Steingrímur hefur ekki efni á að vanda um við aðra.

Það besta sem Steingrímur J. Sigfússon gæti gert fyrir þjóðina, og samherja sína, væri að draga sig í hlé.

En hann er bara hæfileikalaus dratthali með athyglissýki, svo að það er borin von.

Þó að allt brenni og sökkvi er það allt í lagi - aðeins að hann sé ráðherra og í sjónvarpinu.

Hans eigin þingflokkur fól Steingrími fyrir 10 mánuðum að sjá til þess að HS orka yrði ekki seld til útlendinga.

Þetta hefði átt að falla vel að skoðunum Steingríms sjálfs sem kommúnista og þjóðernissinna.

En nei og aftur nei. Þessi dauðans aumingi gat ekki einu sinni ráðið við þetta verkefni.

Haldi þessi þróun áfram mun orkuverð þrefaldast til íslensks almennings.

Þökk sé ístöðuleysi og vesaldómi Steingríms Jóhanns Sigfússonar.

Lilja Mósesdóttir hefur upplýst að hún hafi sagt sig úr ríkisfjármálanefnd Steingríms þar sem þar átti bara að finna leiðir til að skera niður en alls ekki að finna nýjar tekjur fyrir ríkissjóð.

Tekjur er eitthvað sem kommúnistar eins og Steingrímur mega ekki heyra minnst á.

Gróði er líka guðlast hjá kommum. Þeir skilja bara skatta og gjöld.

Steingrímur er mesti ráðaleysisaumingi sem nokkru sinni hefur dinglað löppunum í ráðherrastól.

Hann hefur síst af öllum efni á að senda öðrum flokksformönnum tóninn.


mbl.is Umpólun í Sjálfstæðisflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband