Verða tvö ríki á Íslandi? Annað nýlenda Quislinga í ESB og hitt utan þess?

Þeir sem ætla að nauðga þjóðinni í ESB hafa ekki athugað sinn gang nægilega vel. 

Frá árinu 1262 til 1944 vorum við að reyna að losna undan erlendum fjárkúgurum.

Evrópulöndin vilja fá okkur til að borga með sér útrásina til Austur Evrópu.  

Fjárkúgunin er þegar hafin undir merkjum ICESAVE.  

Quislingar í hópi íslenskra stjórnmálamanna vilja ólmir svíkja þjóð sína og þjóðarverðmæti í hendur nýlenduvelda í Evrópu.   

Í Brussel er mönnum slétt sama um íslenskan almenning.  Allt skýrst um að stela af okkur fiskimiðum okkar og orkuauðlindum.

Svo megum við bara aftur svelta eða éta úldið mjöl og lepja dauðann úr skel í eftirrétt.   

Stærstu ríki Evrópu eru fjárglæparíki er hafa skattaskjól á svæði sínu, þar sem allt illþýði heimsins getur falið blóði drifið ránsfé sitt.  Þar eru Bretar allra verstir og ekki fúsir til neinnar samvinnu við heiðarlegt fólk.   Lögleg stjórn Nígeríu reyndi að endurheimta fé sem þarlendir valdaræningjar og morðingjar  stálu af þjóðinni. Þar með talið það sem lagt var inn á reikninga í Bretlandi.  Nígerísk yfirvöld fengu með semingi einhver loðin svör frá Lúxemborgurum og fleirum í Evrópu en Bresk yfirvöld svöruðu engu.  Glæpalýður heimsins er öruggur með fé sitt í City undir lagaskjóli þeirra í Whitehall.  Þar hafa um aldir stjórnað mestu þjófar gervallrar veraldarsögunnar. Þeir sem hafa stolið heilum heimsálfum eru röskir piltar og afkomendur þeirra mega enn í dag kalla sig kónga, hertoga, lávarða, jarla, markgreifa, greifa, baróna eða sir og eru enn með sinn hlut af ránsfengnum persónulega, hallir, gull og gersemar.  Svona gullhanar verða auðvitað aldrei sóttir til saka.  Svo vill lágstéttaskríllinn að þeir greiði skatta af höllunum svo að eðlilega hafa þeir þurft að fela auð sinn á svona skattaeyjum.   

Breska yfirstéttin verður aldrei annað en þjófahyski.  Þessum ræningjum og morðingjum í klúbbunum fínu í London vilja þau Steingrímur og Jóhanna þjóna eins og þræll og ambátt.   Þessum mönnum sem sitja í leðurstólunum í vindlareyknum með þjón á hverjum fingri og metast um hversu marga þingmenn þeir eigi í Neðri deildinni, ríkisstjórninni eða leyniþjónustunni.   Sitja jafnvel sjálfir í Lávarðadeildin eins og forfeður þeirra hafa gert frá öndverðu, milli þess er þeir nestuðu út lið til að drepa eða selja miljónir í þrældóm auk þess að stela öllum mögulegum auði í heilum heimsálfum. 

Mönnum sem stálu framtíðinni af Afríku,  Asíu og Suður Ameríku.  Hvað skyldi afkomendur þeirra muna um að stela Íslandi og setja nokkra Íslendinga í nauðungarvinnu.     

Þessum mönnum vilja þau Steingrímur og Jóhanna ólm hjálpa til að stela Íslandi og gera okkur Íslendinga að nýlenduþrælum á ný. 

Erum við fullkomin fífl að vilja eiga allt okkar undir þessum lénsherrum? 

Það voru þessir menn sem stoppuðu rannsóknina í Bretlandi sem Eva Joly talaði um.  

Þeir ráða öllu sem þeir vilja í Bretlandi og þar af leiðandi í ESB. Heimurinn hefur ekkert breyst.  Nokkrir yfirstéttar Bretar í City telja sig eiga vesturheim, þó að lærisveinar þeirra í Wall Street hafi fengið að vera með í seinni tíð, auk aðalsmanna og auðmanna í gömlu Evrópu.   

Obama hefur skorið upp herör gegn skattaskjólum.  Það dettur Bretum ekki í hug.  ESB þykist vera í einhverjum aðgerðum en það er aðeins sýndarmennska til að friða skrílinn, þar á engu að breyta.  

 


mbl.is Tjáir sig ekki um ummæli Lilju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar Guðmundsson

JÖRGENSEN ÆTTIN ÞARF AFTUR AÐ NÁ VÖLDUM Á ÍSLANID

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband