30.4.2012 | 08:03
Títanic sökk af mörgum samverkandi ástæðum.
Helstu mögulegar ástæður þess að Titanic sigldi á borgarísjaka og fórst:
*Bógur skipsins var settur saman með lélegri járnhnoðum en venjulega voru notuð.
*Járn og stál á þessum árum hafði allt of lélegt kuldaþol.
*Eldur hafði logað í kolageymslu þar sem stærsta rifan kom á skipið.
*Tvöfaldur botn var í Titanic en ekki tvöfaldar hliðar eins og þá var byrjað að smíða í skip.
*Menn í útsýnisturni skipsins höfðu ekki sjónauka eins og þeir voru vanir.
*Útgerðarmaðurinn stjórnaði hraða skipsins en ekki skipstjórinn. Honum lá mjög á til New York.
*Útgerðarmaðurinn taldi enga ástæðu til að minnka hraða skipsins þrátt fyrir fréttir af ís á siglingaleiðinni.
*Skipstjórinn lét það yfir sig ganga að minnka ekki hraðann þrátt fyrir nokkrar áhyggjur af ís.
*Engir ljóskastarar voru á farþegaskipum þeirra tíma, nema þeim sem fóru um skipaskurði.
*Það var hlýjast vorið, í 30 ár, það sem borgarísjakarnir komu og þeir voru óvenju sunnanlega.
*Áhafnasamstarf var afar lélegt: Undirmenn áttu ekki að tjá sig um öryggismál varðandi siglingu skipsins.
*Veðurskilyrði voru algerlega einstök, ládauður sjór, logn, ekkert tunglsljós. Afar erfitt að greina ísjaka.
*Sumir úr áhöfninni töldu að borgarísjakinn, hafi á hliðinni sem snéri að skipinu, innhaldið mikið af leir og sandi.
*Hugsanlega voru hillingar við sjóndeildarhringinn sem trufluðu sýnina framundan.
*Óvíst er að skipstjórinn hafi fengið öll þau skeyti um ís sem skipinu bárust.
*Loftskeytamennirnir lögðu meiri áherslu á farþegaskeyti en að taka á móti fréttum um ís.
*Stýri skipsins var allt of lítið miðað við stærð þess.
*Rangar aðferðir tíðkuðust við neyðarbeygjur. Drepið var á öllum vélum þannig að virkni stýrisins minnkaði.
*Skipið hefði líklega þolað að sigla beint á ísjakann sem hefði þá verið betra en að beygja.
*Hefðu hin vatnsþéttu skilrúm skipsins náð hærra upp, hefði skipið náð að halda sér lengur á floti.
*Í nokkra stund var skipinu siglt á hálfri ferð eftir áreksturinn, sem fyllti það fyrr af sjó.
*Aldrei var slegið af hraðanum, nema í þoku, á þessum stærstu farþegaskipum þessarra ára.
Hér er fyrri samantekt mín um Titanic; viðbætur og athugasemdir eru afar vel þegar.
http://viggojorgens.blog.is/admin/blog/?entry_id=1234973Nútímaútgáfa af Titanic | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.