Rasistar bulla.

Þeim hefur langað að eiga mynd af ömmu og afa saman á bekk. 

Augljóslega hafa gömlu hjónin verið færð saman á myndinni af þeim tveimur.  

Hnéð og hægri hendin á Obama er eftir á þeirri mynd og speglun af fótum ömmunar. 

Þá vantar steinsökkulinn undir bekknum ömmu megin. 

Þar sem gömlu hjónin eru færð saman, bara tvö, vantar vinstri hendina á afanum.  

Hún er nefnilega í þeirri hæð sem öxlin á Obama er, á upphaflegu myndinni.  

Ef upphaflega myndin væri af þeim hjónum, án Obama, hefði afinn verið að reyna að halda í eyra frúarinnar, sem er ekki líklegt.  

Það er því augljóst að Obama var á upphaflegu myndinni en ekki öfugt.  

Myndin af af ömmunni og afanum, án Obama, er augljóslega skeytt saman. 

Það sjá flestir með gleraugna eða án.  

Rasistarnir í BNA þreytast ekki á að rugla um forsetann.

Fyrst var það dellan um fæðingarvottorðið, nú þetta og hvað næst?

 


mbl.is Gleymdist að fjarlægja hnéð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband