12.1.2012 | 02:29
Tími til kominn að mótmæla þeirri ósvinnu.
Ætli Össur afglapinn hafi munað eftir að mótmæla fangabúðunum á Guantanamo á Kúbu.
Þegar hann var að breima utan í Hillary Clinton eins og fressköttur út af norðurskautsmálunum?
Það er algerlega fyrir neðan virðingu frjálsra lýðræðisþjóða á vestur löndum að þola Könunum þetta.
Lágmarkið að einhverjir óháðir herforingjar úr NATÓ fái staðfestingu á að þetta séu hryðjuverkamann.
En ekki einhverjir geitasmalar sem áttu leið þar hjá sem kanninn var að skjóta eitthvað.
Og þó að þeir séu hryðjuverkamanna að þeir fái a. m .k. dóm og úrlausn sinna mála.
Ætli kaninn að haga sér svona áfram eru þeir sjálfir orðnir heimsveldi hins illa.
Og þá förum við nú að súpa á lýsiskútnum og girða oss sverði, skildi og grípa atgeirinn.
Komum okkur upp Búrka liðþjálfa og allt verður klárt í slaginn.
Mótmæli gegn Guantanamo | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:34 | Facebook
Athugasemdir
Heldurðu að Össur sé yfirleitt allsgáður Viggó?
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 12.1.2012 kl. 08:20
Nei það hefur hann aldrei verið frekar en Steinríkur, vinur Ástríks, sem datt í pottinn sem barn.
Viggó Jörgensson, 12.1.2012 kl. 13:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.