22.1.2013 | 11:14
Hreint sjálfsmorð.
Árum saman höfum við vitað af dauðarefsingum vegna fíkniefnasmygls í Indónesíu.
Það er því hreint sjálfsmorð að fara þangað með heil fimm kíló af kókaíni eða að smygla fíkniefnum þangað yfirleitt.
Nokkrir ungir Íslendingar hafa því miður kynnst því á eigin skinni hversu afleit hugmynd það er að ástunda slíkt í þriðja heiminum.
Þar sem fangelsisdómar eru þungir og fangelsisvistin algerlega hroðaleg og ekki skepnum bjóðandi.
Hreinasta glapræði að vera með fíkniefni víðast hvar í framandi löndum.Þarf ekki svo mikið sem dauðarefsingu til að sjá það.
Reyndar þarf ekki að ferðast nema til Færeyja til að komast að því að Íslendingar taka frekar vægt á þessum brotum.
Eða hvað þá meir.
Bresk kona dæmd til dauða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.