Vélin missti ekki hæð - flugmennirnir dýfðu henni niður í súrefnishæð.

Það er ekki rétt með farið að vélin hafi skyndilega misst hæð. 

Það kom gat á farþegarými vélarinnar.  

Í þeirri hæð sem vélin var í, missa þeir fyrstu meðvitund eftir hálfa, eða heila, mínútu, vegna þess litla súrefnis sem er í slíkri hæð.

Þá getur kuldinn verið eins og í Síberíu að vetri til.  

Svokölluð súrefnishæð er um 10.000. fet, en þarna var vélin í yfir 30.000. fetum.

Þess vegna detta niður súrefnisgrímur fyrir ofan öll sæti og meira að segja á salerninu skv. reglum FAA.  

Samt er ekki víst að allir hafi náð að setja upp súrefnisgrímur.  

Út af súrefnisskorti og kulda er farþegaþotum því dýft niður í súrefnishæð, í svona tilfellum.  

Þetta er neyðarlækkun sem flugmennirnir stjórna.   

 

"...Time of Useful Consciousness

Altitude (feet) Consciousness

15,000 30 minutes or more

18,000 20-30 minutes

22,000 5-10 minutes

25,000 3-5 minutes

28,000 2.5-3 minutes

30,000 1-3 minutes

35,000 30-60 seconds

40,000 15-20 seconds

45,000 9-15 seconds

50,000 6-9 seconds..."


mbl.is 80 farþegavélar kyrrsettar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hjó einmitt eftir þessari þvælu.  Svo voru þeir að fina Air France vélina sem hrapaði yfir kyrrahafi fyrir talsvert löngu síðan, þar segir í fréttinni að þeir hafi leitað á "sjávargólfinu".  Maður hallast að því að það séu tóm fermingarbörn að þýða og flytja fréttir fyrir MBL. 

Jón Steinar Ragnarsson, 3.4.2011 kl. 23:16

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Já Jón Steinar,

þau þurfa að flýta sér krakkarnir, stundum um of.   Núna eru þau búin að laga þetta.

Hins vegar þetta með sjávargólfið.

Ég vona að það sé ekki niðurfall þar eða tappi......

Viggó Jörgensson, 4.4.2011 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband