26.1.2012 | 00:30
Var skipið haffært?
Fyrir tveimur árum sökk skip, á leið í brotajárn, við suðurland.
Það var seint um haust og allra veðra von.
Og nú má spyrja; þarf að setja fleiri reglur?
Geta menn bara ekki sagt sér sjálfir, að skip sem eru orðin brotajárn.
Eigi að flytja að sumri til, yfir Atlantshafið?
Eða tengdist veðrið ekkert þessu hörmulega slysi?
|
Mennirnir taldir af |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2012 | 17:28
Hótanir eru vinnulag Jóhönnu.
Stjórnmálaferill Jóhönnu er samfelld röð af heimtufrekju og hótunum.
Að heimta og hóta eru hennar sterkustu hæfileikar.
Nú hótar hún að hrinda Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur niður í gólfið úr forsetastólnum á Alþingi.
Hvort sem hún hefur til þess þingstyrk eða ekki.
Enn eitt dæmið um að Jóhanna Sigurðardóttir er fullkomlega vanhæf til að húka á stól forsætisráðherra.
Starfi sem felst í því að laða fram það besta hjá sínu samstarfsfólki.
Enda lítur þjóðin ekki á hana sem forsætisráðherra frekar en gamla skán í suðupotti.
Og ekki frekar en Halldór Ásgrímsson sem fékk stólinn fyrir snuð svo að hann hætti að suða.
|
Ekki útilokað að Ásta R. víki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2012 kl. 03:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.1.2012 | 17:09
Framsóknarmenn munu ráða úrslitum.
Þessir þingmenn vilja ekki afturkalla ákæru Alþingis á Geir H. Haarde:
Álfheiður Ingadóttir, Auður Lilja Erlingsdóttir (eða Árni Þór Sigurðsson), Birgitta Jónsdóttir, Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Magnús M. Norðdahl (varamaður Katrínar Júlíusdóttur, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús Orri Schram, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Oddný G. Harðardóttir, Ólína Torfadóttir, Róbert Marshall, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Þór Saari, Þráinn Bertelsson, Þuríður Backman.
Þetta eru 28 þingmenn.
Óvíst er um afstöðu Guðbjarts Hannessonar og einnig hvort Björgvin G. Sigurðsson mun kalla inn varamann.
Þá er ljóst að Lilja Mósesdóttir telur forsendur ekki hafa breyst en spurning hvort hún sæti hjá.
Alls eru því í mesta lagi 31 þingmaður sem fyrirsjáanlega gætu greitt atkvæði á móti niðurfellingu ákæru.
Eftirtaldir þingmenn vilja afturkalla ákæru Alþingis á Geir H. Haarde:
Árni Johnsen, Árni Páll Árnason, Ásbjörn Óttarson, Ásmundur Einar Daðason, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Birgir Ármannsson, Bjarni Benediktsson, Einar K. Guðfinnsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Bragi Sveinsson, Illugi Gunnarsson, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Kristján L. Möller, Kristján Þór Júlíusson, Ólöf Norðdal, Pétur Blöndal, Ragnheiður E. Árnadóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.
Alls eru þetta 29 þingmenn.
Þá eru ótaldir þingmenn Framsóknarflokksins þeir Birkir Jón Jónsson, Höskuldur Þórhallsson og Vigdís Hauksdóttir.
Þau munu annað hvort fylgja því að fella niður ákæru á Geir H. Haarde einan, eða sitja hjá.
Nú er því líklegast að Alþingi muni afturkalla ákæruna á Geir H. Haarde sem er eðlileg niðurstaða.
Enda Jóhanna byrjuð að hóta Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur að sparka undan henni þingforsetastólnum.
Þó að hún sé hölt, skökk og fótaveik.
|
Erfitt fyrir stjórnmálin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2012 kl. 03:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.1.2012 | 00:39
Og drepa þau svo úr eitri. Heilu þorpin og allir með krabbamein.
Kínverjar eru langt komnir fram úr öðrum þjóðum í að eitra fyrir sjálfum sér og börnum sínum.
Frá upphafi hafa Kínverjar ekkert gefið fyrir mengunarvarnir og eftir uppganginn þar á undanförnum árum hefur keyrt um þverbak.
Viða er grunnvatn óþverri, jarðvegur mengaður og sömuleiðis vatnið í ánum.
Blý, cadmíum og aðrir þungmálmar eru komnir yfir velsæmismörk í kínverskum börnum, jafnvel 1/3 hluta þeirra.
Í næst menguðustu borginni eru börn með 88% hærra blýmagn í blóði en leyfilegt er.
"...760,000 people die prematurely each year in China because of air and water pollution.
High levels of air pollution in China's cities leads to 350,000-400,000 premature deaths, it said.
Another 300,000 die because of indoor air of poor quality.
The newspaper article, quoting World Bank advisers and Chinese officials,
also said that the report omitted research showing that there are 60,000 premature deaths each year
because of water of poor quality..."
Sjá nánar:
http://en.wikipedia.org/wiki/Pollution_in_China
Hér er svo frétt um að sums staðar séu allir í þorpinu komnir með krabbamein:
http://www.dailymotion.com/video/x3ggdr_11082007-terrible-pollution-in-chin_news
Á einni spólunni er vitnað í Alþjóðabankann og sagt að 46,7% Kínverja lifi af 2 dollurum á dag.
Og þar af 16,6% þeirra á minna en 1 dollara á dag.
Vel má þá ímynda sér hvaða áhuga yfirvöld hafa á vinnuaðstæðum eða mengunarvörnum hjá því fólki.
|
Vænta barnaláns á ári drekans |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2012 kl. 03:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.1.2012 | 01:40
Sjálfstæðismenn vilja að Ólafur verði næsti forsætisráðherra.
Einhver sagði að Ólafur gæfi áfram kost á sér sem forseti.
Ef á hann yrði skorað af slíkum fjölda að ljóst væri að sigurinn yrði hans.
Halda mætti að skoðanakannanir væru nægileg vísbending en Ólafur veit betur.
Með síðustu skipum gæti einhver komið upp og "bjargað" stöðunni.
Þá aðferð notaði Ólafur einmitt sjálfur er hann varð forseti.
Undirrituð áskorun er sterkari en já í skoðanakönnun.
-----------
Kurteislega afþakkaði Sjálfstæðisflokkurinn þingmeirihluta í næstu alþingiskosningum.
Gamalmennin á landsfundi þola ekki tilhugsun um frekari umsvif flokksins.
Því kusu þau yfir sig forystu með fortíð, eins og lýst er í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Ýmsir þingmenn flokksins eru einnig algerlega mótfallnir fleiri þingsætum til flokksins síns.
Mikilvægara að þeir sitji sjálfir á þingi, þrátt fyrir alla sína fortíð, og þverskallast því við að hætta.
Ætla jafnvel í framboð að nýju og telja það mikilvægara en að flokkurinn eigi framtíð.
Og áfram verður því vinstri stjórn í landinu en verður hún nothæf?----------------
Ekki eru aðrir sjáanlegir en Ólafur Ragnar Grímsson er leitt gæti, og sameinað, íslenska vinstri menn.
Til forystu hafa nú troðist vanhæfustu framapotarar, og ómerkilegustu tækifærissinnar, fyrr og síðar.
Jóhanna gerði út um möguleika Alþýðuflokksins til áframhaldandi stjórnarsetu árið 1994.
Með vanhæfni, óbilgirni, og gengdarlausri frekju og stofnaði Þjóðvaka utan um eigin persónudýrkun.
Og þannig bauð Jóhanna kasúldinni spillingu Framsóknarflokksins í ríkisstjórn.
Með kvótakónginn Halldór, og féhirðinn Finn Ingólfsson, í forystu framsóknarinnar í fundið fé.
Framsóknarflokkurinn eyðilagði einkavæðinguna fyrir Sjálfstæðisflokknum og þjóðinni.
Framsóknarflokkurinn lagði til lokaáfangan að þenslunni og hruninu hérlendis.
Með því að yfirbjóða í kosningaloforð um hækkuð lán frá Íbúðalánasjóði, sem bankar eltu svo því miður.
Fyrst auðvitað Kaupþing en það hétu fjárhúsin á höfuðbóli framsóknar.
Þar var meiri sóðaskapur en áður hafði sést í fjárbúskap landsmanna, jafnt innanhúss sem utan lands og steina.
Framsóknarflokkurinn ætti nú að bregða búi þessa höfuðbóls íslenskrar fjárpestar.
Engu breytir að venjulegur vinnumaður framsóknar er skynsamur og jarðbundinn ættjarðarvinur.
Höfuðból framsóknar varð að pólitískri rotþró er þjóðfélagslegir misyndismenn sölsuðu undir sig og sína.
Ásamt öðru lítilræði af auðlindum og eignum þjóðarinnar.
---------------
Steingrímur J. Sigfússon eyðilagði sögulegt tækifæri til sameiningar, þegar Samfylkingin var stofnuð.
Þessi pólitíski undanvillingur Stalíns var áfram ormaveikur af kommúnisma og fárveikur af athyglissýki.
Utan um svo mikilfenglega hæfileika varð að stofna sérstakan stjórnmálaflokk.
Vinstri hreyfingin - grænt framboð er ekki annað en sértrúarsöfnuður um dýrðlinginn Steingrím.
Í slíkum trúarsöfnuðum þvæla frelsararnir venjulegast viðstöðulausan þvætting með fyrirheitum um fagra framtíð.
Til handa aðeins þeim er fylgja frelsara sínum, trúa honum og treysta, frekar en eigin sönsum, ef einhverjir eru.
En nú bila menn í trúnni er hver söfnuðurinn, eftir annan, samþykkir skjöl með guðlasti og senda suður í blöðin.
Og í lækkandi bænhita í safnaðarheimilum, fellur nú á dýrðlinginn gráan og gugginn. Bölvaðir heiðingjar bara.
---------------
Í þjóðarbúskap þeirra Jóhönnu og Steingríms, eru heimilismenn ýmist á förum eða horfalla heima á bæ.
Og ekki búnast betur af búráðum, eða öðrum búkhljóðum, úr vinafagnaði Össurar ofan af fjósbitanum.
Nú vantar vinstri menn meindýraeyði að hreinsa út bæði púka og pólitísku óværu.
---------------
Eftir næstu kosningar getur því aðeins Ólafur Ragnar Grímsson myndað nothæfa ríkisstjórn.
Þar eð sjálfstæðismenn þverfóta ekki í fortíðarrusli og óþrifunum heima við, og því síður af bæ.
Kannski að Davíð Oddson væri tilleiðanlegur til að líta aðeins aftur við, og hreinsa til?
Þá fengju sjálfstæðismenn meirihluta og Ólafur slyppi við að ferðbúa koffortin af Bessastöðum.
Því ekki kæmu þau að hjálpar honum, Jóhanna, Steingrímur eða Össur, frekar en á Indlandi forðum.
|
10.000 undirskriftir á sólarhring |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2012 | 20:23
5600 svona festingar í Airbus A 380
Það er starf flugvirkja og flugvélaverkfræðinga, eftir að flugvél hefur verið smíðuð.
Að fylgjast kerfisbundið með ástandinu á öllum hlutum og skipta þeim út eftir þörfum.
Á sínum tíma kom upp svipað vandamál í bæði Boeing 747 og 737 er var að sjálfsögðu leyst.
Þessi stærsta farþegaþota heims hefur sína barnasjúkdóma eins og við mátti búast.
Hér er rætt um stykki er tengja ysta lag vélarinnar við burðarrima í vængjum og bol.
(Rib to skin panel attachment eða rib feet).
Sprungurnar fundust fyrst í vél ástralska félagsins Quantas er skemmdist við hreyfilsprengingu í nóv. 2010.
Hárfínar sprungur hafa fundist í festingum í vængjum en ekki bol vélanna.
Fyrra vandamálið snýr að götum festinganna og lausnin er að gera götin á annan hátt í framleiðslu.
Hitt vandamálið snýr að lóðréttu hliðum festinganna (vertical web) og endanleg lausn er ekki fyrirliggjandi.
Gríðarleg átök eru að sjálfsögðu í vængjum slíkra véla og þarna kemur tvennt til greina.
Að álagið fari yfir áætluð mörk eða hitt, sem er sennilegra, að gallar séu í framleiðslu festinganna.
Strax og flugvirkjar finna sprungur er skipt um festingarnar sem þó er aðeins tímabundin lausn.
Því hafa flugmálayfirvöld fyrirskipað fleiri skoðanir á vængjunum en þessar reglubundnu.
Þegar framleiddar verða sterkari festingar verður skipt um þær í öllum vélunum á tilteknum stöðum.
Það er einmitt út af svona málum sem menn eiga ekki að taka sér far með flugvélum þriðja heimsins.
Nema þeim sem sem hafa heimild til að fljúga inn í Bandaríkin og Evrópu.
Fjöldi t. d. afrískra flugvéla mega ekki fljúga yfir til Evrópu þar sem viðhaldið hjá þeim er í skötulíki.
Enn sést ég fullkomlega áhyggjulaus upp í t. d. þotur Flugleiða eða skrúfuþotur Flugfélagsins.
Við þurfum að gæta þess vel að missa ekki niður gæðastaðalinn á fluginu okkar.
|
Sprungur fundust í vængjum flugvéla |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2012 | 16:34
Sammála um það eina mál.
Að sitja sem lengst í stólunum.
Því miður er það saga íslenskra vinstri stjórna.
Að vera lítt starfhæfar vegna innbyrðis deilna um keisarans skegg eða eitthvað enn ómerkilegra.
Oftast springa þær fyrir hlé en að öðrum kosti hafa þær verið starfsstjórnir í reynd.
Ráðherrarnir reyna að kreista saman augun og vona að næstu kosningar komi aldrei.
En auðvitað hafa þessar vinstri stjórnir allar gert alls konar eitthvað.
