Of margir með ökuréttindi. Strikamerki á bíla

Ein meginvillan er að það séu sjálfsögð mannréttindi að allir nema blindir hafi ökuréttindi. 

Það er fáránlegt hversu litlar heilbrigðiskröfur eru gerðar til að menn fái ökuréttindi. 

Það sama á við um háaldrað fólk. 

Óskoðuð og óhæf ökutæki eru hundruð í umferðinni á hverjum tíma.  

Glæpsamlegur akstur er umliðinn af vegfarendum.  

Aldrei á ég leið um fjallveg í þoku eða skafrenningi svo að ekki aki menn fram úr mér á ofsahraða þó að skyggni sé varla á milli vegstika.  

Sama á við, í öllum veðrum, um framúrakstur þar sem ekki er hægt að fara framúr með öruggum hætti.  

Það sama á við í kolsvarta myrkri og rigningu.   

Samt segja augnlæknar að yfirleitt engir sjái betur en ég geri.  

Enn eru gangandi vegfarendur á ferð í svörtum fötum í kolsvarta myrkri og virða engar umferðarreglur.  

Endurskinsmerki ættu að vera lögbundin í skammdeginu.

Ökumenn fjórhjóla, mótorhjóla og reiðhjóla ættu að vera skyldaðir til að vera í grænum vestum. 

Ungir ökumenn, sjúklingar og aldraðir ættu að vera með viðvörunarmerki á toppi bílanna, rétt eins og  æfingaakstur og ökukennsla.

Ákveðna liti á að banna á ökutækjum.  Til dæmis dökkgráa liti sem renna alveg saman við malbikið í myrkri og rigningu.

Bílnúmer þurfa að vera strikamerkt þannig að eftirlitstölvur geti lesið öll númer sem aka framhjá. 

   


mbl.is Enginn á móti því að fækka banaslysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband