leiddist þeim suðið í Steingrími.
Viggó Jörgensson, 15.4.2011 kl. 22:29
Það er ekkert suð í Gimblinum, hann hefur jarmað eintómt rugl síðan hann komst til valda.
Við eigum frekar að vorkenna fiskiflugunum ef þær hafa hlustað á Steingrím tala upp úr svefni í sínum draumalandi. Ég er viss um að þær þurfi á hjálp að halda, eins og allri hans kjósendur sem hafa upplifað bullið sem kemur úr hans kjaftEggert Guðmundsson, 15.4.2011 kl. 22:43
Eggert.
Nú verð ég að taka upp þykkjuna fyrir Steingrím minn.
Hann er sko ekkert jarmandi sviðahöfuð.
Má ég bara biðja þig.
Viggó Jörgensson, 16.4.2011 kl. 00:18
Tað er sími í skerpukjötshúsinum bakvið oljuskúrinn í Torshavn. Hann er 5.
Jón Steinar Ragnarsson, 16.4.2011 kl. 01:26
Úps
ekki von að ég næði sambandi
hélt það væru ein löng og tvær stuttar.
Viggó Jörgensson, 16.4.2011 kl. 13:22
Tað er orðin modernisering nú á plattuglaöld. Tað eru komnar rullegardiner og radio í hvert hús.
Jón Steinar Ragnarsson, 16.4.2011 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.