Nema fyrir fólkið í landinu. Það er bara í kosningabæklingunum.
|
Ríkisstjórnin ekki í hættu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2012 | 05:20
Og byrjaði sjálfur á að hjálpa Baugsfjölskyldunni.
Hann Steingrímur ætlaði sko ekki að hlífa sér við skítmoksturinn úr stjórnmálaflórnum.
Hans fyrsta verk í forinni á höfuðbóli Samfylkingar.
Var að hjálpa þar Baugsfjölskyldunni að komast þar upp með fjölmiðla sína úr drullunni.
Og Steingrímur lætur sér vel líka, utan við Samfylkingarbæinn.
Þótt skvett sé á hann úr öllum koppum nema af hundunum sem míga utan í hann beint.
Því það er sko mestur munurinn.
Að sitja á ráðherrastól í fjóshaugnum.
|
Ætluðu ekki að hlífa stjórnmálamönnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2012 | 01:27
Þurfa ekki málefnaleg rök.
Alþingi ákvað að ákæra Geir H. Haarde, einan ráðherra, án þess að hægt væri að færa málefnaleg rök fyrir slíkri niðurstöðu.
Niðurstaðan byggðist á geðþótta meirihluta alþingismanna sem venjulega er ekkert við að athuga.
En einnig í því máli á hefndarþorsta og sálsjúku hugarfari án nokkurra nákvæmlega tilgreindra lögbrota.
Aðeins löngun og von hluta þingmanna, og ráðherra, um að saksóknari finndi einhver lögbrot.
Sem saksóknari fann ekki en gaf samt út opna ákæru, fyrir allt og ekkert.
Í þeirri von að Landsdómur finndi einhver lögbrot og bætti ákæruna upp.
Fræðimenn hefðu aldrei náð upp í nef sér, yfir svo fráleitum vinnubrögðum og því síður að skrif þeirra gerðu það.
Alþingismönnum er heimilt að skipta um skoðun að eigin geðþótta án þess að færa fyrir því frekari rök.
Hvernig alþingismenn greiða atkvæði eiga þeir eingöngu við sjálfa sig. Og þá sem þeir bæðu um að kjósa sig aftur.
Alþingismönnum ber engin lagaleg skylda til að hafa vit á því sem um er fjallað sem oft má sjá.
Alþingismönnum er fullkomlega heimilt að afturkalla ákæruna á Geir H. Haarde.
Og þurfa fyrir því engin rök nema þeir vilji.
Aðeins geðþótta.
|
„Hafi þau skömm fyrir um aldur og ævi“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2012 | 23:05
Enda byggð á lögvillu.
Í frávísunartillögunni er því haldið fram að um málið gildi stjórnsýslureglur.
Það er rangt.
Stjórnsýslureglur og skilgreiningu á þeim er að finna í stjórnsýslulögum nr. 37/1993.
Þar segir svo í 1. gr. I. kafla laganna:
"I. kafli. Gildissvið laganna.
1. gr. Gildissvið. Lög þessi taka til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga..."
Til að skilja þýðingu fyrstu greinar laganna ber að skoða athugasemdir þær sem fylgdu frumvarpinu:
"Athugasemdir við einstakar greinar og kafla frumvarpsins.
Um I. kafla. Í þessum kafla er fjallað um hvert skuli vera gildissvið laganna,
þar á meðal gildissvið þeirra gagnvart öðrum lögum.
Um 1. gr.
Gert er ráð fyrir að lögin taki til allrar stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga.
Skiptir í því sambandi ekki máli hvort stjórnsýslan er í höndum sérstakra stofnana á vegum ríkis eða sveitarfélaga né heldur hvort slíkar stofnanir lúta stjórn nefnda, ráða eða stjórna, kjörinna af Alþingi eða sveitarstjórnum.
Sem fyrr segir er það hins vegar skilyrði að um sé að ræða stjórnsýslu, þ.e. þá starfsemi sem heyrir undir framkvæmdarvaldið samkvæmt þeirri þrískiptingu ríkisvaldsins sem mælt er fyrir um í 2. gr. stjórnarskrárinnar.
Þannig taka lögin ekki til löggjafarvaldsins, þ.e. starfsemi Alþingis og stofnana þess, svo sem umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðunar..."
Saksóknari Alþingis er stofnun sem heyrir undir Alþingi.
Það getur því ekkert verið skýrara að stjórnsýslureglur eiga ekki við um störf saksóknara Alþingis.
(Lit- leturbreyting V.J.)
|
Frávísun felld |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



baldher
benediktae
duddi9
fullvalda
gattin
heimssyn
helgigunnars
skari
thordisb
vefritid
himmalingur
jonvalurjensson
kristjan9
samstada-thjodar